Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Qupperneq 14
14
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1884.
heppnaðir
tónleikar
í Safari
Aðrir tónleikamir í tónleikaröðinni
1984 voru haldnir fimmtudaginn 22.
mars í Safari. Þarna var um að ræða
þrjár hljómsveitir, tvær þeirra
kvennahljómsveitir.
Sú þriöja ber nafnið Dá og minnist ég
þess ekki að hafa heyrt hana nefnda
fyrr, gott ef þetta voru ekki fyrstu tón-
leikamir hennar.
Það er leiðinlegt að mæta klukkan
hálfellefu og þurfa að bíða í klukku-
tíma þar til sveitimar hef ja spilirí sitt.
En þaö er ennþá leiðinlegra aö mæta
þegar allt er komið á fullt. Eg tók því
engan séns en mætti snemma og fékk
mér sæti, slappaði af og hugsaði málin
á meðan Dúkkulísumar létu bíða eftir
sér.
Músíkin var á dúndrandi fullu og
von bráðar tók ég eftir því að músík-
flytjendur vora eingöngu kvenfólk og
út frá því veitti ég því athygli aö kven-
fólk var næstum eingöngu meðal
starfsfólks.
Eg var ekki sá eini sem veitti þessu
athygli því eitt efnilegasta rímnaskáld
fyrr og síöar kastaöi fram eftirfar-
andi:
Kvenfólk í klefa (plötusn.)
kvenfólk á bar
Kvenfólk á sviði
kvenfólk alls staðar.
Það var meira að segja stúlka í
miðasölunni.
Þaö þarf varla að fylgja sögunni en
þetta ljóð kallar hann Kvenfólk.
Jamm.
Enn voru fáir og eina dægradvölin
var að horfa á ljósin snúast eftir tómu
dansgólfinu. Skyldu rafeindimar ekki
vera hissa á því, þar sem þær þeytast
út úr ljósgjafanum, að finna ekki fyrir
hnakka og sveittum skalla brjálaðra
dansara sem vanir era að engjast
fram og aftur án þess að nokkurt vit sé
ígjörðumþeirra.
Rafeindagreyin spyrja sjálfar sig
hvar þær muni lenda um leið og fallið
veröur meira og óvissan eykst. Er aö
koma heimsendir?
Og svo skella þær með látum á tómu
gólfinu og þeytast út í loftið og verða aö
engu.
Næsta kvöld era skyldmenni þeirra
mætt og þá era hnakkar og skallar á
staðnum, þetta var þá enginn heims-
endir, aöeins grimm örlög nokkurra
rafeinda.
Klukkan var orðin ellefu og ég kast-
aði tölunni 15 fram hvað mætingu varð-
aði. „Allur ágóöi rennur til SATT” las
ég einhvers staðar. Hehe.
En þetta reddaðist því þessar hugs-
anir mínar höfðu vart flogið út í loftið
fyrr en liðið fór að streyma ókerfis-
bundiö inn í salinn. Og svo komu
Dúkkulísumar upp á sviðið, kynntu
fyrsta lagið og byrjuðu.
Fyrsta lagiö ber annaðhvort nafnið
Stoppið eða Stop it og er annaðhvort
sungiö á ensku eða íslensku. Málið er
sem sagt opið fyrir öllum góðum uppá-
stungum, svo rúlluðu lögin eitt af ööru,
ósköp keimlík sum hver og ekkert sem
ég get sagt að standi virkilega upp úr.
Tónlistin er kraftmikið rokk, svolítið
í anda þeirra nafntoguðu Go Go’s
stelpna. I heildina tekst þeim vel upp,
með trommuleikarann sem besta
mann. Gítarleikarinn er drífandi og
kraftmikill, en hún ætti að hugsa sig
um tvisvar áður en hún tekur næsta
sóló. Eg gat ekki heyrt betur en henni
mistækist í öllum sem hún tók þetta
kvöld. Söngvarinn hefur fallega rödd,
ekkert sérkennilega á neinn máta en
samt fallega. Það mætti að ósekju
heyrast hærra í henni.
Eg á i svolitlum erfiðleikum með að
heyra hvers vegna bassaleikaranum
var boðin staöa í Grýlunum er Herdís
kvaddi. Eg gat lítið heyrt sérstakt við
leik hennar þó ég ætli ekki að segja að
hann sé beint slæmur. Hljómborðið
spilar rullu annarrar fiðlu og lítið
kveður aö því.
Viöbrögð áhorfenda og heyrenda við
leik stúlknanna voru góð og fengu þær
lófatak mikið að leik loknum og svo
taktfast að þær urðu upp á svið aftur
aðhverfa.
Þær höfðu greinilega ekki gert ráð
1 =
■=
mm
'an^^ðyiilunHffiMlniilÍÍÍ
í hjÓRUM ORÐUM SAGT:
Teppagerðarmennirnir á
ÁLAFOSSI eru atvinnumenn,
enda ekkiá færiannarra að vefa
________Irleí imn Á mil/l
• (
o
• •
•V '■'-rr- — ~
fjárhags og fota
KRÓNÝTEPPIN, ódýr og mjúk.
<w
Staðgreiðsluverð:kr.488.-pr,m2af rúllu
Ekkert jarm!
ALAFOSSBUÐIN
VESTURGOTU2 f S:22090