Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Side 17
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984. 17 Bflar Bflar Bflar Bflar Bflar , ■■ - 'i: íípÆ-l ; MfSgHÍ l5\Jrau*uin 7eo"V«rbo Volvo 760 TURBO INTERCOOLER — hér iyrir framan sumarhúsin í Hambachtal í Þýskalandi eftir lang- an reynsiuakstur á hraðbrautunum þar sem bíllinn var svo sannarlega í réttu umhverfi. sinni þannig að þarna gafst gott tækifæri til að reyna bílinn við „rétt- ar” aðstæður. Bíllinn er búinn fjögurra gíra kassa með yfirgír til viðbótar. Yfirgírinn kemur sér vel þegar ekið er á miklum hraða og aukins afls er skyndilega þörf. Með léttri snertingu á hnappinn sem stýrir yfirgírnum skiptir bíllinn sér niður og fær þá það aukaafl sem vantar. Ekið var í klukkutíma eftir hraðbrautinni á stöðugum hraða, 200—250 km á klst. Það er nánast ótrúlegt hve vel bíllinn svarará þeim hraða og hve veggripið heldur sér. Síðasta hluta þessa hraðaksturs var eilítið farið að ýra úr lofti og vegurinn varð rakur en samt hélst veggripið óskert. Annars verður að haga akstri á hraðbrautum mikið eftir aðstæðum, ástandi vegarins og annarri umferð, þannig aö slíkum hraðakstri er ekki hægt að halda nema við bestu aðstæður. Bíliinn virðist kljúfa loftið vel á miklum hraða og vel er samtalsfært inni í bílnum þrátt fyrir hraðann, þannig að hljóðeinangrunin stendur fyrir sínu. Annars virtist besti hraðinn fyrir þennan bíl vera á bilinu 150 tii 170 km á hraðbrautunum. Á þeim hraða Að aftan er billinn dálitið kubbslegur en virðist ryðja loftinu vel frá sér í hraðakstri. betri sprenging fæst og þar með meiri orka. Bæði eldsneytisgjöf og kveikju er stýrt með örtölvu sem er inni í bílnum. Tíu skynjarar í vélinni flytja tölvunni boð um aksturinn og ástand vélarinnar og tryggja þannig sem hagkvæmastan og Uprastan akstur. Tölvukerfið stýrir brennslu elds- neytis þaö vel að ekki er þörf á þeim hreinsibúnaði sem krafist er að sé á útblæstri bíla víða um heim. Vegna rafeindastýringarinnar eru mjög fáir hreyfanlegir hlutir í kveikju- og eldsneytiskerfinu og því þörf á lágmarksviöhaldi. Þegar bílum er reynsluekið hér á landi er oftast ekki hægt að reyna viökomandi bíl til fulls, vegakerfið og reglur um hámarkshraða leyfa ekki aö hægt sé að kreista þaö út úr bílnum sem hann er f ær um að gefa. Margir bílar eru beinlínis framleiddir með það í huga að þeir henti til hraðari aksturs, en jafnframt að þeir hafi eiginleika bæjarbílsins. Einn slíkra bíla er Volvo 760, flagg- skip Volvo-flotans. Þessi bíll er hannaður til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til alhliða bíls, bæði með lipurð bæjarbílsins og snerpu hraöbrautarakstursins í huga. Fyrr í vetur gafst mér tækifæri til að reynsluaka Volvo 760 Turbo Inter- cooler við hinar bestu aðstæður sem hægt er aö hugsa sér, eða á hraðbrautum Vestur-Þýskalands, en þar er líka hægt að láta gamminn geisa án þess að hugsa ýkja mikiö umhraöamörk. Framendinn er greinilega byggður til hraðaksturs. Vindkljúfurinn að framan gefur gott veggrip og góða tilfinningu fyrir stýrinu þótt ekið sé bratt. DV-myndir JR. Gegnum 200 km Með þessari vél er nú unnt aö aka 760 bílnum á yfir tvö hundruð kíló- metra hraða á klukkustund og halda þeim hraða og var það sannreynt í hraðbrautarakstrinum. I reynsluakstrinum var ekið frá Danmörku suður um Þýskaland, um Frankfurt og um Moseldal til Lúxemborgar. Sumir hlutar leiöarinnar voru eknir oftar en einu nýtist vélaraflið vel og einu gírskiptingamar eru að setja yfir- gírinn á eða taka hann af. Stýrishjólið í 760 turbo hefur verið minnkaö lítillega frá fyrri gerðum og gefur það betri svörun í akstrinum. stilhngu sem honum hentar og jafnframt gætt þess að ástig og f jar- lægö stjórntækja sé rétt. í réttu umhverfi Ný „kynslóð" turbovéla Vélin í Turbo Intercooler-bílnum er af nýrri kynslóð þar sem meginmarkmiðið er sparneytni, þýöur gangur og mikið afl. Slíkar vélar ryðja sér nú til rúms í bíla- iðnaðinum í ríkari mæli. Homsteinar þessarar nýju véla- kynslóðar frá Volvo á sviði bensíndrifinna turbovéla er loft- kældur hverflll með millikæli (Inter- cooler), rafeindastýrð fæöing elds- neytis og kveikju og 2,3 lítra háþrýst fjögurra strokka vél. Með kælingu hleðsluloftsins allt að 60 gráðum eykst súrefnið í loftinu og VOLVO 760 TURBOINTERCOOLER Lengd: 4785 mm Breidd: 1761 mm Hæð: 1410 mm Breidd milli öxla 2770. Breidd milli hjóla 1460 mm Heildarþyngd: 1840 kg Farangursrými: 4741ítrar Hjól: 195/60HR15,Felgur: 6,0”X15” Stýri: Hjálparafl. Snúningsradíus 9,8 metrar. Hemlar: Diskar á öllum hjóium. Hjálparafl. Tvöfalt þríhyrningskerfi. Gírkassi: Fjögurra gíra, beiuskiptur meðyfirgír. Vél: 4 strokka í línu. 2316 rúmsm. 173 hestöfl/5700 sn. á mín. (127 kW) Þjöppun: 9,0:1. Bein innspýting. Elektróniskkveikja. Hjólbarðarnir vom Pirelli P6 á 15 tommu felgum sem ætlaðir eru til hraðaksturs og virtust hæfa bílnum vel. 15 tommu felgurnar gefa pláss fyrir stóra bremsudiska sem gefa góða og jafna hemlun þótt á miklum hraða sé. Það er í langakstri sem margt af búnaði bílsins kemur að fullum notum. Sérstaklega nýtast stillingar- möguleikar sætanna vel. Hægt er að hækka og lækka sætið og eins halla því að vild. Þannig getur öku- maðurinn náð þeirri hagkvæmustu Það má segja að niöurstaöa þessa reynsluaksturs, sem náði yfir nokkur þúsund kílómetra á þremur dögum, sé sú að þarna sé bíllinn í réttu um- hverfi. Turbo-aflið nýtur sín vel í hraðakstri á hraðbrautum en skilar sínu jafnframt sé ekið á krókóttum sveitavegum. Fjöðrunin er hæfilega stíf miöaö við þær aðstæður sem ekið var viö, en trúlegast yrði bíllinn full- hastur f yrir okkar vegakerfi. Með þessum bíl hafa Volvo-verk- smiðjumar haslað sér völl á nýju sviði og á þann hátt geta þær boöið uppábreiðarilínuenáður. -JR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.