Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Page 19
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984. 19 Læknirinn iJudy Parfitt) segir Bob IJohn Hurt) að hann eigi ekki nema átta mánuði ólifaða neitihann aiiri læknismeðferð. Bob getur ekki gengið óstuddur þegar hann yfirgefur sjúkrahúsið i hinsta sinn, læknaður af krabbameini. Kvikmyndin um knapann ósigrandi Sagan greinir frá manni nokkrum sem fæst við að sitja hina göfugu skepnu, veðhlaupahestinn. Allt virð- ist i iukkunnar velstandi þar til það uppgötvast að hann er með krabba- mein. Knapinn fyllist örvæntingu, síðan baráttuanda, vinnur fullan sigur á sjúkdómnum og á helstu kappreiðum heimsins. Hljómar þetta ekki eins og rétt ein uppdiktuð vellan til viðbótar? Svo er þó í raun- inni ekki, því sagan er nefnilega dag- sönn, byggð á þáttum úr ævi eins frægasta knapa á Bretlandseyjum, Bob Champion. Leikstjóriun Johna Irvin stjórnaði gerð myndarinnar um sÖgu knapans og hún ber nafnið Champions. Enginn annar en sá frægi leikari John Hurt var fenginn til að fara með hlutverk Bob Champions. Sumarið 1979 stóð Bob Champion á hátindi frægðarferils síns. Hann var meðal eftirsóttustu knapa í Englandi og þó víðar væri leitað. I júlí fann hann sig knúinn til aö leita læknis og niðurstöður rannsóknanna sem í kjölfarið fylgdu voru ógnvekjandi: Bob Champion var með krabbamein á tveim stöðum í líkamanum. I fyrstu gafst Champion algerlega upp fyrir þessum tíðindum og taldi réttast að láta allar ráðleggingar lækna, um meöferð við sjúkdómnum, lönd og leið, og reyna þess í stað að eyða þeim tíma sem hann ætti ólifað á sem skynsamlegastan hátt , helst á hestbaki. Læknir Champions sagði honum hins vegar aö hann þyrfti ekki að búast viö að eiga langt eftir ef ekkert yrði að gert; átta mán- uðir hérna megin grafar væri líklega nærri lagi. Draumurínn efídi baráttuandann Champion, sern er mikill baráttu- maður, ákvað þá aö hlýða á ráð- leggingar og gangast undir lyfja- meðferð til að freista þess að vinna bug á krabbameininu. Næstu sex mánuði var Champion reglulega í förum milli sjúkra- hússins og heimilis síns fársjúkur !°' ‘X-iSZlT" Aidanitis. a maður, oft ekki síður veikur af lyf ja- gjöfinni en krabbameininu. Van- líðanin virtist engan endi ætla að taka og erfiðleikarnir og vonleysið voru yfirþyrmandi. Það sem var Champion öðru fremur hvatning til að reyna að berjast við sjúkdóminn, var draumur hans um að vinna sigur í frægustu veöreiðum heimsins, Grand National. Champion hafði sér- stakan hest í huga sem hann vildi sitja öðrum fremur og knýja fram til sigurs í Grand National. Hesturinn bar nafnið Aldaniti og þeir Champion þekktust ágætlega og höföu unnið ófáa sigra í sameiningu. I janúar 1980 fékk Champion síðustu lyfjagjöfina gegn krabbameininu. Hann var þá þrjátíu og eins árs gam- all, bersköllóttur af völdum lyfjanna, tæplega annað en skinn og bein og svo máttfarinn að hann gat varla gengið óstuddur. Hann taldist hins vegar laus við krabbameinið. Ótrúleg endurhæfíng En draumur Champions um að vinna glæsta sigra á Aldaniti virtist fjær en nokkru sinni fyrr. Hesturinn hafði nefnilega orðið fýrir alvarlegum meiðslum á fæti og hvorki knapi né reiðskjóti virtust líklegir til aö komast hraðar en fetiö, hvað þá vinna sigur í Grand National. Eni þrátt fyrir þetta virtust báðir tilbún- ir til að reyna sitt besta. A næstu mánuöum fóru Champion og Aldaniti aö hjama við og í ágúst 1980 höföu þeir styrkst svo mjög að óhætt var að þeir hæfu sameiginlega þjálfun. Champion tók við sínu fyrra starfi sem knapi hjá Josh Gilford, einhverjum ágætasta þjálfara í Eng- landi. Endurhæfing Champions og Aldaniti reyndist ótrúlega erfið og virtist á stundum með öllu vonlaus. En þar eð hvorugur var tilbúinn til aö gefast upp fyrir erfiðleikunum gerðist hið ótrúlega: félagamir, sem fyrir ári höfðu verið taldir dauðans matur, unnu glæstan sigur í Grand National keppninni á Aintree kapp- reiðavellinum árið 1981, að viðstödd- um 60.000 áhorfendum. Sagan af Bob Champion og Aldaniti er í raun svo ótrúleg að engum handritshöfundi, ekki einu sinni í Hollywood, hefði dottiö í hug aö setja neitt þessu líkt á blað. Allar líkur mæla gegn því að söguþráður á borð við þann sem notaður var í kvik- myndinni Champions geti átt við nokkur rök að styðjast, en þó er vert að minnast þess að raunveruleikinn er iðulega lygilegri en skáldskapur. John Hurt kom einn til greina Bob Champion ritaði sjálfur bókina Champion’s Story og á henni er handrit kvikmyndarinnar Champions byggt. Þegar John Irvin valdi leikara í aðalhlutverkið fannst honum enginn annar en John Hurt koma til greina. Hurt er sjálfur ákaf- ur hestamaður og tók verkefninu fegins hendi. Hann virtist líka kæra sig kollóttan um að vera krúnurakaö- ur en það var óhjákvæmilegt til að sýna aukaverkanir krabbameins- lyfjanna. Raunar var þetta ekki í fyrsta skiptiö sem Hurt missir hárið því sama gerðist þegar hann lék fíla- manninn, John Merrick, í kvikmynd- inni The Elephant Man. Þá var ókleift að festa nauðsynlega grímu og farða á hærðan mann. John Hurt virðist búa yfir einstök- um hæfileika til að túlka persónur á borö við Bob Champion og John Merrick og hann skilur sársauka og andlega neyð öörum leikurum betur. John Hurt hefur líka fengið að þola ýmsar raunir í eigin lifi og sorgleg- asti atburðurinn henti án efa aðeins nokkrum vikum áður en taka Champions hófst. Þá datt sambýlis- kona Hurt um fimmtán ára skeið, franska fyrirsætan Marie-Lise, af hestbaki og beið bana. Þessi atburður aftraði Hurt ekki frá því að takast á við hlutverk knapans og ef til vill endurspeglast í kvikmyndinni barátta Hurts við sorgina. Stórkostlegur leikur John Hurt forðar Champion frá allri væmni og í rauninni ætti hún að geta orðið f jölda fólks mikil hvatning. Bob Champion fannst hann hafa boðskap aö flytja heiminum og að loknum kappreiðun- um Grand National 1981 sagði hann: „Eg tók þátt í keppninni vegna allra sjúklinganna sem enn liggja á sjúkrahúsi og fólksins sem annast þá. Eg vona bara að sigur minn sýni þeim að alltaf er von og að allar orrustur má vinna.” -SKJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.