Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Side 21
w?«i WAWI rf:ÍTHOAQHAíiIIA 1 .VG
DV. LAUGARDAGUE 31. MARS1984.
ÍH
21
Með
snuð
Verður það ekki bara að segjast eins og er: Þessi hestur er
með snuð. Og það ekkert afminna taginu. Knapanum sem
á hann finnst hann værari með túttuna. Ekki vitum við
hvort hrossið sefur í rúminu sem það situr í en það væri svo
sem eftir öðru.
1. Hvar er Luanda höfuðborg?
1. Rétt eftir jólln lést níræður
spánskur málari. Hver var það?
3. Hvers lensk var söngkonan Maria
Cailas?
4. Hver var Luls Bunuel?
•fa9tíS5|[3iBpnXni5j|An jmfsnnds
■jjsijS jba mfH 'E
•OJJfV IIBOf 'Z
•bi93uvj 't
KONT0RSINS SIÐAPISTILL
til ófrávíkjanlegrar eftirbreytni kontóristum
I. Guösótti og góöir siðir eru eins almennilegs kontórs und-
irstaöa.
II. Viðverupligt kontórista er nú aöeins frá 6 aö morgni til
6 aö kveldi, og þess utan aðeins á virkum dögum. Sunnu-
dagar brúkist til kirkjugöngu. Hvern morgun skal á aöal-
kontór sungið sameiginlegt Faöir vpr.
III. Sé þaö í Faktorsins þénustu skal útfærð sú yfirtíð hverja
hann telur hæfilega.
IV. Sá kontóristi hverja lengsta hefur þénustu skal bera an-
svar á allri tiltekt og hreinlæti. Skulu lærlingar og svein-
ar melda sig hjá þeim hinum sama 40 mínútum fyrir Faö-
ir vor, item slculu þeir standa til þénustu reiöubúnir aö
vinnudegi enduöum.
V. Glysfatnaöur er eigi tilhlýöilegur og skulu kontóristar
forðast skæra liti og vera í heilum sokkum. Galosjur og
frakka skal eigi brúka á kontór, þar sem kontóristum eru
heimil afnot af kamínu. Þó má í illviðrum brúka trefla og
húfur. Aö auki er til þess ætlast af kontóristum, aö þeir í
vetrartíö skaffi meö sér svo sem eins og 4 pund af kolum
ádag.
VI. Allt snakk er á vinnutíma forboðiö. Veröi kontóristi að.
því staöinn aö reykja sígar, taka til sín alkóhól i einhverri
mynd, heimsækja spilastofur eða pólitískar stofnanir, á
hinn sami það á hættu, aö hans æra, sjálfsmeðvitund,
heiöarleiki og einlægni veröi í efa dregin.
VII. Kontóristum ieyfist aö nærast milli kl. 11.30 og 12.00. Þó
er óleyfilegt aö slík athöfn trufli vinnu.
VIII. Viöskiptavinum og eigendum ber aö heilsa meö tilhlýð-
anlegri viröing og undirdánugheitum.
IX. Sérhver kontóristi er pligtaöur til aö halda sinni heilsu
sem bezt, enda falla launagreiöslur niður verði þeir
krankir. Því veröur aö leggja þar sérstaka áherzlu, aö
hver og einn leggi.til hliöar af sínum launum eina væna
summu til þess aö mæta slíkri óáran og einnig til aö bú-
ast til ellilífs, þannig, að þegar af þessum framantöldu
orsökum um vinnutap veröur aö ræöa, sé sá hinn sami
ekki neyddur aö segja sig til sveitar.
X. Aö endingu skal lögö áherzla á örlæti þaö, sem í ofan-
greindu er faliö af Faktorsins hálfu. Þar á móti komi
náttúrlega að verulegu levti aukin afköst kontórista.
Þetta rak á fjörur helgarblaðs. Nú er bara að lesa og
læra, gott fólk.
Gettu
nit
Loksins raunverulegt
vasatafl
Það er líklega ekki ráðlegt að
reyna aö tefla hraöskák á þessu
borði. Það gæti orðið talsvert stress-
andi. Borðið er 1,25 sentímetrar á
hæð og mun vera minnsta taflborð í
heimi. Taflmennirnir eru úr stáli og
þeir stærstu eru um 0,25 sentímetrar
áhæð.
Það voru fimm úragerðarnemar
sem eyddu 400 tímum í að gera taflið
og þeir bíða spenntir eftir því hvort
þeir komist í næstu útgáfu heims-
metabókar Guinness.
ÞU HEFUR AKVEÐIÐ
• •
AD TOLVUVÆDA?
Ef svo er, hefur þú þá hugleitt alla nauðsynlega þætti til að hún
komi þér að fullum notum? Já við eigum við alla!
Spurningar eins og: Hver er þörfin? Hvað borgar sig að tölvu-
væða? Hvað ætla ég að fá út úr tölvunni? Hvað gæti ég fengið út
úr henni? Hvernig get ég hagnýtt mér það? Hefur tölvan áhrif á
fjölda stafsmanna? Hefur hún áhrif á stærð húsnæðisins? Er
hreyfingin á vörulagernum eðlileg? Hvað get ég sparað með
tölvunni? Hver gæti aukningin orðið í framleiðslunni?... Við
getum haldið áfram með þér. í framhaldi af þessu kemur val á
réttum forritum, á þeim byggist útkoman.
Við hjá Rekstrartækni höfum starfað á annan áratug við rek-
strarráðgjöf og tölvuþjönustu. í tölvudeildinni er höpur sér-
menntaðra starfsmanna sem eingöngu vinnur við gerö, þróun og
viðhald forrita, því er líklegt að við gjörþekkjum hliðstæður í
þtnum rekstri og getum ráðlagt þér um torrit. Hafðu samband,
við förum í gegn um alla þættina með þér...
- EFTIR ÞAÐ GETUR ÞU
ÁKVEÐIÐ HVAÐA FORRIT
OG TÖLVU ÞÚ KAUPIR.
] rekstrartækni sf.
J Tækniþekking og tölvuþjónusta.
Síðumúli 37, 105 Reykjavík, sími 85311
Rekstrartækni sf. er aðili að FÉLAGIÍSLENSKRA REKSTRARRÁÐGJAFA,
FÍRRogveitir ráðgjöf óháð tölvuseljendum.