Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Qupperneq 6
6
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984.
Samtökin AFS voru stofnuð áriö
1914 af bandarískum sjálfboðaliðum
sem unnu við sjúkraflutninga á víg-
völlum Frakklands. Þannig störfuöu
samtökin fram til 1947 er þau hófu
unglingaskipti milli landa.
Hér á Islandi hafa samtökin
starfað síðan 1957 og hafa á þeim
tíma sent 400 unglinga til ársdvalar á
vegum samtakanna en rúmlega 150
unglingar hafa komiö til Islands,
flestir til níu vikna sumardvalar.
Umsækjendur eru á aldrinum 16—
18 ára og geta tilgreint hvort þeir
vilja helst fara til Bandaríkjanna,
Evrópu, Kanada, landa Suður-
Ameríku, Asíu, Eyjaálfu eða Afríku.
Viö náðum tali af tveimur ungum
Hafnfirðingum, þeim Sigfríði Gunn-
laugsdóttur og Heröi Ragnarssyni.
Sigfríður hafði verið í Brasilíu og
Hörður í Argentínu.
,,Eg fór í febrúar 1983,” segir Sig-
fríður. „Maður getur sótt um heims-
álfur og ég sótti um Bandaríkin eöa
Suður-Ameríku. Mér var svo boðið
upp á Brasilíu og var þar í ellefu
mánuði. Eg ætti að vera á 6. önn
núna í Flensborg er er á 4. önn vegna
þess aö ég missti þennan tíma úr.”
— En hvar var hún í Brasilíu?
„Eg var á stað sem heitir Ibatinga
í Minas Gerais. Eg bjó hjá f jölskyldu
sem var nokkuð vel stæð. Eg sótti
menntaskóla og var á síðasta ári
hans. Eg fæ eitthvað af því sem ég
lærði metiö hérna heima en það er
ekki mikið.”
— Hvaða greinar lærðiröu?
„Eg þurfti ekki að taka öll fögin.
En ég lærði til dæmis stærðfræði,
sögu, landafræði, portúgölsku og
ensku.”
— Ertu orðin góö í portúgölsku?
„Já, ég lærði mikið á þessu ári.
Það tók svona mánuð að læra einföld
atriði og geta aðeins bablað. Svo var
ég orðin altalandi eftir þrjá mán-
uöi.”
Hestvagnar á götum
— Hvernig er lifsmynstur fólksins
þama?
„Þaö er ekki algengt aö konur
vinni úti. Þaö er minna um aöstelpur
fari í háskólanám. Þaðþarf að borga
skólagjöld og strákar eru látnir
ganga fyrir.”
— Var eitthvað sem kom sérstak-
lega flatt upp á þig í Brasilíu?
„Þetta var um 200.000 manna borg
sem ég bjó í, iðnaðarborg, um
tuttugu ára gömul. Þaö var allt
þarna frumstæðara en hér. Eg
vaknaði til dæmis við hanagal fyrsta
daginn og þaö voru geitur í göröum
og hestvagnará aðalgötunum.”
— Hvernig var með stjórnarhætti?
„Maður frétti svo lítið af því sem
er að gerast þama. Maður heyrir
jafnvel meira um þaö á Islandi. Fólk
er mjög óánægt með forsetann og
hefur ekki fengiö að kjósa. Verðbólg-
i an þarna er um 200% og hlutirnir
hækka í hverri viku. Eg varð aöal-
lega vör við það í strætisvagnagjöld-
um og póstburöargjöldum,” segir
Sigfríður og kímir.
Að geta ekki talað
— Hvemig varfjölskyldansaman-
sett sem þú varst h já ?
„Maðurinn var landeigandi og
konan heimavinnandi. Þau áttu sex
böm á aldrinum frá 30 ára og niöur í
18ára gömul.”
— Hvemig varskemmtanalífið?
„Það varólíkt því sem hér er út af
veðrinu. Þarna voru haldnar grill-
veislur í görðum þar sem allar kyn-
slóðir komu saman. Það var ekki
þetta mikla bil milli kynslóða. Síðan
fór fólk út að borða eins og hér.”
— Hvemig varfólkið?
.Jiljög gott myndi ég segja. Eg
eignaðist mikið af vinum þarna.
Fólkið er opnara og kemur til manns
þegar það sér aö þarna er eitthvert
útlentgrey.”
