Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Síða 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 6. APRIL1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Umsjón: Gunnlaugur A. Jónsson
Bandaríkjanna á innflutningi kín-
verskrar vefnaðarvöru.
Ekki er utlit fyrir að viðskipti
þjóðanna muni aukast verulega á
þessu ári og hæpið er að útflutningur
Kínverja til Bandaríkjanna geti auk-
ist mikið ef undan er skilin vefnaðar-
varan.
Regan fjármálaráðherra gerði
samkomulag við Kínverja sem átti
að fela í sér hvatningu til banda-
riskra kaupsýslumanna um að koma
til Kína.
Embættismenn Bandaríkjastjórn-
ar hafa skýrt frá því að þeir geri sér
vonir um að heimsókn Reagans for-
seta til Kína muni leiða til nýs kom-
sölusamkomulags sem leysi af hólmi
fjögurra ára samkomulag um þetta
efni sem rennur út í ár. I fýrra
keyptu Kínverjar mun minna kom
heldur en þeir höfðu heitið að gera í
fyrra samkomulaginu eða aðeins
4,67 milljónir tonna í stað 6 milljóna
tonna eins og gert var ráð fyrir í
samkomulaginu. Astæða þess var
bæði góð uppskera hjá Kínver jum og
þó einkum deilurnar um útflutning
þeirra á vefnaðarvöru til Bandaríkj-
anna.
Regan fjármálaráðherra sagöi við
fréttamenn í Peking er hann var þar
á ferð aö Bandarikjastjórn væri
mjög hlynnt því aö gera nýtt sam-
komulag.
Embættismenn Bandaríkjastjórn-
ar segja að af öðrum árangri sem
menn gera sér vonir um að verði af
Kínaheimsókn Reagans forseta
mætti nefna aukin samskipti á sviði
vísinda- og menningarmála, sam-
starf á sviði kjarnorku og aukin sala
á bandarískum vopnum (til varnar)
til Kína.
Reagan forseti og Nancy kona
hans eru væntanleg til Peking 26.
apríi og er reiknað með að 300 frétta-
menn og tæknimenn f jölmiðla muni
slást í för með þeim. Þau munu
heimsækja Shanghai og skoöa forn-
leifafundi í hinni fomu höfuðborg
Xian áður en þau fljúga heim á leið
þann 1. maí.
Reagan Bandaríkjaforseti hefur
ákveðið að feta í fótspor tveggja af
fyrirrennurum sínum, þeirra
Richard Nixon og Gerald Ford, og
halda í Kinaferöalag á kosningaári.
Ferðin er fyrirhuguð í lok apríl og er
henni ætlað að bæta samskipti
Bandaríkjanna og Kína.
Nokkur munur er þó á för Reag-
ans nú og ferð Nixons í febrúar 1972.
Nixon var þá í hlutverki brautryðj-
andans eftir áratuga langan fjand-
skap Kina og Bandaríkjanna. En nú
þegar Reagan hyggst leggja upp í
Kínaferð eru þegar fyrir hendi mikil
samskipti þessara þjóða á sviöi
stjómmálasamskipta, vísinda og
menningar. En möguleikarnir á að
auka vemlega þessi samskipti em
vissulega miklir.
Það sem hins vegar hefur ekki
breyst frá því að Nixon og Chou En-
lai undirrituðu sáttmála í Shanghai
fyrir tólf árum er gmndvallarágrein-
ingur þjóöanna varðandi Formósu
og stjóm kínverskra þjóðernissinna
þar.
Á fyrstu tveimur árum Reagans í
forsetastóli munaði oft minnstu að
upp úr syði í samskiptum Kína og
Bandaríkjanna vegna Formósu. En
frá miðju síöasta ári virðast leiðtog-
ar þjóðanna beggja hafa orðið ásátt-
ir um að láta ekki Formósu-málið
standa í veginum fyrir aukinni efna-
hagssamvinnu Kína og Bandaríkj-
anna.
Vestrænir stjómarerindrekar
haída því fram að leiðtogar í Kína
hafi ákveðið að láta sér nægja loforð
Reagans frá því í ágúst 1982 um að
Bandaríkjamenn muni í áföngum
skera niður vopnasölu sína til For-
mósu. Þetta hafi þeir gert vegna
þess að þeir hafi talið mikilvægara
að geta gert kínverskt þjóðfélag nú-
tímalegra með bandarískri aðstoð.
