Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Side 9
DV. FÖSTUDAGUR 6. APRlL 1984.
9
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Multipractic-vélinni pakkað i Reykjavik hjá Pfaff. „Allt í einu" vélin hefur
þetta tæki verið nefnt. 1fið höfum komið með nafnið „ fjölkvörn ", einn les-
andi stingur upp á nafninu „fjöihæfan ",
-DV-mynd: E.Ó.
ÉG VERSLA HAG-
KVÆMAR MED
HEIMIUSBÓKHALDI
— segir vinningshaf inn í janúar,
Erla Ásmundsdóttir á Akureyri
Vinningshafi Neytendasíðunnar í
janúarmánuöi byrjaöi aö halda heimil-
isbókhald síöastliöiö haust. Aö vísu
sagðist hún oft hafa byrjað á slíku og
hætt jafnan aftur. Astæöur fyrir því
heföu meöal annars verið leti og
kannski heföi henni heldur ekkert litist
á hvaö tölurnar voru háar.
Vinningshafinn heitir Erla
Ásmundsdóttir og hún býr í Kringlu-
mýri 10 á Akureyri. Verðlaunin sem
Erla valdi sér voru Multipractic
Brown vél. Hún sagðist vera alveg í
skýjunum yfir tækinu. „Eg held ég
komi ekki til meö að þurfa nokkuð að
nota hakka- né hrærivél eöa gömlu
grænmetiskvömina. Þessi kemur í
staöinn fyrir þetta allt.”
Erla var spurð hvort hún áliti að það
borgaði sig aö standa i heimilisbók-
haldi. „Já, mér finnst það borga sig, ég
versla hagkvæmar. Maöur fer frekar í
HÚSRÁÐ:
Setjið matar-
olíu í
niðurfallið
Það er oft vandamál með niðurföll,
sem eru lítið notuö, að vatnslásinn
þornar og fnykur gýs upp um þau.
Gegn þessu má víst sporna með því að
fylla vatnslásinn af matarolíu. Með því
helst hann stöðugt rakur og engin
hætta á óþægilegri lykt frá holræsum
borgarinnar. Þetta sagði okkur gamal-
kunnur pípulagningamaður hér í bæ.
Hrísalund eða Hagkaup og veltir fyrir
sérverðinu.”
Notarðu verðkannanir Verðlags-
stofnunar þegar þú ert að versla?
Maöur fylgist með því sem maður
sér í blöðum, auðvitað. Eg held að
kannanirnar séu gagnlegar og þær
hljóti að halda verðlaginu stöðugra.
Annars versla ég held ég mest eftir
eigin reynslu.”
Hvemig koma stórmarkaðirnir
héraa á Akureyri út?
„Mér finnst Hrísalundur koma betur
út fyrir okkur hérna. Maður kaupir
líka kannski meira í Hagkaupi þegar
fariðer þangað.”
Heldurðu að vöraverðið hér sé eitt-
hvað öðruvisi en til dæmis fyrir
sunnan?
„Eg hef litla reynslu af Reykjavík en
ég held að það hafi verið mjög til bóta
að Hagkaup kom með þetta stóra
verslun hérna. Mér finnst samkeppnin
hafa bætt vöruverðið alveg gífur-
lega.”
Hveraig hagarðu innkaupum á nauð-
synjavöranum?
„Eg fer einu sinni í viku í svona
stærri innkaup. Hins vegar fer ég í
verslun sem er hérna nærri til að
kaupa mjólk, brauð og það sem ég veit
aö er á sama verði alls staðar.”
Hveraig finnst þér verðlag á hlutun-
um núna, er meiri stöðugleiki en var?
„Mér finnst allt dýrt. Það er nokkuð
stöðugt verð á matvöru núna. Allt
annað finnst mér orðið dýrt.”
En hvað um vöruúrvalið á Akureyri?
„Það nægir mér,” sagði Erla. Hún
sagðist ekki nenna aö standa i þvi aö
versla þegar hún færi til Reykjavík-
ur. Þaö væri nóg annað meö timann aö
gera þar.
Vinningurinn kominn i hendur eigandans á Akureyri, Erlu Ásmundsdóttur, vinningshafa janúarmánaðar i
hgimilisbókhaldi DV. DV-mynd: JBH/Akureyri.
snmymnvt
SÖLUBOÐ
SYKUR
2KG
HVEITI
2 KG
SALERNIS
PAPPÍR
SMJORLIKI
KARTÖFLU
SKRÚFUR
PÁSKAEGG
móm NO. 8
...vðruverÖ í lágmarki
JBH/Akureyri.