Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Qupperneq 10
MARVIN
GAYE
DV.LAUGARDAGUR5.MAI 1984.
„Ég drap son minn af misgáningi.” Þetta sagði Marvin
Gaye eldri skömmu eftir að hann hafði skotið son sinn,
soulsöngvarann og lagasmiðinn góðkunna Marvin Gaye,
til bana 1. apríl síðastliðinn.
Gaye yngri var í heimsókn hjá föður sínum er at-
burðurinn átti sér stað. Þeir lentu í rifrildi vegna
fyrirhugaðrar afmælisveislu sonarins daginn eftir en þá
hefði hann orðið 45 ára. Rifrildið varð að slagsmálum og
þau enduðu með því að faðirinn greip byssu og skaut son
sinn til bana.
Gaye eldri, sem er prestur, heldur því fram að hann
hafi talið að byssan væri óhlaðin, hann hafi bara ætlað að
hræða son sinn með henni.
„Mér þykir þetta leitt en sonur minn var forfallinn
kókaínisti og þegar hann var í vímu reyndi hann að fá mig
til að gera hina fáránlegustu hluti. Byssan var í eigu
sonar míns og ég hélt svo sannarlega að hún væri
óhlaðin,” sagði hann.
M.r
Marvin Penze Gaye var fæddur í
Washington D.C. 2. april 1939.
Kaldhæðni örlaganna hagaði því þann-
ig aö tónlistaráhugi hans kviknaöi við
aö hlýöa á tónlist í kirkju fööur síns.
Það var þar sem hann söng í fyrsta
skipti opinberlega, þriggja ára að
aldri, og þaö var einnig þar sem hann
læröi að leika á orgeliö. Fljótlega bætt-
ust fleiri hljóöfæri í kunnáttusafnið og í
gagnfræðaskóla lék Gaye á gítar,
píanó og trommur auk orgelsins. Og að
sjálfsögöu var hann í skólahljómsveit-
Ferillinn hefst
Eftir stutta veru í hemum sneri Gaye
sér meira og minna alfarið aö tónlist-
inni. Fyrsta nafnkunna hljómsveitin
sem hann starfaði í var Marqees, sem
1958 varð the Moonglows. Og með
þeirri hljómsveit lá leið hans meðal
annars til Detroit þar sem Berry
Gordy, þá í þann mund að stofna
hljómplötufyrirtækið Motown
Hinn nýi Marvin
Gaye 1983 fullu'r
bjartsýni og
eftirvæntingar, sem
hann fékk eiginlega
aldrei að njóta.
Records, heyrði í þeim. Gaye tengdist
Gordy meö því að giftast systur hans
önnu Gordy og nú byrjuðu hjólin að
snúastfyriralvöru.
Til að byrja með fékkst Gaye við aö
leika á trommur við hljómplötuupptök-
ur og einnig á hljómleikaferðum með
nokkrum þekktum hljómsveitum, sem
voru á samningi hjá Motown, þar á
meðal Smokey Robinsson and the
Miracles. Fljótlega fékk hann þó aö
gera eigin plötur en þær fyrstu gengu
heldur treglega. Fyrsta lagiö sem
gerði nafn Marvins Gaye frægt var
„Stubborn Kind Of Fellow” og í kjölfar
þess komu stórlögin hvert á fætur
öðru. Meðal þeirra má nefna ,,Can I
Get A Witness”, „How Sweet It Is (To
Be Loved By You)”, lrAint That
Peculiar” og „I Heard It Through The
Grapevine”, sem 1968 fór á toppinn
bæöi í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Fyrsta áfallið
Marvin Gaye var þegar hér var
komið sögu orðinn heimsfrægur tón-
listarmaður og Motown notaöi nafn
hans til að koma ungun söngkonum á
framfæri meö því að láta þær syngja
dúett með honum. Meðal þessara söng-
kvenna má nefna Mary Wejls, Kim
Weston, Tammi Terrell og Diana Ross.
Gaye hafði sjálfur mesta ánægju af
samstarfinu við Tammi Terrell og það
varð honum því mikið áfall er hún datt
meövitundarlaus niður á sviði þar sem
þau sungu saman og í ljós kom að hún
var með ólæknandi æxli í heila. Terrell
lést1970.