Yfirlýsing Bandaríkjanna um
þetta efni var hluti af samkomulagi
við Kínverja um að þeir myndu beita
sér fyrir sameiningu við Formósu
meö friðsamlegum hætti þó ekki hafi
þeir gefið út um það opinbert loforð.
aö það sé mjög athyglisvert að Kín-
verjar skulu hafa boðið Reagan í
heimsókn á kosningaári hans og gefi
það ótvírætt til kynna að þeir láti sér
vel líka að hann sitji áfram í forseta-
stóli Bandaríkjanna. Þó Kínverjar
hafi látið í ljósi óánægju með stefnu
Bandaríkjanna í Rómönsku Ameríku
þá hafa þeir gefiö ótvírætt í skyn að
harðlínustefna Bandarikjanna gagn-
vart Sovétríkjunum falli þeim vel í
geö. Þannig hafa ráðamenn í Kina
sagt að aukinn vígbúnaður Banda-
ríkjanna sé fyrst og fremst svar við
ógnun frá Sovétrík junum.
Ráðamenn í Kína hafa hins vegar
ítrekaö lýst því yfir að þeir muni ekki
ganga í hernaöarbandalag með
Bandarík junum gegn Sovétríkjunum
eins og sumir bandariskir stjórn-
málamenn höfðu gert sér vonir um.
En stjórnarerindrekar benda á að
hagsmunir Kína og Bandaríkjanna
fari saman á mörgum sviðum skoðað
af sjónarhóli hernaðar. Þannig hafa
þjóðimar líka afstööu til hersetu Sov-
étmanna í Afganistan, hernáms Víet-
nams í Kampútseu og til þess að Sov-
étmenn skuli hafa sett upp SS—20
eldflaugar í austurhluta rikisins sem
geti hæft skotmörk innan Kína
Japan og Suður-Kóreu.
Þá benda stjómarerindrekar á að
ráðamenn í Peking og Washington
hafi nýverið hvorir um sig látið í ljósi
vilja sinn til að koma í veg fýrir
auknaspennuíKóreu. Enþráttfyrir
batnandi samskipti á hinu pólitíska
sviði þá hafa erfiðleikar gert vart við
sig i efnahagssamskiptum þjóöanna.
Þannig varð gagnkvæm verslun
þjóðanna á síðasta ári 4,4 milljarðar
dollara og hafði minnkað um 15 pró-
sent frá árinu áður einkum vegna
hinna löngu deilna þjóðanna út af
vefnaðarvamingi.
Donald Regan, f jármálaráðherra
Bandaríkjanna, var brugðið er hann
sótti Kína heim í siöasta mánuði og
Wang Bingqian, hinn kínverski
starfsbróðir hans, gagnrýndi hann
fyrir óeðlilega viðskiptahætti Banda-
ríkjanna og átti þar viö hömlur
Þegar ágreiningurinn varðandi
Formósu stóð sem hæst munaði
minnstu að afleiðingar hans yrðu
mjög afdrifaríkar fyrir samskipti
Kína og Bandaríkjanna. Kínverjar
stöðvuðu menningarleg samskipti
þjóöanna um hríð eftir að ung kín-
reiðubúin aö afnema bann sitt við út-
flutningi á háþróuðum tækniútbún-
aöi til Kína. Þama var um að ræða
tækniútbúnaö sem fyrst og fremst
var hugsaður til friðsamlegra nota
en var þess eðlis að hann gat verið
notaöur í hernaðarlegum tiigangi
Nancy forsetafrú veröur í för með bónda sínum í Kína svo og um 300 fulltrúar
fjölmlðla.
versk tennisstjarna haföi leitað hælis
í Bandaríkjunum sem pólitiskur
flóttamaður. Þá dró úr verslun milli
þjóðanna og þær þrefuöu mánuðum
saman um samkomulag um inn-
flutning Bandaríkjanna á kínverskri
vefnaðarvöru.
Kínverskir leiðtogar tóku að lýsa
Bandaríkjunum með svipuðu orða-
lagi og þeir notuðu um Sovétríkin,
sögöu að báðar þjóöimar gerðu sér
far um að ráða yfir veikari þjóðum.
Þáttaskil urðu síðan við Kína-
heimsókn Malcolm Baldrige við-
skiptaráöherra sem flutti Kínver jum
þau tíðindi að Bandaríkin væru
einnig. Þama var til dæmis um að
ræða tölvur og annan háþróaðan út-
búnaö sem ætti að flytja Kínverja
nær nútímanum.
Yfirlýsing þessi hafði greinilega
góð áhrif á Kínverja og fljótlega var
undirritað nýtt samkomulag um
vefnaðarvaming. Caspar Weinberg-
er, vamarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, kom til Kína og bauð Kínverj-
um til sölu vopn er notuð skyldu í
vamarskyni og Zhao Ziyang, for-
sætisráðherra Kína, og Reagan
urðu ásáttir um að heimsækja hvor
annan.
Stjómarerindrekar í Peking segja