Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1984, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1984, Qupperneq 31
DV. MIÐVIKUDAGUR 21. MARS1984. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Hatídór Hatídórsson. Bók um Sólnes Á næstu jólavertíð er væntanleg á markaðinn bók um margfrægan pólitikus að norðan, Jón G. Sólnes. Á undanförnum árum hafa aðskUjanlegustu bókaforlög gengið með grasið í skónum til aö fá að þrykkja lifshlaup þingmannsins fyrrverandi á prent en engu þeirra hefur orðið ágengt tU þessa. Segir sagan að þar hafi einkum verið á ferðinni tvö forlög Jón G. Só/nes. fyrir norðan og aUnokkur í Reykjavík. Það eru svo Örn og örlygur sem munu hafa hreppt hnossið og hugsa for- ráðamenn útgáfunnar sjálf- sagt gott tU gióðarinnar. Þá hafa þeir verið að líta í kringum sig eftir einhverjum vel ritfærum tU aö safna efn- inu í bókina og koma því á blað. Mun næstum fuUfrá- gengíð að HaUdór HaUdórs- son, ritstjóri Islendings, taki þann hluta útgáfunnar að sér. Þar fór í verra Sem kunnugt er af fréttum hefur samkeppnin um útnefn- ingu forsetaframbjóðenda Demókrataflokksins i Banda- ríkjunum harðnað mjög að undanförnu. Baráttan stendur á mUli Gary Hart og Walter Mon- dale. ÖUum að óvörum sigr- aði Gary Hart í New Hamps- hire á dögunum. Þegar Mondale bárust þessi Ulu tíðindi af sigri and- stæðingsins varð honum að orði: „Helv... er þetta HART.” Hjálpar sér sjálfur Landeigendum í nágrenni þéttbýlis hefur löngum þótt nóg um hversu fingralöng viðkomandi bæjaryfirvöld eru þegar úthluta á ióðum undír nýhús. En nú hcfur dæmið snúist við. t Njarðvíkum býr maður nokkur, Karvel ögmundsson að nafni. Hann hefur haft á leigu landssvæði á staðnum og eru nú um 15 ár eftir af lóðasamningnum. Hefur Kar- vel nú úthlutað lóð af þessu svæði undir einbýlishús án samráðs við bæjaryfirvöld. Að sögn Víkurfrétta standa nú yfir viðræður við Karvel vegna málsins og fara for- maður byggingarnefndar og byggingafulltrúi Njarðvíkur- bæjar fyrir í því spjalli. Voff, voff Sjálfsagt mima margir eftir ágætum umræðuþætti í sjónvarpi á dögunum þar sem Guðjón Einarsson frétta- maður stýrði rifrildinu. Þar var meðal. annars rætt um hundamái, og sýndist sitt hverjum eins og nærri má geta. Eftir þáttinn hringdi síminn heíma hjá ónefndum, háttsettum embættismanui Reykjavikurborgar. Embætt- ismaðurinn átti von á simtali frá spQaféiaga sínum og full- viss um að hann væri á hinum cnda linunnar, þegar hann iyfti tólinu, svaraöi hann: „Voff, voff!” Þá heyrðist undrandi rödd á hinum end- anum, sem sagði: „Hvernlg vissir þú að þetta væri ég?” Var þar kominn Albert Guðmundsson fjármálaráð- herra sem var að vonum undrandi yfir skarpskyggni embættismannsins. Hefndin er sæt Það var mikill hiti i áhorf- cndum á landsleik tslendinga og Sovétmanna nú nýlega. Töldu áhorfendur að norsku dómararnir, sem dæmdu leikinn, væru mjög hlutdræg- ir og að það bitnaði mcst á islendlngutn. Og því var það að þegar dómararnir frá Noregi dæmdu að því er talið var óhagstætt fyrir Island, beljaöi kórinn á áhorfenda- pöUunum: „Trcholt, Tre- holt”. Enn er talaö um Trehoft. Treholt allaballanna En það eru fleiri sem eiga sinn Treholt. Aiþýðubandalagið hefur sem kunnugt er aðsetur á efstu hæð hússins sem stendur á borni Hverfisgötu og Snorrabrautar. Þar inni mun meðal annars vera sam- komusalur undir súð og er hann þiljaður með viðar- klæðningu dáfaUegri. Segir sagan að saiurinn gangi ætíð undir nafninu „Tréholt”. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsd. