Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Blaðsíða 19
DV. MIÐVIKUDAGUR18. APRIL1984.
Jessica Lange átti stjörnuleik í hlutverki Frances Farmer, stúlkunnar sem vildi
vera sjálfstæö en var úrskurðuð geðveik.
Amy Irving og Barbra Streisand leika hjón í kvikmyndinni Yentl sem síðarnefnda
leikkonan leikstýrði og framleiddi.
DÍS | DRÆSA
hringinn meö þvi að sækja námskeið
í bókmenntum hjá nokkuð drykk-
felldum háskólakennara. Og þó
kennslan sc bæði upp ug ofan að gæð-
um opnast augun á Ritu. Þess má
ileta að Walters fékk tilnefningu ti!
óskarsverðlauna fyrir frammistöðu
sína í hlutverki hárgreiðsludömunn-
ar.
Lena (IsabelleHuppert) og Hadeleine (Miou-Miou) snyrta sig í kvikmynd Diane Kury, CoupdeFoudre.
Aldagamlar hugmyndir um konur ganga aftur í
kvikmyndum þó nú megi finna fleiri dæmi en
áður um myndir sem fjalla um kvenfólk af skyn-
samlegu viti
Er konan dýrlingur eða
dræsa eða jafnvel sitt lítið
af hvorri tegundinni?
Einhver kynni nú að ætla
að menn væru orðnir leið-
ir á þessari aldagömlu
spurningu og hugmynda-
fræðinni, sem að baki býr,
en sú virðist hreint ekki
raunin þegar litið er á
titla ýmissa nýrra kvik-
mynda báðum megin
Atlantshafsins. Og nú er
ég ekki að tala um þriðja
flokks bláleitar myndir
sem löngum hafa byggt
efnisþráð sinn á þeirri
hugmynd að sakleysisleg-
ustu húsmæður geti á
skammri stundu hent frá
sér skúringatuskunni,
svipt frá sér Hagkaups-
sloppnum, afhjúpað bik-
svört nærklæðin og tekið
að tæla til sín mjólkur-
pósta og pípulagninga-
menn jöfnum höndum.
Vestur í Ameríku er nýlega tekið
að sýna kvikmynd sem ber titilinn
Angel. Aðalpersónan er ósköp sæt
menntaskólastúlka, dúx í öðru
hverju fagi, en eins og það sé ekki
nóg, þá eyðir hún sínum Örfáu en
þónokkuö góðu frístundum sem
mella í Hollywood. Nýjastá mynd
þýska kvikmyndagerðarmannsins
Roberts Van Ackeren, sem á
íslensku gæti heitið Kona á glóðum,
fjallar um undurfagra stúlku sem
stundar háskólanám, en finnur að
það á ekki alls kostar við hana, og
snýr sér því að vændi. Og viti menn,
það er einmitt hennar fag.
Snákurinn
sneri á veika kynið
Hugmyndir um viðsjárvert eðli
kvenna eru hreint ekki nýtilkomnar
og þaö ætlar ekki að verða auðveldur
leikur aö kveöa þær niður. Mestrar
hylli nutu þær á 16. og 17. öld þegar
andlegir jafnt sem veraldlegir
höfðingjar töldu galdraeðlið krauma í
öðrum hverjum kvenmanni. Konan
var auövitað veikara kynið, ófull-
komin í andanum, jarðbundin og
holdlega sinnuð og mun líklegri en
nokkur karl til að leggjast með djöfl-
inum. Og auðvitað var þess aö minn-
ast að það var hún sem snákurinn
gat platað, sem aftur leiddi til þess
aö Adam heitnum varð hált á epla-
átinu.
Forsenda þess aö kvenmaður héldi
Sig á strikinu og brygði ekki út af
réttri braut hefur löngum verið álitin
sú að hún fylgdi karlmanni, sem
hefði á henni nokkurt taumhald.
