Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Blaðsíða 8
8 DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984. Frjálst, óháö dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stiórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstióri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuöi 250 kr. Verö í lausasölu 22 kr. Helgarblaö25 kr. Smákóngur gabbar þingmenn Mörg dæmi sýna, aö stjórnmálamenn þjóðarinnar á Alþingi eiga erfitt með að standast snúning embættis- mönnum, sem búa til lagafrumvörp fyrir þá. Slík frum- vörp fela oft í sér aukin völd hinna sömu embættismanna og stofnana, sem þeir veita forstöðu. Sem dæmi um ástandið má nefna meðferð allsherjar- nefndar efri deildar Alþingis á frumvarpi, sem nokkrir embættismenn sömdu fyrir dómsmálaráðherra. Felur frumvarpið í sér, að opinberar stofnanir þurfi ekki lengur að birta gjaldskrár sínar opinberlega. Allsherjarnefndin leitaði álits Sambands íslenzkra sveitarfélaga, Sambands íslenzkra rafveitna og Hafnar- sambands sveitarfélaga, sem allt eru opinberir aðilar, er vilja hafa lög sem þægilegust fyrir sig. Enda mælti allsherjarnefnd með samþykkt frumvarpsins. Einum rómi! Þessari nefnd Alþingis datt ekki í hug að leita álits á hinum vængnum, hjá viðskiptavinum þessara stofnana. Til dæmis var ekki beðið um álit Neytendasamtakanna, þótt sumar opinberar stofnanir séu þekktar að fyrirlitn- ingu á rétti neytenda gagnvart þeim. Sem dæmi um þessa fyrirlitningu má nefna, að Rafmagnsveita Reykjavíkur og Hitaveita Reykjavíkur eru hættar að sýna einingaverð á áætlunarreikningum þeim, sem þær senda notendum. Þeir dólgslegu reikning- ar stinga mjög í stúf við hliðstæða bandaríska reikninga, sem við höfum birt hér í blaðinu. Formaður Neytendasamtakanna, sem er nýkominn úr kynnisferð um Bretland, skýrði frá því hér í blaðinu í fyrradag, að þar í landi væri síminn neytendum þyngstur í skauti allra opinberra stofnana. Teljaraskref og annar ófögnuður benda til, að svo sé einnig hér á landi. Embættismenn símans hafa greinilega haft tögl og hagldir í nefnd, sem bjó til fjarskiptafrumvarp, er samgönguráðherra hefur mælt fyrir á Alþingi. Frumvarpið grunnmúrar einokun símans á fjarskiptum utanhúss og gerir meðal annars öll kapalkerfi ólögleg. Til þess að villa um fyrir stjórnmálamönnum frumvarpsnefndarinnar og Alþingis segir í greinargerð frumvarpsins, að það taki ekki afstöðu til kapalkerfa, enda séu á döfinni breytingar á útvarpslögum, sem kunni síðan að leiða til breytinga á f jarskiptalögum. Sama grandaleysi kom fram í ræðu samgönguráðherra um frumvarpið. Hann benti þar á kapalkerfin, sem tekin hafa verið í notkun víða um land, og hélt því fram, að fjar- skiptafrumvarpið gengi í sömu frjálsræðisátt og útvarps- lagafrumvarpið, sem sefur á Alþingi. Gallinn er sá, að það eru frumvörp, sem verða að lögum, en ekki góðviljaðar greinargerðir eða framsögu- ræður, sem fylgja þeim. Og í nýja fjarskiptafrumvarpinu er hreinlega felld niður heimild, sem ráðherra hefur nú til að veita öðrum en Símanum leyfi til f jarskipta. Sigfús Björnsson prófessor sagði nýlega í útvarps- erindi, að frumvarpið gerði einkarétt símans á fjar- skiptakerfum og þar á meðal kapalkerfum ótvíræðari en nokkru sinni fyrr. Lokað yrði smugunni, sem opnast hefði við nýju útvarpslögin og óskerta ráðherraheimild. Jón Skúlason símamálastjóri hefur sem sagt gabbað stjórnmálamennina. Hefði þó mátt ætla, að þeir hefðu nokkra reynslu af einræðishneigð smákónga í stétt embættismanna og kynnu að vara sig á henni. Frumvörp- in um gjaldskrár stofnana og fjarskipti benda til, að svo sé ekki. Jónas Kristjánsson. DV Fgalla- umfjöllun Þaö kom mér á óvart, þegar ég leit inn á skrifstofuna, aö sjá hann sitja meö pennann á lofti, kominn úr jakkanum og meö skyrtuermamar uppbrettar. Hann var greinilega að vinna og þaö af nokkrum krafti. Eg reyndi aö fela undrun mína, því annað heföi veriö ókurteisi, en gat þó ekki annaö en spurt hann hvað hann væri aö gera. — Minnstu ekki á þaö, félagi! Ekki ógrátandi að minnsta kosti. Þaö er allt oröiö vitlaust hérna og viö sjáum ekki fram úr verkefnunum. Eg tjáöi honum samúö mina og spurði hvort þessi snöggu, nánast heiftarlegu viðbrigði, heföu ekki farið illa meö heilsu hans. — Blessaöur vertu, ég er alveg aö farast! Sef ekki um nætur, hvað þá ég nái