Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Qupperneq 21
DV. MIÐVIKUDAGUR18. APRIL1984. 21 sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál inn Mike Cattran til þess aö hreinsa klóakið. Það fyrsta sem hann sá þegar hann lyfti loki yfir klóakinu var líkamsleifar. Hann hringdi samstundis í lögregl- una sem staðfesti að klóakið var fullt af rotnandi likum. Húsið var samstundis rannsakað. I íbúö Dennis fundust nýlegar líkams- leifarungsmanns. Rannsókninni á húsinu var lokið þegar Nilsen kom heim úr vinnunni og John Jay lögregluvarðstjóri beið eftir honumííbúöinni. „Eg er hérna vegna stíflaðs klóaks. . ,,”sagði Jay. „Hvenær fór lögreglan að hafa áhugaá klóökum?” „Við höfum áhuga á klóökum, Dennis Nilsen, þegar þau tengjast morði.” Og án þess að sýna nokkur merki geöbrigða svaraði Nilsen. „Morð? Já, auðvitað. Eg er morð- inginn og ég er reiöubúinn að segja frá öllu... ” I bílnum á leiöinni á lögreglustöðina spurði Jay: , JSrtu búinn að myrða tvo eða þrjá?” „Tvo eöa þrjá? Nei,” sagði Nilsen án þess að láta sér bregða. „Þeir eru fimmtán eða sextán. Eg held þeir hljóti aö hafa verið fimmtán því nú á ég ekki fleiri bindi. Eg á bara þver- slaufurnúna...” Dennis Nilsen fæddist í skoskum bæ í nágrenni Aberdeen. Faðir hans, Olav Nilsen, var Norðmaður og er lýst sem ofbeldissinnuðum alkóhólista sem lifði á snapavinnu og yfirgaf Elisabeth, hina skosku eiginkonu sína, þegar Dennis var þriggja ára. Dennis var tengdur afa sínum mjög sterkum böndnm, Hann kallaði hann „old daddy”. Afinn dó þegar drengur- inn var sjö ára og Dennis syrgði hann mjög. Dennis var frá sér af sorg. Hann vildi ekki trúa því að „old daddy” væri dauður og hljópst oft að heiman til þess aö leita að honum. Dennis hætti í skóla fimmtán ára og gekk þvínæst í herinn. Kennarar hans lýsa honum sem gáfuðum, stilltum og námfúsum nemanda en mjög innhverf- um. Hann hafi verið þjáður af ein- Blikksmiöurinn Mike Cattran sem kom lÖgreglunni á slóðina eftir óhugnanlegar uppgötvanir um klóakið í húsinu þar sem Dennis Nilsen bjó. manakennd og oft sökkt sér niður í dagdrauma. Fyrsta morðið Eftir ellefu ár í hernum var hann lög- regluþjónn í eitt ár til reynslu. Hann hætti því sjálfur og fékk vinnu í vinnu- miöluninni í Kentish Town í London. Þar var hann einnig þekktur sem rólegur og vingjarnlegur náungi sem drakk dáh'tið of mikiö. Eftir að Nilsen haföi verið tekinn fastur var allt byggingarsvæðið við Melrose grafið upp og þar fundust bein úr að minnsta kosti tólf ungum mönn- um. Eins og Nilsen hafði lofaö sagði hann greiðlega frá hinum 15 moröum sínum. Öll fómarlömbin voru ungir einstæð- ir menn sem voru ekki í neinum tengsl- um við heimili sín og þess vegna tók enginn eftir því þegar þeir hurfu. . . Þegar málið kom fram í blöðunum fékk lögreglan 3000 bréf frá foreldrum sem áttu böm og unglinga sem þeir höföu ekki séð lengi og vissu ekki hvar vom niöurkomin. Nilsen skýrði einnig greiðlega frá því hvernig hann hefði framið verknaðina og losaö sig við líkin. Hann var yfirheyrður svo dögum skipti. Og þegar hin síðasta af mörgum yfirheyrslum var afstaðin, og það átti að færa hann aftur til klefa síns sagði hann: „Það er best að ég viðurkenni allt...” Lögreglumennirnir, sem áttu von á nýjum og blóðugum lýsingum, heyrðu hann sér til furðu segja: „Eg hef aldrei borgað af sjónvarpinu minu og heldur ekki hundaskattinn. ” Fyrsta fómarlamb Nilsens var 17 ' ára skalli sem hann hitti í nóvember 1979 á bar. En hann mundi ekki hvaö hann