Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Síða 32
I
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-
78-58. Fyrir hvert fréttaskot. sem birtist eða er notað i DV, greiðast
1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið ihverri viku.
Fuiirar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum aiian sóiar-
hringinn.
ÆÞO- TFÖ iTO SÍM/NNSEM
O0" MO vO ALDREISEFUR
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL1984.
Hagkaup athugar sölu á gleraugum í verslun sinni:
„ÞETTA ER EINS OG AÐ
SELIA LYF í HAGKAUPT’
— segir f ormaður Optikeraf élags íslands
Rainbow Navigation
byrjar íslandssiglingar
ínæstamánuði:
Margirvilja
gerast umboðs-
menn þeirra
Það hefur nú veriö staöfest að
bandaríska skipafélagiö Rainbow
Navigation Inc muni hefja siglingar á
milli Bandaríkjanna og Islands og er
fyrsta skipakoma á vegum félagsins
fyrirhuguð til Keflavíkur snemma í
næstamánuöi.
Er félagiö nú aö leita eftir
samningum viö íslenska aöila um
móttöku og afgreiöslu skipafélagsins
hér, og mun enginn hörgull vera á
frambjóöendum í þaö starf. Fjöl-
margir aöilar hafa leitað nánari
upplýsinga um tengsl við félagið hjá
bandaríska verslunarfulltrúanum hér
svo og á ritstjórn DV eftir aö blaöið
skýröi frá áformum félagsins. Meöal
þeirra sem leitað hafa upplýsinga hjá
DV eru menn sem hafa þekkingu á
skipamiölun og skiparekstri.
Áætlanaskipafélögin þrjú, Hafskip,
Eimskip og Skipadeild SlS, hafa á
þessu stigi ekki áhuga á samstarfi viö
félagiö, enda fyrirhugar þaö aö taka
vænan spón úr aski þeirra tveggja
fyrrnefndu meö yfirtöku flutninga
fyrir varnarliöiö. Skipadeild SIS
fýrirhugaöi einnig að verða þátt-
takandi í þeim flutningum í haust.
Rainbow Navigation byrjar þessar
siglingar meö einu skipi, sem verður
hér á 25 daga fresti, en fljótlega verður
ööru skipi bætt við. Viðkomustaðir í
Bandaríkjunum eru New York og Nor-
folkíVirginíu.
-GS.
Bílablað DV
á morgun
32 síöna bílablaö fylgir DV á
morgun, laugardag. Helgarútgáfan
veröur því samtals 80 síður. I bíla-
blaöinu veröur margt fróölegt efni
fyrir almenning og sérstaka bíla-
áhugamenn, meðal annars umsagnir
um þá bíla sem bifreiöaumboöin leggja
mesta áherslu á um þessar mundir.
LOKI
Loki Wiuml Hvernig pass-
ar það í nafnskírteinið?
Hagkaup hefur nú í athugun sölu á
gleraugum í verslun sinni en sam-
kvæmt heimildum DV mun hér vera
um lestrargieraugu aö ræða, þannig
að fólk kemur í verslunina og mælir
sig sjálft en ekki mun vera í bígerð
aö ráöa optiker til aö annast þessa
þjónustu. Gleraugu af þessu tagi
munu vera vinsæl fyrir vestan haf í
verslunumá boröviöHagkaup.
„Þetta er eins og aö selja lyf i
Hagkaup,” sagöi Bergsteinn
Stefánsson, formaður Félags optik-
era, í samtali viö DV er við spurðum
hann álits á þessum fyrirætlunum
Hagkaups.
Benti hann á aö nú væri til loka-
afgreiðslu á Aiþingi lög um réttindi
og skyldur optikera en samkvæmt
þeim þyrftileyfiheilbrigðisráðherra
til verslunar með gieraugu og þaö
leyfi væri honum eingöngu heimilt aö
veita þeim sem lokið hafa námi frá
viðurkenndum skólum 1 faginu.
„Viö erum heilbrigðisstétt og þetta
er heilbrigöisfag,” sagöi Bergsteinn.
„Gleraugnafræðingar skulu annast
alla almenna þjónustu og sölu og
vinnslu á gleraugum og er öðrum
þaö óheimilt en þeim sem starfsleyfi
hafa.” -FRI.
