Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Síða 23
REIDSLUKOllT • KKÍTARKOKT • KKEDITKOKT • OKLIDSLIKOKT • KRÍTARKORT
ARGVÆTTUR
4 OGNVALDUR?
22 þilsund manns með kort í dag
Einnig var þaö svo hjá Visa að fyrsta
úttektartímabilið var frá 10. desember
fram til 17. janúar. En einhvern veginn
tókst að greiða söluskattinn og kaupmenn
létu ekki mikið heyra frá sér í þessu sam-
bandi í nokkurn tíma.
Verða korteigendur
gjaldþrota?
En eins og fyrr segir, voru margir sem
sögðu að krítarkortaeigendur ættu eftir að
lenda i vandræðum þegar að skuldadögun-
um kæmi og við blasti gjaldþrot hjá ótal
heimilum. Allir biðu spenntir eftir því aö
úr þessu yrði skorið. Ymsar sögur voru í
gangi um krítarkortamenn sem létu
greipar sópa í verslunum og ímynduðu sér
að þeir væru forrikir. Ein sagan var t.d. sú
að gömul kona með krítarkort hefði farið í
bæinn að versla. Þegar verslunarferðinni
var lokið var hún búin áð kaupa vörur
fyrir um 90 þúsund krónur. Hún skildi ekki
nákvæmlega kerfið og sagði seinna, þegar
upp komst um kellu, að hún hefði ekkert
skilið í því hversu almennilegir kaup-
ménnirnir hefðu verið. Þá bárust einnig
þær fregnir að litlu Jónarnir væru nú
farnir að kaupa alls kyns munaðarvörur
sem þeir hefðu aldrei látið sig dreyma um
áður en þeir fengu kortin í hendurnar. Við
látum ósagt um sannleiksgildi þessara
sagna.
I byrjun febrúar kom að skuldadög-
unum, en forráðamönnum beggja fyrir-
tækjanna bar saman um aö skihn hefðu
verið mjög góð og ekkert vandræöaástand
ríkti og ekki voru nein gjaldþrot fyrir
sjáanleg. Að sjálfsögðu var nokkuð um
vanskil en ekki svo mikil að þaö væri óeðli-
legt. En það kann að vera að þetta segi
ekki alla söguna. Líklegt er að þeir sem
tóku út á kortin í desember hafi þurft að
nota mánaðarlaunin í að greiða skuld sína
í febrúar og þá hafi víða ekki verið miklir
peningar eftir. Hjá þeim sem svo var
ástatt var eina undankomuleiðin að halda
áfram að nota kortið. Þetta kallast
„revolving effect” eða lauslega þýtt rúll-
andi áhrif. Þetta þýðir að öll eyösla kort-
hafans er fyrirframeyðsla. Hann er því
flæktur í netið og verður að nota kortið sitt
hvort sem honum líkar betur eða verr. Ef
korthafi kemst í greiðsluþrot gagnvart
krítarkortafyrirtækjunum á hann það á
hættu aö missa kortið, svo það borgar sig
að fara hægt í sakirnar og eyða ekki um
efni fram.
I Svíþjóð eru margar tegundir krítar-
korta í notkun og er talið að þar séu um 2
milljónir korta í gangi. Þar hafa
margir korthafar komist í greiðsluþrot. Og
þar var skipuð nefnd sem átti að hafa þaö
verkefni að reyna að leysa þann vanda
sem þessir einstaklingar voru komnir í.
Þessi nefnd hefur lagt til m.a. aö þeir sem
hyggjast fá sér krítarkort gangi í gegnum
eins konar reynslutímabil og sýni fram á
að þeir séu hæfir til að umgangast þennan
greiðslumáta. Þetta ástand hefur ekki
skapast hér m.a. vegna þess að hér eru
enn sem komið einungis tvær tegundir
korta í umferð.
Vandamál kaupmanna
Þeir kaupmenn og aðrir aðilar sem taka
að sér krítarkortaþjónustu verða að greiða
ákveðna þóknun af þeirri upphæð sem
verslað er fyrir með kortunum. Þessi
þóknun er í ákveðnu hlutfalli við þá upp-
hæð sem um ræðir. Nú er þessi þóknun 2—3
prósent. Þessa peninga veröa þeir síðan að
lána í allt að 45 daga vaxtalaust.
Asmundur Stefánsson hjá ASI lagði til
að kaupmenn gæfu þeim sem borguðu
vörur sinar í reiðufé afslátt fyrst þeir gætu
í raun gefið korthöfum þennan afslátt.
Þessi tillaga náði ekki fram að ganga en á
sama tíma fóru að heyrast þær raddir frá
kaupmönnum að korthafarnir sjálfir
greiddu þann kostnað sem kaupmönnum
er gert að greiða þ.e. þóknunina. Þetta
fékk lítinn hljómgrunn hjá krítarkorta-
fyrirtækjunum og sögðu þeir að hér væri
sama fyrirkomulag og erlendis. Kaup-
menn bentu á að ef ekki yrðu gerðar breyt-
ingar væri fyrirsjáanlegt að þessi aukni
kostnaður þeirra kæmi fram í hækkun á
vöruverði. Það væri óréttlátt gagnvart
þeim sem ekki notuðu krítarkortin.
