Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Page 6
6
*ií»Or ÍAM P \-r?t, fnrrr * r\'-T * r •»]rrr
DV.LAUGARDAGUR5.MAI 1984.
Ferðamál
Ferðamál
Ferðamál
Umsjón:
Sæmundur
Guðvinsson
Besta tja/dstæðið er i Skaftafelli, segir ritið, en tjaldstæðin til dæmis i Reykjavik og Akureyri fá öllu lakari einkunn og kemur svo sem ekki á ovart.
Niðurstöður skoðanakönnunar meðal erlendra ferðamanna á íslandi:
Besta tjaldstæðið er
í Skaftafelli en besti maturínn
á Hdteí Holti
Ferðaritiö AROUND ICELAND,
1984, er nýkomið út. Það er gefiö út
af Kórund hf. og rit þessa árs hefur
meðal annars að geyma niðurstöður
skoðanakönnunar sem efnt var til
meðal erlendra ferðamanna á
síðasta ári. Samkvæmt þeún er
besta tjaldstæðiö að Skaftafelli og
besti maturinn framreiddur á Hótel
Holti, svo dæmi séu nefnd. Þetta er
byggt á svörum frá um 800 út-
lendingum sem sendu ritinu svör viö
spurningum sem birtar voru í 1983
árgangi þess. Spurningar beindust
einkum aö því er viðkemur gisti-
stööum, veitingahúsum og tjald-
stæðumhérlendis.
I þeim niðurstöðum sem Kórund
hefur sent frá sér vantar margar
upplýsingar um svörin. Til dæmis
hefði veriö fróðlegt að vita hvers
lenskir svarendur eru, hvort ein þjóð
hafi átt þar mun fleiri fulltrúa en
aörar, hvort viðkomandi ferðast á
eigin vegum eða innlendrar eöa er-
lendrar ferðaskrifstofu og þar fram
eftir götunum. Það eru svo ótal mörg
atriði sem hafa áhrif á niöurstöður
könnunar eins og þessarar. Okkur
þykir hins vegar rétt að birta helstu
niöurstöður könnunarinnar í heild,
en lesendur eru beönir að forðast aö
líta á þetta sem einhvem allsherjar-
dóm um gæði viðkomandi hótela og
veitingastaöa. Þaö gera hins vegar
aðstandendur Kórundar og því eru
gistihús og veitingastaðir flokkaöir
eftir gæðum í AROUND ICELAND
1984. Eflaust eru skiptar skoðanir
um þá flokkun. Sem dæmi má nefna
aö Hótel Borg og Hótel Garöur lenda
í sama gæðaflokki og Blómasalur
Loftleiða og Hornið eru í sama gæða-
flokki veitingahúsa. Þetta er ekki
tekiö hér upp til að kasta rýrö á einn
eöa neinn, heldur aðeins til að sýna
ósamræmi sem margir vilja eflaust
ekki skrifa upp á. En hér koma úrslit
könnunarinnar, sem var gerð með
þeim hætti að lesendur ritsins fylltu
út spurningalista í ritinu, klipptu og
sendu útgefendum.
Vinsælustu tjaldstæðin
Lesendur AROUND ICELAND
vora beðnir að gefa tjaldstæðum sem
þeir heimsóttu einkunn, annaðhvort
excellent, good, average, poor eða
'very poor. I útreikningi er exellent
látið gilda sexfalt, good fjórfalt,
alverage tvöfalt, poor einfalt og very
poor ekkert (0). Hæsta mögulega
einkunn væri 10, lægsta 0.
775 umsagnir bárust um 67 tjald-
stæði.
Vinsælustu tjaldstæöin reyndust
SkaftafeU
Selfoss
Vestmannaeyjar
Varmahlíð
Laugarvatn
Herðubreiðarl.
Reykjavík
Hrífunes
Þórisdalur-Lóni
Húsavík
Skútustaðir
Akureyri
8,63
7,53
7,18
7,14
6.55
5,74
5,62
5.56
5,56
5,45
5,29
5,22
Meðaleinkunn 35 tjaldstæða var
4,21. Tólf tjaldstæði fengu einkunn
undir3.
Vinsælustu hótelin
Utreikningur var gerður á sama
hátt og viö tjaldstæöin.
HótelSaga
Hótel Loftleiðir
HótelHolt
HótelEsja
011 hótel í Reykjavík fengu
einkunn yfir 5. Hótel Saga fékk
einkunnina 8,22. Umsagnir um
gististaöi í Reykjavík voru 248.
Utan Reykjavíkur voru 7 Eddu-
hótel meöal 10 vinsælustu
gististaðanna.