— Sástu einhvern tímann eftir að
hafa farið út í þetta ferðalag?
,,Eg segi þaö ekki að ég heföi þegið
að fara heim fyrsta mánuðinn. Þá
var langleiðinlegast að geta ekkert
talaðogfleira.”
— Hefur þetta ferðalag haft
einhver áhrif á framtíðaráætlanir
þínar?
Frjálsræöi?
„Mig langar til að komast aftur til
mmm
Jku'*'
iÍáiP
ÉgpfM ■Ægjfo mw.m A
Sigfriður: „Sá mikla vesöld þarna og fátækt sem ég hefði varla trúað að væri til.
DV-mynd E.Ó.
Vaknaði við hanagal
Brasilíu, læra portúgölsku. Eg
býst við að ég fari í háskóla að loknu
stúdentsprófi og fari að læra ensku
eða eitthvertmál.”
— Hvað teluröu þig aöallega hafa
fengið út úr þessu ferðalagi?
„Eg hef lært málið sem er stórt
atriði. Svo hef ég lært ýmislegt um
samskipti við fólk. Ég sá líka mikla
vesöld þarna og fátækt sem ég hefði
varla trúað að væri til. A hverjum
degi hitti maður betlara, allt frá
pínulitlum krakkastýrum upp í full-
oröiö fólk.”
Nú hringir dyrabjallan heima hjá
Sigfríði og Hörður félagi hennar er
kominn til viðtals. Við dengjum
tafarlaust á hann spurningunni um
hvað hann telji sig hafa fengið út úr
dvölinni í Mendoza í Argentínu þar
sem hann dvaldist.
Þaö er auövitað reynslan, tungu-
málið og það aö læra að bjarga sér
sjálfur. Maöur kynntist þama allt
ööru umhverfi heldur en áður. ”
— Hjá hvernig fjölskyldu varstu ?
„Eg var hjá hjónum sem áttu einn
16 ára gamlan son. Þetta var frekar
auðugt fólk. Það átti byggingavöru-
verslun.”
— Hvað lærðirðu í skólanum?
„Aöallega tungumál. Eg tók loka-
próf í ensku. Annars var ég hálfgerö
súkkulaðikleina þarna.”
— Hvaö geröirðu í frístundum?
„Eg var í íþróttaklúbb og stundaði
róður. Svo var ég að læra listmálun
þarna og lauk námskeiöi í því. ”
Talið berst aö því hvernig hafi
veriö að koma á áfangastaðinn mál-
laus meðöllu?
„Eg þoröi ekkert að fara út fyrst í
stað af ótta við aö týnast,” segir
Hörður. ,,Eg var bara send í strætó
með blað með skýringum og leiðbein-
ingumá,”segir Sigfríður.
— Var sæmilegt frjálsræöi þarna?
„Ekki fyrir stelpur,” segir Sig-
fríður. „Eg mátti ekki fara út að
skemmta mér á kvöldin nema hafa
bróður minn eða systur með mér.
Hérna á Islandi get ég gert þaö sama
og bróöir minn gerir.”
Við spyrjum Hörð hvort dvölin
erlendis hafi orðið kveikjan að ein-
hverjum ákveönari framtíöaráform-
um?
„Eg er að hugsa um að læra meira
í spænsku,” segir hann.
— Komust þau einhvern tímann í
hann krappan meðan á dvölinni
erlendis stóð?
Hitinn
Hörður: „Eg villtist einu sinni
þegar ég fór að heimsækja vin minn
sem var skiptinemi og bjó uppi i
sveit. Þetta var tveggja tíma ferð og
bóndabæir út um allt. Eg fór út ein-
hvers staðar og villtist og var að
labba alla nóttina. Loks kom ég á
stað þar sem ég fékk að hringja og
þar kom í ljós að ég var aðeins þrjá
kílómetra frá bænum. Eg þurfti svo
að húkka bíl þangað en það er
stranglega bannað.”
Talið berst í framhaldi af þessu aö
sveitinni og Sigfríður segir frá því
þegar hún fór á sveitabæ sem
„pabbi” hennar í Brasilíu átti: „Það
var malarvegur upp að honum og
eldaö á hlóðum.
Fólkið var algerlega menntunar-
snautt og lifði aö því er virtist aðeins