Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1984, Blaðsíða 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR 21. MARS1984.
Spurningin
KS, AD, GG í starf skynningu.
Hvar mun Evrópukeppni
landsliða í knattspyrnu
fara fram í sumar?
Ásdis Magnúsdótttr: Hún fer fram í
Frakklandi og ég held aö Þjóðverjar
vinni.
\ ^ j
Unnar Elriksson: Eg veit þaö ekki en
Frakkarvinna.
Ingvi Guðmundsson: Urslitakeppnin
fer fram í Frakklandi og Frakkar
vinna á heimavelli.
Karl Gunnarsson: I Frakklandi og
Þjóðverjar vinna.
Jóhann Amarsson: Eg hef ekki hug-
mynd um það en ætli Frakkar vinni
ekki.
2va Öraólfsdóttlr: Eg hef ekki hug-
nynd um það.
WSj- .? :’J ’ »\
Kvenþingmenn íslenciinga samankomnir á einum stað. Þingmenn Kvennalistans eru lengst til vinstri.
Þingveislan:
Kvennalistinn stóðst freistinguna
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Kjósandi skrifar:
Oft veltir lítil þúfa þungn hlassi.
Þessi málsháttur á nú kannski ekki al-
veg við um þá sérstöku ákvörðun Sam-
taka um kvennalista að mæta
ekki til þingveislunnar á Hótel Sögu í
sl.viku.
Hins vegar getur svona ákvörðun,
þótt ekki vegi þungt í augnablikinu,
orðiö til þess síðar meir, t.d. í kosning-
um, að snúa einhverjum atkvæðum frá
öðrum flokkum til þessara samtaka.
Það er nefnilega mikið til af
óákveðnum kjósendum sem snúast um
sjálfa sig á kjördag og láta kylfu ráða
kasti um þaö hvern flokk þeir k jósa.
Það er einmitt tii þessara kjósenda
sem Samtök um kvennalista höfð-
ar með ákvörðun sinni um að mæta
ekki í þingveislu. — Auðvitaö er þetta
pólitísk „taktík” en hún er lunkin og
þama sáu þær í kvennalistanum sér
leik á borði, vissu sem var aö enginn
hinna flokkanna myndi skerast úr leik.
Nú er sá er þetta ritar ekki stuðn-
ingsmaöur Samtaka um kvennalista
en játa verður aö hér er um póli-
tíska ákvörðun að ræða sem hefði verið
hvaða flokksformanni sem er í lófa
lagiöaötaka.
Það var lítillega búið að ræða þetta
opinberlega og manna á meðal var
verið að gamna sér við að geta sér
þess til hvort einhver stjórnmálaflokk-
urinn myndi taka á sig rögg og skerast
úr leik og mæta ekki til þingveislu til að
eta og drekka á kostnað galtóms ríkis-
sjóðs og skattpíndra þegnanna.
Fulltrúi eins þingflokksins, Banda-
lags jafnaöarmanna, haföi skrifað
fjálglega heila grein um þetta í DV og
hneykslast á svona uppákomum á
kostnað almennings. Eins konar
áskorun til þingflokks Bandalagsins,
sem hún er starfsmaður hjá, um að
mæta ekki.
Nú er það auðvitað orðin hefð aö
efna til þingveislu ár hvert þar sem
þingmenn skemmta sér og vega hver
annan í góðsemi á kostnað skattborg-
aranna. Sumir segja sem svo: Er
þetta eitthvað verra en annað, t.d. fríð-
indi ráðherra og annarra þingmanna,
semviðgreiðum?
Það er þó sá munur hér að fríðindi
ráðherra, t.d. hvað varðar bifreiðar,
að þær eru notaöar við störf og fæstir
munu í alvöru telja að ráöherrar eigi
ekki að hafa bifreið til afnota. Allir
ráðherrar hafa neytt þeirra fríðinda og
er ósanngjamt aö taka þar einn eða tvo
út úr dæminu og rakka niöur af ósann-
girni og pólitískum loddaraskap.
Hitt, aö hópast saman til að eta og
drekka, án nokkurrar nauðsynlegrar
ástæðu eins og árleg þingveisla er, þaö
er ekki í þágu nokkurs manns, hvaö þá
þjóðarinnar allrar.
Það hlýtur að vera fátítt meðal
menningarþjóða, — tíðkast sennilega
ekki heldur hjá villimönnum — að
kjörnir fulltrúar efni til starfsmanna-
skemmtunar á kostnaö skattgreið-
enda. En þetta hafa stjómmálaflokk-
ar hér á landi sameinast um, alhr með
tölu, þartilnú.
Tímamir eru að breytast sem betur
fer og það sem áður þótti sjálfsagt að
láta viðgangast er nú óðum að leggjast
af. Þingveisla á kostnað þjóðarinnar
er meðal þess sem hlýtur að leggjast
af.
Ef til vill verður sumum stjórn-
málamönnum nógu bumbult af því
einu að vita aö framtak Kvennalista
getur riðiö baggamuninn hvort
þeir ná kosningu. Þeir óráðnu hafa oft
hin skrýtnustu viðhorf og gott minni
þegar þeir setja ,,x-ið” sitt á kjörseðil-
inn. Afstaöa til þingveislu getur haft
þarsittaðsegja.
Jóhann Svarf dælingur
Sýnum honum hlýhug
Þakkir til DV fyrir að moka hjónin út
6234—8798 skrifar:
Kæri lesendadálkur DV.
Oft hafið þið brugðist fljótt og vel
við en dásamlegust fundust mér við-
brögöin hjá ykkur þegar þið mokuðuð
frá dyrum gömlu hjónanna fyrir
nokkm.
AlOtaf eru þeir skemmtilegir þætt-
irnir hans Jónasar Jónassonar, Kvöld-
gestir.
Fátt hefir samt komið við mann eins
og viðtalið við Jóhann Svarfdæling.
Fáir held ég hafi verið jafnþurfandi
fyrir hjálp og aðstoð meö sínar sér-
þarfir og þessi maöur. En hann er ekki
að kvarta eða krefjast eins eða neins.
Hann er það hógvær maður og tekur
öllu með ró og er þakklátur fyrir þaö
sem gert er fyrir hann.
Væri ekki tímabært fyrir þjóðina að
taka höndum saman og gefa þessum
útlaga góða daga loksins þegar hann
getur notið ættjarðarinnar. Sýnum
hlýhug í verki til þessa vinar okkar og
bróður og gefun honum birtu og yl.
Snjómokstursgengi D V eftir að það mokaði gömul hjón út sem höfðu verið
einangruð frá umheiminum i viku.
Jóhann Svarfdælingur loks kominn
heim.