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir o o Kvikmyndir Laugarásbíó—Sting II: MIK» BRALLAÐ Hoiti: Sting II. Leikstjóri: Jeremy Paul Kagan. Handrit: David S. Ward. Kvikmyndun: Bill Butier. Tónlist: Lalo Schrfrin. Aðalleikendur: Jackie Gleason, Mac Davis, Teri Garr, Karl Malden og Oliver Reed. Það er í mínum augum nokkur tímaskekkja að fara að gera Sting n tíu árum eftir að Sting leit dagsins ljós og varð ein af vinsælustu mynd- um sem gerðar hafa verið. Ekki lítinn þátt í vinsældum þeirrar myndar áttu leikararnir Paul Newman og Robert Redford í hlutverkum skúrka sem ekki var hægt annað en aö líka við. Og að skíra mynd Sting II án þess að þeir leiki í myndinni þykir hálfgerð móðgun við fyrri myndina. En þeir sem eru sama sinnis og ég geta þrátt fyrir vankantana farið óhræddir á Sting n. Þótt hún nái ekki gæðum fyrri myndarinnar er myndin hin ágætasta skemmtun. Og tónlist Scott Jopiin er á sínum stað, nú í umgjörð Lalo Schifrin. Myndin er látin gerast sex árum síðar. Lonegan sem fór heldur illa út úr viöskiptunum við þá Newman og Redford er í miklum hefndarhug. Þaö er Oliver Reed sem leikur Lone- gan í þetta skiptið. Hann hefur látið myrða einn sem átti eitthvað inni hjá honum. Þetta frétta þeir félagar Fargo Gondorff (Jackie Gleason) og Jake Hooker (Mac Davis) sem grunar réttilega að þeir séu ofarlega á lista hjá þeim er myrti félaga þeirra. En Lonegan hefur látið líta svo út sem Gus Macalinski (Karl Malden) sé á bak við allt saman, og stefna félagarnir því í átt til hans eins og til var ætlast. Macalinski.sem er þekktur mafíósi gengur brátt í gildru sem þeir Gondorff og Hooker bralla gegn honum og Lonegan undirbýr hina sætu hefnd í samráöi við Veronicu (Teri Garr) sem komið hefur sér í mjúkinn hjá Hooker. Ekki er nú samt allt sem sýnist og til að eyðileggja ekki fyrir væntanlegum áhorfendum ánægjuna af hinum smellna söguþræði veröur ekki fariö nánar út í hann. Það er eins og áður sagði erfitt að ímynda sér Sting án þeirra Newman og Redford. Þess vegna hafa fram- leiðendumir tekið það ráð aö gjör- breyta annarri helstu persónu mynd- arinnar, Gondorff. I staðinn fyrir hina myndarlegu leikara er gaman- leikarinn góðkunni Jackie Gleason Jackie Gleason bregst ekki frekar en fyrri daginn. kominn til leiks og hefur þaö sjálf- sagt verið hið snjallasta ráð. Því þrátt fyrir að tónlistin minni óneit- anlega á fyrri myndina, þá skapar Gleason fljótt það andrúmsloft sem fer honum best. Snjall skúrkur með ráð undir rifi hverju, en er um leið hinn agaði' heimsmaður sem enginn getur staðist. Mótleikari Gleason, Mac Davis, er aftur á móti nær hinum upprunalegu hlutverkum og líður hann nokkuö fyrir það. Mac Davis er þekktur söngvari vestan hafs og held ég aö honum fari betur að vera við míkra- fóninn en að vera fyrir framan myndavélina. Aðrir leikarar koma minna við sögu, en minnisverðir eru þó Oliver Reed í hlutverki Lonegans, sem vitnar í Shakespeare og Alexander Pope þegar hann leggur á ráðin að myrða andstæðinga sína og Karl, Maldan í hlutverki skúrsksins og næturklúbbeigandans Macalinski sem hefur meira sjálfstraust en vit og lætur auöveldlega blekkjast. Sting H er í heild ósköp þægileg mynd sem helst liður fyrir nafn sitt. Það er spenna og gaman í henni og hefði hún heitið einhverju öðru nafni er ég viss um að ég hefði verið sátt- ari viðhana. Hilmar Karlsson. MOTOROLA AUTOMOBILE M0T0R0LA ALTENATORAR: 6 - 12 - 24 - 32 volt 30 - 160 AMP. HAUKUR OG ÓLAFUR raftækjaverslun Ármúla 32 — Simi 37700. — Reykjavik. r STORUTSALA OKSINS ER KOMIÐ AÐ STORUTSÖLUNNI Á PRJÓNAGARNI. Áf því tilefni veitum við 10% afslátt af öllum útsaumsvörum. SJÓN ER SÖGU RÍKARI PÓS TSENDUM DA GLEGA . HOF I - INGÓLFSSTRÆT11 Sími 16764 E3 E . í EUOOCAP J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.