Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Page 9
r'nrninoiniiM un DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984. Ríkisstjórnir eiga sína hveiti- brauösdaga. Almenningur er ekki samdauna áróðri stjórnar eða stjóm- arandstööu og trúir slagoröum var- lega. Tilhneiging almains kjósanda fyrst eftir að ný stjórn hefur verið mynduð er að segja sem svo: Gefum henni tækifæri. Látum sjá, hvað hún getur. „Þetta er einkum uppi á teningnum, þegar við mikinn efna- hagsvanda er að etja. Þessi ríkis- stjóm og hin næsta á undan hafa not- ið góðs af þeirri ríkjandi afstöðu, að viðkomandi samsteypa sé „hiö skásta, sem völ sé á” Strax eftir myndun ríkisstjómar dr. Gunnars Thoroddsens var gerð skoðanakönn- un, sem sýndi, að stjómin naut með eindæmum mikils fylgis. Grundvöll- ur þess var einmitt sá, sem hér greindi að framan. Skoðanakönnun DV um núverandi ríkisstjóm Stein- gríms Hermannssonar sýndi fyrir skömmu, að stjórnin hafði aukið fylgi sitt frá því í október. Hveiti- brauðsdagar þessarar ríkisstjórnar standa enn. Eftir kjarasamningana er rikjandi viðhorf, að enn skuli gefa stjórninni tækifæri til að sýna, hvers hún er megnug. En hversu lengi standa hveiti- brauðsdagarnir? Nú er hætt við, að þeim farí að ljúka. Ríkisstjómin stendur andspænis vandkvæðum, sem líklegt er, að hún ráði ekki við án minnkandi vinsælda. Hér er átt við gatið margfræga. Varðhundar Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra lagði í haust fram fjárlaga- frumvarp, sem almennt var hælt sem „niðurskurðarfrumvarpi”. Sam- kvæmt því átti að skera niður rikis- rekstur. Ríkið skyldi spara. Að vísu var fljótt bent á, að ekki var allt sem sýndist um stærð sparnaðarins. Margir ljótir póstar ríkiseyðslu voru ósnertir. Fjármálaráðherra sté í stól fyrir rúmum mánuði og lýsti því yfir, að meiriháttar „gat” væri á ríkis- rekstrinum. Yfir milljarös gat var fyrir frá fyrra ári. Menn greinir á um tölur, en nefnt er, að gatið í ár kunni aö vera 1,8 milljarðar. Verði þessu ekki að meginhluta mætt með sparnaði, stefnir í, að ríkisrekstur verði einhver hinn mesti í ár, sem um getur, í skjóli frjálshyggjupostul- anna. Hér í blaðinu hefur verið bent á, hvemig mæta mætti þessum vanda með niðurskurði rikisútgjalda, spamaði. En þar liggur vandinn. Ráðherrar standa sem varðhundar um útgjöld sinna ráöuneyta, kalla „ekki ég” og benda á hina. Hefði ríkisstjórnin til að bera ein- urö til að mæta hallanum með eigin spamaði, mundi þjóöin þakka henni með áframhaldandi stuöningi. En hætt er við, að einurðina skorti í reynd. Hvað á þá að gera? Aukin skatt- heimta er annað úrræði eða uppsöfn- un lána Seðlabanka og erlendis. Sláttur ríkisstjórna Aukinn „sláttur” hins opinbera gerir ríkisstjórnina tortryggilega og er háskalegur. Skuldir þjóðarinnar erlendis eru á mörkum þess, sem unnt er án hættu. Segja má, að ekki sé unnt að ætlast til þess, að lands- menn axli nú stóraukna skattbyröi ofan á kjaraskeröinguna, sem á undan fór. Því verði að fresta ein- hverjum hluta vandans og þá með lántökum. Landsmönnum mun þó finnast, að með slættinum setji ríkis- stjómin ofan og vafasamt sé að verð- launa hana fyrir góðan árangur í viðureign við efnahagsvandann, eins ogþjóðin hefurgert. Slátturinn vinnur gegn verðbólgu- markmiðunum. Seölaprentunin eykur á veröbólgu. Því má með réttu Almenningur hefur þó altént efni á að bregða sór á skiði. -DV-mynd: GVA. Hveitibrauðs- dögunum að Ijúka segja, að ríkisstjórnin geri sjálf hið vonda, sem hún vill ekki. Almenningi blæöir vegna baráttu stjómarinnar við verðbólguna, en ríkisstjómin stundi á meðan athæfi, sem eykur á veröbólguna. Aukin skattheimta verður enn síður til að auka eða viöhalda vin- sældum rikisstjórnarinnar. Þetta er sú ríkisstjórn og sá fjármálaráð- herra, sem hét, að skattbyrði skyldi ekki aukin. Dregið hefur úr yfirlýsingum ráð- herra um þetta. Þó sagði Matthías A. Mathiesen viðskiptaráðherra eitt- hvað í þeim dúr nýlega, en síðar var taliö, að hann hefði einungis átt viö tekjuskattinn í þeim yfirlýsingum sinum. En landsmenn eru illa komnir til að bera þyngri skatta og er þá nokk- uð svipað, hvaða