Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Side 8
p 8 Sumardvalarheimili Þeir aöilar sem ætla að starfrækja sumardvalarheimili fyrir börn sumarið 1984 þurfa aö sækja um rekstrarleyfi fyrir 31. maínk. Þar til gerö eyðublöð liggja frammi í Menntamálaráöu- neytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið, 4. apríl 1984. OFFSETL JÓSM YN DUN OG SKEYTING Óskum að ráða offsetljósmyndara sem einnig er vanur skeytingarvinnu. Upplýsingar gefur Ólafur Brynjólfsson. FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Siðumúla 12. UMBOÐSMENN ÓSKAST HAFNIR Upplýsingar hjá Magnúsi B. Einarssyni. Simi 92-6958. ÞÓRSHÖFN Upplýsingar hjá Jónínu Samúelsdóttur. Sími 96-81185. Einnig eru allar upplýsingar á afgreiðslu DV Þver- holti 11, sími27022. GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR UM HELSTU BÍLATEGUNDIR í GREINAGÓÐRI SAMANBURÐAR- TÖFLU Á NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ! Neytendur Neytendur Neytendur ISfií JÍHHA .0 HUÐACHJT8Ö'4 VO DV. FÖSTUDAGUR 6. APRIL1984. Matarreikningar febrúarmánaðar eru ákaflega misháir. Þeir sem tH dæmis veita sér það að kaupa mikið af hátolluðu grænmeti hækka matarreikninga töluvert. Bn erfitt er að neita sér um slikar nauðsynjavörur sem nýtt grænmeti er. . . Heimilisbókhald DV: Sextán þúsund kr. í mat fyrir f imm „Mér datt í hug að taka þátt í heim- ilisbókhaldinu með ykkur þegar ég sá að ég var undir meðaltali í janúar,” segir í einu bréfi sem fylgdi febrúar- upplýsingaseðli. Þessa rödd látum við heyrast til mót- vægis við aðrar sem telja niður- stöðutölur í heimilisbókhaldinu allt of lágar og að þær séu jafnvel friðarspill- andi á heimilum. Eins og greint var frá á Neytenda- síðunni í gær hækkaði landsmeðaltalið í febrúar um 8,2 prósent frá í janúar. 1 febrúar er landsmeðaitaiið 2.285 krónur en var í janúar 2.111 krónur. Meðaltal einstaklinga eftir fjöl- skyldustærðum er ýmist undir eða yfir landsmeðaltalinu. Lægst er meöaltal á einstakling í sjö manna fjölskyldum, 1.189 krónur, sem er alveg ótrúlega lág tala. Vel hefur verið borðað úr frystikistunni þennan mánuðinn, hugsar einhver, sem berst við að lækka matarreikninginn. Einbúinn hæstur En ekki breytum við tölunum. Sem oftast áður er dýrt að búa einn, meöal- tal einbúans er fyrir febrúar 2.862 krónur, hæsta meðaltal mánaöarins. Nokkuð voru samt tölumar frá ein- staklingunum misháar, frá einum kom talan 1.812 krónur og svo öðrum 3.367 krónur. Meðaltal einstaklinga í tveggja manna fjölskyldum er 2.202 krónur sem er þá 4.404 króna matarreikningur hjá tvíbýlingum. Matarreikningur þriggja manna meðaltalsfjölskyldunnar er 7.524 krónur í febrúar, eða 2.508 krónur á mann. Lægsta tala á einstakling í þriggja manna fjölskyldu í febrúar er í bók- haldinu 1.333 krónur en sú hæsta 4.332 krónur. Yfir þrjátíu seölar bárust frá þriggja manna fjölskyldum og út- koman, meöaltalið, er 2.508 krónur. Mismunur yfir 2 þús. kr. Hæsta tala frá fjögurra manna fjöl- skyldu 6r 3.353 krónur fyrir manninn yfir mánuðinn en sú lægsta 1.144 krónur; mismunurinn á þessum tveimur tölum er 2.209 krónur. En meðaltal einstaklings, þegar allir seðlar frá f jögurra manna fjölskyldum eru komnir saman í dálk, er 2.140 krónur. Eftir því er þá heildarmatar- reikningur mánaöarins 8.560 krónur. Ef við reiknum svo hvað matarreikn- ingurinn hefur verið hjá fjögurra manna fjölskyldunni, sem hefur 3.353 krónur á mann, er hann 13.412 krónur. Matarreikningur febrúarmánaðar hjá fimm manna fjölskyldunni hefur verið 11.580 krónur miðað við meöaltal einstaklings í þeirri fjölskyldustærð, 2.316 krónur. En miðaö viö hæstu tölu frá fimm manna fjölskyldu hefur matarreikn- ingurinn farið í 16.165 krónur og lægsti matarreikningur frá fimm manna fjöl- skyldu er 6.950 krónur. Góður mis- munur það. Meðaltal einstaklinga í sex, sjö og níu manna f jölskyldum er hjá öllum undir tvö þúsund krónum. Hjá sex manna fjölskyldunni er meöaltalið 1.970 krónur, hjá sjö manna 1.189 krónur og hjá níu manna 1.883 krónur. Og heildarmatarreikningar hjá þess- um fjölskyldum því 11.820 krónur (6), 8.323 krónur (7) og 16.947 krónur (9). Margir eru óánægðir með meðaltals- tölurnar okkar, telja þær of lágar. Því höfum við nú bætt við fleiri tölum sem skráðar eru í bókhald febrúar- mánaðar. Svo sem sjá má á þeim tölum er matarkostnaður hjá hinum ýmsu fjöl- skyldum ærið mishár en vonandi er að þeir sem telja meðaltalið of lágt, finni samsvarandi tölur við sínar hér að framan. Og svo verður að hafa í huga að meðaltal er meðaltal. -ÞG Kvikmyndahús: Verð á miðum Viö höldum áfram að birta neyt- endamál sem var fjallaö um hjá neytendadeild Verðlagsstofnunar. Verð á bíómiðum — Fyrir nokkru barst fyrirspum vegna verðs á aögöngumiða að kvik- myndasýningu, sem kostaði 90 krónur en ekki 75 krónur, eins og venja var þá. Ekki hafði verið til- kynnt á auglýsingum um sýninguna, að um hækkað verð væri að ræða. Hámarksverö hefur fram að þessu verið á bíómiðum, en kvikmynda- húsaeigendur hafa fengið leyfi hjá Verðlagsstofnun til að hækka að- gangseyri að sýningum, þegar um dýrar myndir hefur verið að ræða, en þá hefur Verðlagsstofnun sett það skilyrði f yrir leyfinu að tilkynnt væri í auglýsingum „hækkað verð”. Vegna þess að nú er nokkuð um liðiö síðan þetta mál var til um- fjöllunar höfðum við samband viö Verðlagsstofnun og spurðumst fyrir um hvert hámarksverð á venjulegar kvikmyndir væri nú. Sigríður Haraldsdóttir, fulltrúi neytenda- máladeildar, sagði aö nú væri hámarksverð á venjulegar kvik- myndir 80 krónur. Ef veröið er hærra verður aö segja frá því í auglýs- ingum. -APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.