Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Síða 3
DV. LAUGARDAGUR 5. MAl 1984.
3
Nágrannaerjur í Laugarásnum:
BÍLSKÚRINN STEYPTUR
EFTIR FIMM ARA ÞREF
Tveir kunnir borgarar í Laugarásn-
um deila um bilskúr sem annar þeirra
er að byggja. Rúnar Bjarnason
slökkviliösstjóri er ósáttur við bílskúr
sem nágranni hans, Agnar Kristjáns-
son, forstjóri Kassagerðarinnar,
reisir.
Bílskúrinn umdeildi var steyptur
upp í gær þrátt fyrir að félagsmála-
ráðherra, en til hans var málinu
skotið, eigi eftir að kveða upp úrskurð
sinn.
Hús Agnars stendur á horni Laugar-
ásvegar og Sunnuvegar og telst vera
Sunnuvegur 1. Hús Rúnars er við
hliðina og telst vera Laugarásvegur 40.
Vorið 1979 sótti Agnar um leyfi til að
byggja annan bílskúr viö hlið þess sem
fyrir var. Byggingamefnd Reykja-
víkur synjaði. Agnar lét þá breyta
teikningu og sótti aftur um. Bygging-
arnefnd synjaði því erindi í nóvember-
lok 1979.
Snemma árs 1980 sótti Agnar um
leyfi til að gera bílastæði úr
steinsteypu. Því var einnig synjað.
Forstjóri Kassageröarinnar gafst
ekki upp. I september 1982 var enn
einu sinni tekið fyrir erindi hans um
bílskúrsbyggingu. Að þessu sinni var
það samþykkt.
Slökkviliðsstjórinn var ósáttur við
þessa niðurstöðu og vísaði málinu til
úrskurðar félagsmálaráðherra.
Svavar Gestsson, sem þá sat í
embætti, felldi byggingarleyfið úr gildi
með úrskurði í nóvember. Ráöherrann
studdist meðal annars við umsögn
skipulagsstjórnar ríkisins.
Agnar Kristjánsson greip enn einu
sinni til þess ráðs aö breyta teikningu.
Bílskúrinn var að þessu sinni
teiknaður 20 sentímetrum styttri. Og
' enn fékk byggingamefnd máliö til um-
fjöllunar. Hún samþykkti bílskúrinn 4.
apríl siðastliöinn. Borgarstjóm
staðfesti með samþykkt 5. apríi.
6. apríl skaut Rúnar Bjarnason
málinu til félagsmálaráðherra,
Alexanders Stefánssonar. Urskurður
ráðherrans er enn ókominn. Ráðherr-
ann bíöur eftir umsögn skipulags-
stjómarríkisins.
Agnar Kristjánsson beiö hins vegar
ekki. Hann lét hefja framkvæmdir
fljótlega eftir niðurstööu borgaryfir-
valda. Sjálfur fór Agnar í orlof tU
Flórída. Undanfamar þrjár vikur
hefur verið slegið upp fyrir bíl-
skúmum, og í gær var steypt, en
Agnar kemur ekki heim úr fríinu fyrr
en ínæstuvUcu.
Veröi ráðherraúrskuröur Rúnari í
hag má búast við að bílskúrinn verði
mölvaöur niöur.
-KMU.
Bílskúrinn umdeildi sem steyptur var upp igær. Hús Agnars er til vinstri, hús Rúnars til hægri.
DV-mynd: Loftur.
Yfir-
gangur
— segir Rúnar Bjarnason
„Eg er ósáttur við byggingaryfir-
völd að leyfa þetta,” sagði Rúnar
Bjarnason slökkviliðsstjóri í samtaii
við DV.
„Eg áfeUist ekki manninn fyrir að
leita eftir því hvað hann kemst langt
með yfirvöld. Aö visu er þetta dálítiö
dómgreindarlaus yfirgangur gagnvart
nágranna. En ég hafði álitið að yfir-
völd ættu að geta passað upp á slíkt,”
sagðiRúnar.
Hann kveöst ekki ætla að óska
lögbanns við smiði bUskúrsins. Hann
segir lögfræðing hafa ráölagt sér aö
bíða úrskurðar ráðherra.
Rúnar Bjarnason sagði aö ná-
granninn heföi byggt hús sitt árið 1967.
Húsið hefði þá verið skráð 730 rúm-
metrar að stærð.
„Með þeirri viðbót, sem beðið hefur
verið um sýndist mér húsið fara í 1.100
rúmmetra. Upphaflega var okkur
gefið það að hámarksbyggingarmagn
mætti vera 800 rúmmetrar.
Þennan nýja bíiskúr má í raun
reikna sem tvöfalt byggingarmagn því
að bann er á efri hæð með súlum
undir,” sagði Rúnar Bjarnason.
„A sínum tíma var ég búinn aö
faUast á að núverandi bílageymsla,
sem er breiö og rúmgóð, yrði lengd um
þrjá metra. Það þurfti sáralítið að
lengja hana til þess að tveir bilar
kæmust þar fyrir með góðu móti,”
sagðiRúnar. -KMU.
EV SALURINN (FIATHÚSINU
1929
- ALLT A SAMA STAÐ
- SÍFELLD ÞJÓNUSTA
- YFIR HÁLFA ÖLD.
1984
EGILL,
VILHJALMSSON HF
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944—79775
Þrír frábærir vorlaukar
sem blómstra strax
— á hálfvirði —
AMC vortilboðin frá Agli
1982-oekinn
1979-oekinn
1982-oekinn