Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 40
I
Fréttaskotið
68-78-58
SIMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984.
Hækkun
vaxta
kemur
ekki
til greina
— segir Steingrímur
„Hækkun vaxta telur ríkisstjórnin
ekki koma til greina enda raunvextir
töluveröir og meiri en áöur hafa veriö
hjá okkur Islendingum,” sagöi
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráöherra í framsöguræðu sinni fyrir
bandorminum í gær. Sagði hann aö
leiðrétting á vöxtum verötryggöra
lána væri þó talin nauösynleg til sam-
ræmis viö aöra vexti í bankakerf inu.
Forsætisráðherra sagði að halli á
ríkissjóði og erJendar lántökur ykju á
peningaþensluna sem þó væri mikil
fyrir. Aö auki hefðu útlán bankanna
aukist um 42% fyrstu þrjá mánuði árs-
ins og miðaö við þá verðbólgu, sem nú
er, væri þetta of mikil aukning. Ríkis-
stjórnin hefur því ákveðið að grípa til
tímabundinnar heimildar til
sveigjanlegrar bindiskyldu en sú
heimild verðui' aðeins notuö ef
óhjákvæmilegt þykir vegna aukinnar
þenslu. Sagöi forsætisráöherra að gert
væri ráð fyrir að þessi heimild félli
niöur þegar ný bankalöggjöf hefði
veriösamþykkt. OEF.
DAS ogGrund:
ENDURSENDU
KARTÖFLUR
Eliiheimilið Grund og Dvaiarheimili
aldraðra sjómanna, Hrafnista í
Reykjavík, hafa bæöi hætt kaupum á
kartöflum frá Grænmetisversluninni.
A Grund fengust þær upplýsingar að
sendar kartöfiur frá Grænmetis-
versluninni hefðu veriö endursendar. 1
stað þeirra mun vera ætlunin aö notast
viö grænmeti sem elliheimiliö fær frá
Hveragerði. APH
LUKKUDAGAR
5. MAÍ
4313
SKÍÐI FRÁ FÁLKANUM
AÐ VERÐMÆTI KR. 10.000,-
Vinningshafar hringi í síma 20068
LOKI
Og hver skyldi svo hafa
fengiö umboðslaun fyrír
finnsku kartöflurnar?
Eftirlit með flokkun kartaflna verður hert til muna:
KARTOFLURINNKALL-
AÐAR ÚR VERSLUNUM
— eftir fundarhöld heilbrigðisyfirvalda
Forstjóri Grænmetisverslunar-
innar, Gunnlaugur Björnsson,
hefur ákveöiö aö innkalla
ailar kartöflur i versiunum á
Reykjavíkursvæðinu. Kartöflurnar,
sem hér um ræðir, eru kartöflur sem
pakkaö hefur verið inn fyrir 3. maí.
Kartöflurnar veröa síöan endur-
metnar og flokkaðar aö nýju í Græn-
metisversluninni. Ráögert er aö
þessu verki Ijúki um miöja næstu
viku. Þá hefur einnig verið ákveðið
að herða allt eftirlit með kartöflum
sem fara frá Grænmetisversluninni
og vilyröi gefiö fyrir því aö kartöflur
verði ekki í eins slæmu ástandi og
verið hefur upp á siðkystið.
Þessi ákvöröun var tekin á fundi
sem forráðamenn heilbrigöisyfir-
valdanna, þeir Þórhallur Halldórs-
son, forstöðumaður Hollustuverndar
ríkisins, og Oddur Rúnar Hjartar-
son, framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlitsins sátu. Fundur þessara aðila
var haldinn í kjölfar bréfs sem
Neytendasamtökin sendu til heil-
brigðisyfirvalda þar sem þau fóru
þess á leit að fjarlægöar yrðu úr
verslunum skemmdar og rotnandi
kartöflur enda ekki æskilegt að hafa
slíkar kartöflur innan um önnur mat-
væli.
Hollustuvemd ríkisins hefur
farið þess á leit við heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkursvæðisins að þaö kanni
ástand kartaflna í verslunum og í
Grænmetisversiuninni. Þá er einnig
ráðgert að sent verði bréf til allra
annarra heilbrigðissvæða, sem eru
11 aö tölu, og heilbrigðisfulltrúar þar
beðnir aö kanna ástand kartaflna á
viðkomandi stööum.
Lofa bragarbót
Oddur Rúnar Hjartarson hjá
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur-
svæðisins sagði að fyrst Grænmetis-
verslunin væri búin aö lofa því að
bragarbót veröi gerð í þessum
málum myndu þeir ekki aöhafast
neitt til að byrja með. Þeir myndu
hins vegar kanna ástand kartafina
strax og Grænmetisverslunin væri
búin að endurflokka þær og athuga
hvort ástand þeirra væri
fullnægjandi. Gunnlaugur
Bjömsson, forstjóri Grænmetis-
verslunarinnar, sagði að eftirlitið
með flokkun kartaflnanna hefði ekki
verið nægilega gott og væm þaö
mannleg mistök. Hann sagði að þaö
eftirlit yrði nú framvegis mun
strangara. Hann benti einnig á þaö
að finnsku kartöflumar væm mun
viðkvæmari en aðrar kartöflur og
stafaði það m.a. af því að þar í landi
væri ekki heimilt að nota varnarefni
í kartöflumar. En fyrir vikið væru
þessar kartöflur mun hollari en
aðrar. Gunniaugur sagðist ekki vita
hvort þaö yrði kartöflulaust í
vérslunum vegna þessarar inn-
köllunar. I gær hefðu verið keyrðar
út kartöflur sem flokkaöar heföu
verið mun betur en þær sem áður
höfðu farið í verslanir. Þetta væri að
sjálfsögðu tímafrekt.