hafði heitið. Skinhead eða skallar eru krúnu- rakaöir ungir menn sem alltaf ganga í rifnum fötum og í stórum og miklum hermannaklossum. Þeir eru taldir einhverju verstu yfirgangsseggir í London. „Viö drukkum saman og héldum áfram heima hjá mér. Þá uppgötvaði ég að náunginn var með rauða rák tattóveraöa um hálsinn. Undir henni stóð: ,,Skeriðhér”. Þegar hann var sofnaöur í stólnum fann ég til ómótstæðilegrar löngunar til þess að taka áskoruninni á hálsi hans. Eg náði í hníf en datt svo í hug að það væri hreinlegra aö kyrkja hann. Eg notaði bindið mitt. Þegar hann var dauður heyrði ég sjálfan mig segja: ,,Flaskan er búin, kvöldiö er búið, mannslíf er búið.” Og í fyrsta skipti eftir að ég missti pabba var ég full- komlega hamingjusamur. Já, mér leið eins og guði sjálfum.” Réttur til að drepa Þau sex fórnarlömb sem lögreglunni tókst að bera kennsl á voru: „Kenneth Ockenden, 23 ára, Martyn Duffey, 18 ára, William Sutherland, 25 ára, Malcolm Barlow 26 ára, John Howlett, 27 ára, og Stehpen Sinclair, 20 ára. Þrátt fyrir að Nilsen hefði játað allt fyrir lögreglunni neitaði hann fyrir rétti aö vera sekur um morð. „Eg frelsaöi þessa ungu menn frá vonlausri og óhamingjusamri tilveru. Þetta voru allt saman einstaklingar sem lifðu í eymd. Eg veitti þeim ánægjustundir áður en þeir dóu. Við drukkum og hlustuðum á villta rokk- tónlist. Það veitir manni dásamlega frelsistilfinningu.” Seinna bætti hann við: ,,Eg græt ekki. Eg get þaö ekki, hvorki vegna sjálfs mín né vegna fórnarlamba minna. En það var gott að þið stöövuðuð mig. Eg hafði sett mér það takmark að drepa 1000 áður en ég yrði 65 ára. I nóvember 1983 var Nilsen dæmdur í sex sinnum lífstíðarfangelsi sem verð- ur afplánað á að minnsta kosti tuttugu ogfimmárum. Hann hlustaði á dóminn án þess að sýna nokkur svipbrigði og það eina sem hann hafði aö segja eftir hann var tilvitnun í Osear Wilde um að sérhver maður drepur það sem hann elskar. Heigullinn drepur með kossi, sá hug- rakki með sverði. Þrír enskir rithöfundar segjast vera að gera bók um morðingjann leyndar- dómsfulla. Brian Masters, einn þeirra, hefur átt 50 samtöl við hann í fangelsinu. Rokkhljómsveit sem kallar sig Whitehouse og í eru skallar eða skin- heads hefur sent frá sér plötu með söngvum um Dennis Nilsen. Platan hefur titilinn: Réttur til að drepa, .„RighttoKjiir-. ..... •, ...... - ... Blaðamenn og forvitnir fyrir framan húsiö í Melrose Avenue þar sem Dennis Nilsenbjóá annarrihæð: ■ .■•••• • j.<... . •.. .. Tónlistarkennara vantar viö Tónlistarskólann Kirkjubæjarklaustri næsta skólaár. Aöalkennslugreinar píanó, orgel og blokkflauta. Upplýsingar veitir Margrét Isleifsdóttir í síma 99-7625. Umsóknir sendist til skólanefndar fyrir 5. maí 1984. SKÓLANEFND. GAGNFRÆÐINGAR INGIMARSSKÓLA1949 (Lindargötu — Sjómannaskóla) Ætlum að hittast í Naustinu föstudaginn 4. maí 1984 kl. 19.00 stundvíslega. Tilkynnið þátttöku fyrir 20. apríl í síma 14710, 10798 Helga, 14630 Ella Teits og 34768 Dídi. Mætum öll kát og hress. UNDIRBUNINGSNEFND. Við fíjúgum án tafar~ innanlands sem utan "umi LEIGUFLUG fjfjfr Sverrir Þóroddsson \J^r) REYKJAVÍKURFLUGVELU 28011 ^ SMÁ -auglýsingadeild, Þverholti 11 — Sími 91-27022. verður opin um páskana sem hér segir: Miðvikudag 18. april kl. 9—18. Skírdag til páskadags LOKAÐ. Mánudag 23. apríl (2 . í páskum) kl 18-22. Auglýsingin birtist þá í fyrsta blaði eftir páska — þriðjudaginn 24. apríl. Ánægfu/ega páskahe/gi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.