aö blunda hér! Ég hef ekki komistá kaffihús í marga daga. Það var einhver undarlegur tónn í rödd hans, eins og raddböndin væru þanin til hins ýtrasta og aö því komin að slitna. Hann var grár í andliti og augun voru blóöhlaupin. Þegar ég leit á það sem hann hafði verið að skrifa sá ég aö skriftin var ólæsileg, svo titrandi var hún. Þegar hann Úr ritvélinní Ólafur B. Guðnason — Þetta er alveg voöalegt, maöur, viö höfum svo mikið aö gera. 011 þessi fjöll, og ekkert hægt aö selja! Eg skal bara segja þér þaö að ég er að veröa vitlaus á þessu, alveg vit- laus. — Fjöll? Hvaö eruð þið eiginlega við?! Það er komið kjötfjall! Það er komiö smjörfjall! Og þaö eru komnir myndarlegustu osthólar! Við getum engan veginn losnað viö þetta allt saman, engan veginn! Nú var hann ekki lengur fölur í andliti heldur kafrjóöur og þegar þjónustustúlkan kom með jaröar- berjatertuna leit hann ekki viö góðgætinu en hélt áfram og talaði nú hratt og hátt en ógreinilega. — Ef viö ekki losnum við þessi fjöll fljótlega verða þau hæstu fjöll á landinu. Viö verðum að skrifa landa- fræðina upp á nýtt og gleyma Hvannadalshnúki. Hæsti tindur landsins verður Hryggjatindur. — Þú þarft ekki aö hafa áhyggjur af landafræðinni! Mér skilst að þaö sé búiö að legg ja hana niöur. — Hvað þá um landkynninguna? Hvaö um túristana? Við verðum aö skrifa alla bæklingana upp á nýtt! Það er einmitt þaö sem ég er aö gera núna! Hugsaðu þér auglýsinga- myndir af fuglalífi í Nautahakks- mýri? Eg reyndi það, en gat ekki. — Og hvaö með kynningar á land- inu fyrir fjallgöngumenn? o reyndi aö kveikja sér í sígarettu varð ég aö koma honum til hjálpar því hendur hans titruðu svo að endi síga- rettunnar og loginn voru aldrei á sama staö. Ástandið var greinilega oröiö alvarlegt og ég sá að hér dugöu engin ráö minni en heillaráö. — Komum á kaffihús! — Já, komum... nei, ég kemst ekki, égverðað... — Ekkert múður, þú klárar ekkert nú. Við förum bara á kaffihús og fáum okkur jaröarberjatertu meö rjóma og kaffi og vindla og ræöum umfjárlagagatið. Hann var dálitiö tvistígandi yfir þessu í fyrstu en ég nefndi jaröar- berjatertuna aftur og þá gafst hann upp. En á leiðinni út læddist hann með veggjum og lét ógert aö tilkynna simastúlkunni um f erðir sínar. Viö komum okkur fyrir viö gott borö og þjónustustúlkan lofaði aö koma fljótt með tvær sneiðar af jaröarberjatertunni góöu. En áöur en mér tókst aö hefja umræðumar um fjárlagagatiö var hann kominn af stað. að gera þarna i ráðuneytinu? Selja land? — Bara viö værum aö því. Hann áttaöi sig of seint á því hvaö hann haföi sagt og leit flóttalega til hinna gestanna ef ske kynni að ein- hver þeirra heföi verið aö hlusta. Svo hallaöi hann sér yfir borðiö og hélt áfram og talaði lágt. — Þaö er einkennilegur andskoti að hér má ekki selja þaö sem eftir- spum er eftir! En það sem menn ekki vilja sjá, því reynum viö aö koma út og meö sem allra mestu tapi! — Hvaöáttuviö? — Hér er landslag sem útlending- ar vilja sjá en viö gerum þeim eins erfitt fyrir meö þaö og viö mögulega getum af því okkur er illa við útlend- inga. Og af því okkur er illa við útlendinga viljum við aö þeir éti allt kjötið sem við höfum ekki lyst á. Og af því útlendingarnir vilja ekki kaupa það veröur okkur enn verr við útlendinga.... — Og hvaö kemur þetta landslagi við? — Hvaö kemur þetta landslagi „Fjallgöngumönnum er ráðiö frá því aðreynaaðgangaáSmjörfjallið aö degi til vegna hættu sem stafar af sólbráð!” — Þú verður nú að viðurkenna að það er kostur fyrir þá sem fara í göngutúra um Osthólana. aö þurfa ekki að hafa með sér álegg! Osta- skeri ernóg! — Þú hlærö! Þetta er alvörumál! Við stöndum hér frammi fyrir vandamáli sem gæti valdiö því aö íslensk menning liöi undir lok ef viö finnum ekki lausn á því, og það fljótt. Það fór svo aö hann mætti ekki meir í vinnu þann daginn því það rifjaðist upp fyrir honum að hann átti koníak heima. Viö fórum og sóttum flöskuna og segir ekki meir af ferðum okkar nema hvað um kvöld- matarleytið kallaöi hann upp: — Eg er sko enginn Islandsmann! Skömmu síöar hittum viö hundeig- anda sem læddist með besta vin sinn um öngstræti. Og minn hrjáöi kunn- ingi hljóp á eftir hundinum, jarmandi djöfullega og gerði bless- aöa skepnuna svo hrædda að eigand- inn varð aö bera hana heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.