Geta má þess að dag hvem fara
um 40 tonn af kartöflum út úr Græn-
metisversluninni í dreifingu. -APH.
— sjá einnig bls. 2
Fjölmenni var i fimmtugsafmæii Hekiu hf. igærdag. Við sjáum hór hvar framkvæmdastjóri Heklu, Sigfús
Sigfússon, tekur á móti mynd að gjöf frá fulltrúum Eimskips. Afmælismyndin sýnir hver verið er að aka
Caterpillarjarðýtu úr einu skipa fólagsins. D V-mynd: Loftur
STÁL VERKSMIÐJA
ER EKKIARÐBÆR
—segirí skýrslu dansks ráðgjafarfyrirtækis
1 skýrslu sem danskt ráðgjafar-
fyrirtæki vann fyrir lönþróunarsjóð
og Framkvæmdasjóð er komist að
þeirri niðurstöðu að ekki sé arðbært
að reka stálverksmiðju hér á landi.
Skýrslan var unnin á vegum
sjóðanna til að gera þeim kleift að
meta hvort Stálfélagið eigi að njóta
fyrirgreiðslu þeirra við uppbyggingu
á verksmiðju til framleiðslu á
steypustyrktarjárni.
Sverrir Hermannsson átti í gær
fund með forsvarsmönnum sjóðanna
og Stálfélagsins. Hann sagði í
samtali við DV að danska ráðgjafar-
fyrirtækið hefði komist að þeirri
niðurstöðu í skýrslu sinni að miðað
við verðlag á stáli, markaðsaðstæöur
og aöra þætti yrði rekstur stálverk-
smiðju hér á landi ekki með þeim
hætti að hún skilaöi viðunandi arði.
Sverrir sagöi að skýrslan væri aö
vísu bæði ómerkileg og illa unnin, en
allt að einu væri þetta niðurstaða
hennar.
A fundinum var ákveðið að
sjóðirnir boðuðu hingað til lands sér-
fræðingana sem unnu skýrsluna til
aö hægt væri að koma á sameiginleg-
um fundi þeirra og Stálfélagsmanna.
Munu sérfræðingarnir koma hingað
til lands eftir rúma viku. Forsvars-
menn Stálfélagsins telja að ráðgjaf-
arfyrirtækið sé ekki óvilhallur aðili
að þessu máli og hafa margt við
skýrsluna að athuga. Bera þeir
meöal annars fyrir sig að ráðgjafar-
fyrirtækið sé í samstarfi með fyrir-
tækjum i dönskum stáliðnaði sem
eru í samkeppni á þessum markaði
við sænsk fyrirtæki. Stálfélagið er
hins vegar í samstarfi við sænskt
fyrirtæki og hefur keypt þaðan not-
aða verksmiðju.
-ÓEF.
Þrírhundar
lokaðirinni
i eldsvoða
Frá Júlíu Imsland, fréttaritara DV á
Hornafirði:
Hundur brann inni í eldi sem kom
upp í íbúðarhúsinu Smárabraut 19 á
Hornafirði laust eftir klukkan tvö í
gærdag. Tveir aðrir hundar voru inni í
húsinu og voru þeir lifgaðir við.
Ekki er vitað um orsök eldsins en
hann var hvað mestur í forstofu
íbúðarinnar. Miklar skemmdir urðu á
húsinu af völdum elds, hita og reyks.
Það var vegfarandi sem varð eldsins
var og tilkynnti um hann til slökkvi-
liðsins. Engir íbúar hússins voru
heima en í því bjuggu ung hjón.
Slökkvistarf gekk ágætlega og
var því lokið skömmu eftir að slökkvi-
iiðiö kom á vettvang.
-JGH
„Fannst þetta
snjöll
hugmynd”
— sagði maðurinn sem
rændi piltunum er
stálu hjóli hans
„Mér fannst þetta snjöll hugmynd og
framkvæmdi hana,” sagöi maðurinn,
sem rændi piltunum tveimur í fyrra-
kvöid og ók þeim upp í Bláf jöU þar sem
hann skiidi þá eftir, i yfirheyrslu hjá
Hafnarf jarðarlögreglunni í gærdag.
Maðurinn, sem er um tvítugt, hafði pilt-
ana tvo grunaða um að hafa stolið hjóli
fjTÍr utan heimili sitt. Þeir þrættu fyrir
það en í gærdag játuðu þeir stuldinn.
Fannst það sem þeir höfðu stolið af þvi í
bílskúr heima hjá öðrum þeirra. Sjálft
hjólið hafði hins vegar komiö í leitimar í
fyrrakvöld.
Báðir piltamir höföu borið þráfald-
lega á móti því að þeir hefðu stolið
hjólinu og sögðu til dæmis foreldrum
sínum að það væri af og frá. -jGtt-