Ungar konur, ógiftar og sjálfstæðar,
voru því líklegar til ailskonar
lymskuverka og þó ekki síður gaml-
ar kerlingar, sem ekki hirtu of mikið
um samfélag við náungann, heldur
kusu að búa einar. Meintar nornir
áttu auðvitað að búa yfir verstu
hvötum manna og gjörspillt kynlif
var þeirra sérgrein. Þetta gilti fyrir
fjórum öldum og virðist gera það
enn, taki menn mið af ýmsum kvik-
myndum. Ungar menntakonur eru í
raun örgustu dræsur og húsmæð-
urnar, sem líta má á sem einsetukon-
ur að deginum, leggjast í hvers kyns
ólifnað um leið og eiginmaðurinn er
genginn út úr dyrunum. (Næsta
skrefið væri auðvitað að þær létu
púka sjá um heimilisverkin svona
líkt og Sæmundur forðum, á meðan
þær táldraga fyrsta rafvirkjann sem
kemurísjónmál.)
Misvel heppnaður
myndir um konur
Það sem gerir fyrmefndar kvik-
myndir svo ógn gamaldags og hjá-
kátlegar eru ekki bara elliærar hug-
myndirnar á bak við söguþráðinn,
heldur einnig sú staðreynd að æ fleiri
kvikmyndir fjalla um konur af skyn-
samlegu viti. Rétt er að minna á
snilldarverk á borð við Systumar
eftir Margarete Von Trotta og kvik-
myndir eins og An Unmarried
Woman, Julia og Frances.
Af nýjum athyglisverðum kvik-
myndum með konur í aðalhlutverk-
um má nefna Terms of Endearment
og Silkwood, en um báðar þessar
myndir hefur þegar verið fjallaö á
kvikmyndasíðu DV. Nýjasta kvik-
mynd Börbru Streisand, Yentl, segir
frá ungri gyðingastúlku sem sættir
sig ekki við hlutverk sitt í stirðnuðu
samfélagi í Austur-Evrópu kringum
síðustu aldamót. Því miður virðist sú
mynd einkum fjalla um ágæti stór-
stjörnunnar Streisand sem bæði leik-
stýrir og leikur aðalhlutverkið í
myndinni. Höfundur bókarinnar
Yentl, sem myndin byggir á, Isaac
Bashevis Singer, hefur lika skrifað
grein um meðferðina á hugverki
sínu og fer háöulegum orðum um
framtak Streisands.
Betur heppnuð en Yentl er kvik-
myndin Educating Rita, með Julie
Walters og Michael Cain í aðalhlut-
verkum. Julie leikur hárgreiðslu-
konu sem hyggst víkka sjóndeildar-
Frískleg mynd
um þreytt þema
Um’nokkurra ára skeiö hafa hellst
yfir heiminn svo margar bækur og
kvikmyndir um frelsisbaráttu
kvenna undan oki karlmannsins að
mörgum, líklega þó einkum Norður-
Evrópubúum, hrýs nú orðið hugur
við enn einu verki um þetta efni. Þó
hefur franska kvikmyndaleik-
stjóranum Diane Kurys tekist að
gera athyglisverða kvikmynd með
þessu þvælda þema og ber hún heitið
Coup de Foudre. Isabelle Huppert og
Miou-Miou fara meö aðalhlutverkin,
leika ungar konur sem á fimmta og
sjötta áratugnum láta hvorki eigin-
menn né böm hafa áhrif á nána
vináttu sína. Slík vinátta er líklega
miklu fátíðari en sú sem helst á sam-
eiginlegum vinnustað eða á skólaár-
unum.
Lena (Isabelle Huppert) er
belgískur gyðingur. Hún giftist til-
finningalitlum sóða sem bjargaði
henni úr útrýmingarbúðum nasista á
stríðsárunum. Madeleine (Miou-
Miou) leikur á hinn bóginn laglega
listakonu sem býr við myndarlegan
leikara i ástlausu hjónabandi. Eigin-
mennirnir eru á alla kanta litlausari
persónur en eiginkonur þeirra en þó
á engan hátt ógeðfelldir menn.
Myndin fjallar svo um samhjálp
kvennanna í örðuleikum sem þær
mæta á tólf ára tímabili og einnig um
það hvernig franskt þjóðfélag tekur
breytingum sem náðu hámarki sínu í
uppreisnunum 1968, sextán árum
eftir að síðustu atburðir Coup de
Foudre gerast. Með síðustu mynd
sinni þykir Diane Kury hafa sannað
að hún er komin í hóp fremstu kvik-
myndaleikstjóra í heiminum í dag.
-SKJ