Þessar raddir voru þó ekki háværar fyrr
en nú fyrir skömmu að nítján matvöru-
verslanir tóku höndum saman og ræddu
þessi mál af alvöru. I þessum hópi versl-
ana voru m.a. helstu stórmarkaðirnir hér
á höfuðborgarsvæðinu. Forráðamönnum
þessara verslana var heitt í hamsi og
sögöu að ekki væri hægt aö una lengur við
þaö fyrirkomulag sem nú væri á þessum
viðskiptum. Sumir þeirra vildu ganga svo
langt að samningum við krítarkortafyrir-
tækin yrði sagt upp strax. En svo fór að
lokum að þeir kusu þrjá fulltrúa sína til
þess að hefja viðræður við þessi tvö fyrir-
tæki og fengu þeir það í veganesti að stefnt
yrði aö því að núverandi þóknun sem þeir
verða aö greiða yrði lækkuö. Ef enginn
árangur næðist í þessum viðræðum eru
þessir kaupmenn sammála um að segja
samningum upp við krítarkortafyrirtækin
20. næsta mánaöar. Ef af því verður munu
þessi viðskipti stöðvast í ágúst næstkom-
andi, því uppsagnartíminn er fjórir
mánuöir. Þetta yrði nokkuð stór biti fyrir
krítarkortafyrirtækin að kyngja því
þessar nítján verslanir ráða líklega yfir
um 70 prósent af öllum matvöruviðskipt-
um á höfuðborgarsvæðinu.
Kaupmennirnir segja að með því að
þurfa að greiða þessa þóknun og lána fé í
langan tíma tapi þeir allt að 5 prósent af
þeirri upphæð sem fer í gegnum krítar-
kortaviðskipti. Þetta þoli ekki matvöru-
verslunin því að nú um þessar mundir sé
álagningin í algjöru lágmarki, auk þess
sem álagning á ýmsum landbúnaðar-
vörum sé þaö lág að það borgi sig engan
veginn að selja þær þegar við bætist þessi
greiðslubyrði frá krítarkortunum. Enginn
hafi áhuga á því að vöruverð hækki og
verði að gera allt til aö svo verði ekki.
Margir þeirra vilja helst losna við þessi
viðskipti og telja aö þetta fyrirkomulag sé
út í hött. Meö þessu séu bankarnir í raun
og veru aö koma lánsviðskiptum sínum
yfir á kaupmenn, sem í ófanálag þurfi að
greiða stórfé fyrir aö lána viðskiptavinum
sínum.
Forráöamenn krítarkortafyrirtækjanna
hafa sagt að sú þóknun sem greidd er hér á
landi sé ein sú lægsta sem um getur. Meö
þessum viðskiptum sleppi kaupmenn við
það að láta fólk skrifa hjá sér. Kaupmenn
lendi oft í vandræðum við að innheimta þá
peninga. Það kosti bæði tíma og fyrirhöfn.
En meö krítarkortaviðskiptum fái þeir
alltaf öruggar greiðslur mánaðarlega og
þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af því
hvort þessir peningar innheimtist.
Seinustu fréttir af þessari viðureign eru
þær að aöilar hafa átt viðræður saman. Að
sögn kaupmanna hafa krítarkortafyrir-
tækin tekið vel í mál kaupmanna. Akveðið
hefur verið að viðræður hefjist að nýju í
næstu viku og er liklegt að krítarkorta-
fyrirtækin hafi þá eitthvaö meðferðis til að
bjóða kaupmönnum upp á.
Sama umræða í
Bandaríkjunum
Það er athyglisvert að í Bandaríkjunum,
þar sem maður hefur á tilfinningunni að
krítarkort vaxi á hverju strái, virðist vera
svipuð umræða í gangi. Smávöruverslanir
þar eru uggandi yfir því að greiðslubyrðin
þeirra eigi eftir að færast út í verðlagið. Og
þar hafa komið fram þær hugmyndir að
kaupmenn legöu aukalega á þær vörur
sem keyptar eru með krítarkortum.
Plastkort í framtíðinni
Hér aö framan höfum við einungis
fjallað inn nokkra þætti varðandi þessi
litlu plastkort. Þaö er ýmislegt annað sem
þörf væri á að ræða. Það er óráðið hver
framtíð þessara korta verður. Það er
margt sem bendir til þess aö notkun plast-
korta af ýmsu tagi eigi eftir að aukast
samfara aukinni tölvuvæðingu. Hugsan-
legt er að öll viðskipti smá og stór eigi eftir
að vera gerð með þessum undrakortum.
Slíkt mun án efa auðvelda fyrir í kerfinu,
eða hvaö? En það eru hliðar á þessu máli
sem sumum þykja varhugaverðar. Sá sem
notar kort skilur eftir sig spor á hverjum
staö þar sem hann notar þau. Og þegar
, þetta verður í algleymingi munu tölvurnar
taka við þessum sporum. Sumir benda á
að þegar svo er orðið ástatt verði auðvelt
að komast að því að einstaklingur A fór til
eyjunnar B, borgaöi flugmiða með korti C
. og hótelherbergi með korti D og var að
heiman vikuna í júní. Sjálfur heldur hann
því fram að hann hafi verið heima hjá sér
þennan tíma. Hver segir satt, hann eða
tölvurnar? Það kann aö vera að erfitt
j verði fyrir hann að malda í móinn við
tölvuna, því öll vitum við hvað þær eru ná-
kvæmar. öðruvísi sagt: Þaö er h'klegt að
auðveldara verði að stunda persónu-
njósnir, sem hægt er að nota og einnig mis-
nota.
„Elskan, keyptirðu eitthvað i matinn?" „Já, já, Guðmundur minn, ég
keypti mjög góðan mat og svo notaði ég auðvitað kreditkortin okkar".
„Sigriður mín, þetta er alveg prýðis matur og svo þurfum við ekki að
borga þetta fyrr enn iþar næsta mánuði".