„Ankanna-
legtef
matvörubúð
selur
gleraugu”
— segirEmil Als
augnlæknir
„Mér finnst það ankannalegt ef
matvörubúð ætlar aö fara út í gler-
augnasölu,” sagði Emil Als augn-
læknir í samtali viö DV er viö
spurðum hann út í áform Hagkaups
umgleraugnasölu.
„Slík áform falla um þaö aö þaö
er læknis verk aö prófa gleraugu og
þaö mega engir aörir en læknar
annast slíkt.
I ööru lagi eru á leiðinni úr
alþingi ný lög sem banna öörum en
sjóntæknifræðingum aö smíöa og
selja gleraugu,” sagöi Emil og
bætti því viö að ef ástæöa væri til
mundi félag augnlækna tjá sig
frekar um málið.
-FRI.
Flugfreyjur
í verkfall
eftir viku
Flugfreyjur á DC-8 þotum Flugleiða
boöuðu í gær verkfall frá og meö næsta
föstudegi. Veröi af verkfallinu mun
allt Norður-Atlantshafsflug félagsins
stöövast milli Lúxemborgar og Banda-
ríkjanna.
„Undanfarin fimm ár höfum viö ver-
ið aö fara fram á aö Flugleiðir bættu
viö sjöttu flugfreyjunni, sem tekin var
af þessum vélum árið 1974 á þeirri for-
sendu að dregiö heföi veriö úr þjónustu
um borð,” sagöi Margrét Guömunds-
dóttir, formaður Flugfreyjufélags
Islands, í samtali viö DV í morgun.
Margrét sagöi aö vinnan um borö
gengi ekki upp meö fimm flugfreyjum.
Vélamar væru alltaf fullar farþegum.
Tvö eldhús væru í hverri vél, hvort ætl-
aö þremur flugf reyjum.
,,Flugleiðir hafa haldiö f jölda starfs-
fólks í algjöru lágmarki. Þetta hefur
gengið meö undanþágum en fólk er
bara orðið þreytt,” sagði Margrét.
-KMU
Umferðaróhapp
áSelfossi
Umferöarslys varð á Austurvegi á
Selfossi í gær. Þar lentu saman hifreið
og létt bifhjól og slasaðist ökumaöur
hjólsins töluvert. Mun hann m.a. hafa
beinbrotnaöáfleiristöðum. -klp
Furðufígúrur sáust á ferli í Reykjavík í morgun. Þar voru komnir dimmitendur úr
MR sem gerðu sér glaðan dag. Alvaran tekur hins vegar við á morgun og fram að
prófum. Sams konar fígúrur voru og á ferli í Kópavogi í morgun, þar var líka
dimmission. DV-mynd Einar Ólason
SKYLDUSPARNAÐUR
Á RÁÐUNEYT1N
— „nánast eina færa leiðin,” segir forsætisráðherra
Mér sýnist þaö vera nánast eina
færa leiðin til þess að ljúka þessu
máli að skylda öll ráðuneytin jafnt til
þess aö skera niöur, annars segja all-
ir „ekki ég”,” segir Steingrímur
Hermannsson forsætisráöherra um
lokun fjárlagagatsins. Hann segir að
meö samtíningi iiggi fyrir samstaöa
um lokun á nærri hálfu gatinu. 5%
sparnaður á öll ráðuneytin þýddi 900
milljóniríviðbót.
Lenti slikt ekki mest á heilbrigöis-
málum, menntamálum og sam-
göngumálum? „Jú, því er ekki aö
neita. Heilbrigöis- og tryggingamál-
in eru helmingur fjárlaganna. En
heilbrigðisráðherra er með ýmsar
tillögur ýmist um spamað eða aukn-
ar sértekjur upp í þær 300 milljónir
sem hann tók að sér. ”
Er búiö að gefa upp á bátinn aö
fella úr gildi söluskattsundanþágur?
„Neí, Þjóðhagsstofnun er aö reikna
þaö dæmi og önnur. En um það er
samstaða í stjómarflokkunum að
hækkun matvæla verði of mikil ef
söluskattsundanþágur veröi at-
numdar á einu bretti. Nema þá ann-
að komi í staöinn. En skattasérfræð-
ingar telja það leiö númer eitt að
fella undanþágumar niður til þess aö
hægt verði að ganga í innheimtuna.”
Fjármálaráðherra er tilbúinn til
þess að láta 400 milljónir af þessu
tveggja milljarða gati í salt til næsta
árs, ertu sammála honum? „Ætli
þaö ekki.”
Hvenær er von á málalokum?
„Vonandiáþriöjudaginn.” HERB