Vinsælustu Edduhótelin voru:
(með einkunn yfir 6,80)
Stóru-Tjamir
Húnavellir
Húsmæðraskólinn Laugarvatni
Kirkjubæjarklaustur
Akureyri
Eiðar
Vinsælustu gistihúsin
utan Reykjavíkur,
önnur en Eddu-hótel voru:
(einkunn yfir 6,50)
Hótel Húsavík
HótelVarmahlíð
Hótel Bláfell
Hótel Búöir
Hótel Hvolsvöllur
Hótel Reynihlíö
Umsagnir um gististaði utan
Reykjavíkur voru 409. 39 gististaðir
fengu nægilega margar umsagnir til
úrvinnslu. Hæstu einkunnir fengu
Hótel Húsavík og Edda, Stóru-
Tjörnum, 8,33. Meðaleinkunn 39
gististaða var 5,40. 8 gististaöir
fengu einkunn undir 3. Lægsta
einkunn var 0,60
Vinsælustu veitingahúsin
Einkunnir voru reiknaðar út sér-
staklega fyrir mat, þjónustu, verð og
umhverfi. ExceDent var látið gilda
sexfalt, good f jórfalt, average tvöfalt
og poor einfalt. Hæsta einkunn gæti
verið 10, lægsta einkunn 1. Við út-
reikning samtalseinkunnar var mat-
areinkunn látin gilda 8/16,
Hótel Húsavík er vinsælasta hótelið utan Reykjavíkur.
þjónustueinkunn 3/16, verð 2/16 og
umhverfi3/16.
557 umsagnir bárust um veitinga-
staði í Reykjavík og fékk 21 veitinga-
staður nægilega margar umsagnir til
úrvinnslu.
Bestu einkunnir
veitingahúsa í Reykjavík
Samtalseinkunn:
HótelHolt 8,68
Lækjarbrekka 8,35
Hótel Saga-Grill 8,21
Amarhóll 8,10
Loftleiðir—Blómasalur 8,02
Potturinn og pannan 7,59
Torfan 7,71
Kaffivagninn 7,57
Naust 7,20
Aðrir staðir f engu undir 7.
Meðaleinkunn 21 staðar var 6,89.
Lægsta einkunn var 4,36.
Einkunn fyrir mat:
HótelHolt 9,24
Potturinn og pannan 9,20
HótelSaga—Grill 8,80
Lækjarbrekka 8,67
Arnarhóll 8,57
Kaffivagrinn 8,52
Loftleiðir-Blómasalur 8,47
Torfan 8,26
Aörir staðir fengu einkunn undir
8.
Meðaleinkunn 21 staðar var 7,46.
Lægsta einkunn var 5.
Einkunn fyrir þjónustu:
HótelHolt 8,48
HótelSaga-Grill 8,23
Arnarhóll 8,10
Lækjarbrekka 7,85
Loftleiðir-Blómasalur 7,71
Torfan 7,01
Aðrir staðir fengu undir 7.
Meðaleinkunn 21 staðar var 6,25.
Lægsta einkunn var 4,36.
Einkunn fyrir verð (value):
Matstofa
Náttúrulækningafélagsins 9,20
Potturinn og pannan 8,06
Drekinn 7,58
Lækjarbrekka 7,28
Kaffivagninn 7,13
Arnarhóll 6,90
HótelHolt 6,84
Torfan 6,68
Saga-Grill 6,59
Aðrir staöir fengu undir 6,5.
Meðaleinkunn 21 staðar var 6,43.
Lægsta einkunn var 4,17.
Einkunn fyrir umhverfi:
Lækjarbrekka 8,72
HótelHolt 8,64
Loftleiðir-Blómasalur 8,20
Hótel Saga-Grill 7,62
Torfan 7,47
Amarhóll 7,26
Kaffivagninn 7,13
Naust 6,85
Homið 6,75
Sælkerinn 6,41
Drekinn 6,06
Lauga-ás 6,06
Aörir staðir fengu einkunn undir 6.
Meðaleinkunn 21 staðar var 6,27.
Lægsta einkunn var 2,62.
Veitingahús
utan Reykjavíkur
419 umsagnir bámst um 83
veitingahús utan Reykjavíkur.
Aðeins 14 veitingahús fengu
nægilega margar umsagnir til úr-
vinnslu.
Hæstu samtalseinkunnir af
þessum veitingahúsum fengu:
Hótel Búðir, Snæfellsnesi 8,39
Hótel Bláfell, Breiðdalsvik 7,91
Smiöjan, Akureyri 7,91
Edda, Húsmæðraskóli,
Laugarvatni 7,50
Gestgjafinn, Vestmannaeyjum 7,45
Sjallinn, Akureyri 7,32
Valhöll, Þingvöllum 6,72
HótelKEA (2. hæð), Akureyri 6,69
Bautinn, Akureyri 6,54
Hótel Reynihlíð, Mývatnssv. 6,43
Samtalseinkunnir veitingahúsa
utan Reykjavíkur em síst
marktækasti hluti könnunarinnar,
þar sem mörg veitingahús fengu svo
fáar umsagnir.
Urvinnslu könnunarinnar
önnuöust: Ingibergur Þorkelsson og
Dóra Jakobsdóttir BS.