skattar yrðu valdir. Lúxus hástéttarmanna Skattar á bifreiðar hafa mikið Haukur Helgason adstodarritstjóri veriðnefndir. Talað hefur verið um hækkun bensíngjalds, aö leggja 2,50 krónur á hvem bensínlítra. Forsætisráðherra segist þó fremur vilja nýjan þunga- skatt á bíla, eitthvað svipað því, sem í fyrra var kallaö „krónugjald” og skyldi vera króna á hvert kíló í þyngd bifreiöar. I kjaraskerðingar- lotunni hefur innflutningur bifreiöa minnkaö hvað mest. Bifreiðareign er i vaxandi mæli lúxus, sem hástéttar- menn einir geta leyft sér. Líklega ættum við að komast hjá aö fara lengra á þeirri braut en orðið er. Bif- reiðaeigendur hér á landi bera nú þegar með ólíkindum háa skatta og gjöld til ríkissjóös. Tekjuskatturinn óhæfur Sjálfstæðismenn lofuöu fyrir kosn- ingar að f ella í í áföngum niður tekju- skatt á almennar launatekjur. Tekjuskatturinn er óréttlátur skattur, sem ákveðinn hluti laun- þega ber. Fjölmargir sleppa. Hart væri, ef ríkisstjórn, sem sjálfstæðis- menn bera uppi að mestu, færi að auka tekjuskatta frá því sem er. Það gildir um hugmyndir um að hækka sjúkratryggingagjald úr tveimur prósentum í fjögur. Það væri harð- asta form hækkunar tekjuskatts, sem allir skattgreiðendur bæru. Sama gildir um tillögur um nýjan skyldusparnað á „hátekjur”, sem í reynd legðist einnig á miðlungstekj- ur. Við minnumst þess, að Albert Guðmundsson og Eggert Haukdal hindruðu á sínum tíma, að slíkur skyldusparnaður yrði lagður á í tíð stjómar dr. Gunnars. Með ólíkind- um væri, að Albert stæöi nú að slíku. Tekjuskatturinn er alltof ranglátur til þess, aðá hinum verði byggt, enda þess vegna sem sjálfstæðismenn hafa beitt sér fyrir niðurfellingu hans að frumkvæði Gunnars Schram. Verðhækkanir Hugmyndir eru uppi um að af- nema sumar undanþágurnar frá söluskatti og jafnvel hækka söluskatt almennt. Ef slíkt skyldi notaö við almenna „gatafyllingu” í fjárlögum, væri það nú erfið aðgerð, sem þýddi fyrst og fremst hækkun brýnustu nauðsynja almennings. Talað er um að draga úr niöur- greiðslum, sem er miklu hentugri leiö. Niðurgreiðslur skekkja verð- myndunina og eru þjóðhagslega óheppilegar. Þær eru fyrst og fremst styrkur við landbúnaðinn. Því má slá tvær flugur í einu höggi með minnk- un og helzt afnámi niðurgreiðslna og enn frekar útflutningsuppbóta, laga verðmyndunarkerfið og nota það, sem fæst við tilfærsluna, til tekju- bóta fyrir láglaunafólk. Þetta vinnst með því að fara þessa leið aö nokkru til að mæta þvi, sem ríkissjóður lagöi af mörkum viö kj arasamningana. Aftan að fólki Margt fleira er rætt í þessu sam- bandi. En í reynd virðist ríkisstjórn- in nú oröið liklegri til að hafa ekki einurð til að fara niðurskurðar- og spamaðarleiðina nema í litlu. Stjóm- arþingmaður sagði við mig í vikunni, að ríkisstjómin þyrfti að hafa kjark til að fylla í fjárlagagatið aðallega meö skattahækkunum. En sá kostur er óvænlegur í samanburöi við hressilegan niðurskurð rikisút- gjalda. Ella fara hveitibrauðsdagar ríkis- stjórnarinnar að styttast. Þjóðin mun taka illa skattahækk- unum ofan á kjaraskeröinguna. Rikisstjórnin ávann sér traust með því að greiða fyrir hóflegum kjarasamningum og naut til þess skilnings skynsamra verkalýðsfor- ingja. Þeir hinir sömu hafa nú þegar séð ástæðu til aö andmæla tekjuskatts- hækkun, sem ríkisstjórnin knúði fram til að mæta auknum tekjum vegna þess að samningarnir urðu umfram „ramma” stjómarinnar. Því mótmælti einnig stjórnarliðinn Olafur Jóhannesson, svo að bragð var aö. Ríkisstjómin ætti ekki að koma frekar aftan að því fólki, sem tók trúanleg orð ráðherra við samn- ingagerðina. Þjóðin mun einnig, þótt seinna komi fram, lítt sætta sig viö aukna skuldasöfnun erlendis. Það yrði ljótur blettur á ferli rikisstjórnarinn- ar, sem ætlaði aö leiða okkur úr vandanum og hefur gert talsvert til þess. Því kann ríkisstjómin aö detta niður um fjárlagagatið. Eina björg- unin er í raun, að ráðherrar sýni, að þeir séu eitthvað skárri en ráðherrar hafa veriö um árabil, og beiti hnífn- um við niðurskurð í eigin ráðuneyt- um og þeirra sviðum. Haukur Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.