Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Qupperneq 32
FRETTASKOTIÐ
687858
SÍIVIINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
efla vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ1984.
Mátaferlivegna
happdrættis-
vinnings:
Fyrrum sambúðar-
f ólk deilir
Fyrir héraðsdómi í Kópavogi
liggur nú mál vegna deilu tveggja
einstaklinga um vinningsmiða í
Happdrætti Háskólans en á þennan
miða féll 20 þúsund kr. vinningur.
Fólkið var fy rrum í sambúð en sleit
samvistum um svipað Ieyti og vinn-
ingur féll á miðann. Miðinn er
skráöur á nafn mannsins en konan
hefur alltaf séð um endumýjun á
honum.
Oiafur St. Sigurðsson, héraðs-
dómari í Kópavogi, sem hefur málið
til meðferðar sagði í samtali við DV
að málið biöi nú vitnaleiðsla og mál-
flutnings sem ekki hefur veriö hægt
að koma við enn þar sem maðurinn
dvelst nú eriendis. „Þetta mál
tengist forræði barna og eigna-
skiptum vegna sambúðarslitanna og
er aöeins lítill angi af því,” sagöi
hann.
HHt er réttargæsluaöili 1 máUnu
og geymir vinninginn á vöxtum
meðan málið er óútkljáð en á sínum
tíma náðust ekki sættir um að skipta
vinningnum. —FRI
Bflaleigustríðí
uppsiglingu
á Akureyri?
Stór bíialeiga tekur til starfa á
Akureyri í dag og kemur hún til með
að veita InterRent Uflega samkeppni
sem hefur verið nær einráð á þessum
markaði á Akureyri undanfarin ár.
Fyrir nokkrum dögum var stofnuð
bUaleigan Geysir og mun hún starfa i
nánu samstarfi við bílaleigu með
sama nafni í Reykjavík en eigendur
eru Kjartan Bragason og Hafsteinn
Hassler. Kjartan sagði í samtaU við
DV aö þeir mundu byrja með 12 bíla
en seinna í sumar yrðu þeir allt að 30
að tölu, allt nýlegh- bílar. Fyrst um
sinn verður bílaleigan tU húsa að
Skipagötu 13 en flyst síðan í húsnæði
viö HvannaveUi í haust.
„Samkeppni er núttúrlega eðUleg
og á fullan rétt á sér,” sagði Kjartan.
„Verð hafa hér þótt í hærri kantinum
á Akureyri vegna einokunar."
JBH/Akureyri
LUKKUDAGAR
15. júní
29897
HLJÓMFLUTNIIMGSTÆKI
FRÁ FÁLKANUM AÐ
VERÐMÆTI KR. 40.000,-
Vinningshafar hringi í síma 20068
Vinnuslys varð við hús Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar ígærdag er maður
fóii þar af vinnupalli á þriðju hæð. Ekki tókst að afla nákvæmra upplýsinga um
meiðsii mannsins en hann mun ekki talinn ílífshættu. D V-mynd HS.
Sportbátaeigendur:
Hugðust loka
danska her-
skipið mm
Sportbátaeigendur íhuguðu í gær
að loka danska herskipið Be-
skytteren inni í Reykjavíkurhöfn þar
tU vUyrði hefði fengist fyrir því aö
bátur Einars Hákonarsonar Ust-
málara yrði bættur. Áður en tU að-
gerða kom sigldi danska skipið úr
höfninni með sjóUðann, sem játaði að
hafa eyðilagt bát Einars.
SjóUðinn er eignalaus. Foreldrar
hans hafa neitað að greiða tjóniö
fyrirhann.
„Það er komin glæta í málið,”
sagði Einar Hákonarson í morgun.
„Utanríkisráðuneytið íslenska og
danski sendiherrann eru í samein-
ingu að reyna að finna lausn,” sagði
Einar.
-KMU.
Skagamenn sigla
íland, Snæfell-
ingarekki
„Það var ekki ályktaö aö sigla í
land en við samþykktum á fundinum
að skora á LIO að halda allsherjar
fund um þetta mál,” sagði Olafur
Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss HeUisands, um firnd
útgerðarmanna á Snæfellsnesi í gær-
kvöldi.
„Við erum með báta sem eru svo
langt komnir með kvótann sinn að
þeim verður lagt hvort sem er innan
skamms,” sagði Olafur.
Fleiri útgerðarmenn héldu fundi i
gær. Utgerðarmenn á Akranesi
ákváðu á sínum fundi að stefna sín-
um togurum í land þann 8. júlí verði
ekki búið að skapa viöunandi
rekstrarskilyrði fyrir skipin. Fjórir
togarar eru gerðir út frá AkranesL
Utgerðarmenn í Reykjavík komust
að þeirri niðurstöðu að ekki væri
grundvöllur fyrir samræmdar að-
gerðir aö svo stöddu. Lýst var þá yfir
áhyggjum vegna stöðunnar hjá út-
gerðinni.
>FGH
Vandræðiá Eyrarbakkamýrum:
Fangaverðir
deila um hross
Hatrammar deilur standa ný
yfir á Eyrarbakka og eigast þar við
þrír fangaverðir á Litla Hrauni og
yfirfangavörðurinn í Hegningar-
húsinu við Skólavörðustíg í Reykja-
vík. Deilt er um hagagöngu hrossa
og hefur sú deila staðið síöan 1979.
„Gripastuldur þótti alvarlegur
glæpur hér áður fyrr en nú er svo
komið að ég hef ekki hugmynd um
hvar hestar fjölskyldu minnar eru,
einhver hlýtur að hafa f jarlægt þá,”
segir yfirfangavörðurinn úr Reykja-
vík.
„Hann hefur ekkert leyfi til að
hafa hesta hér. Þetta er Reyk-
víkingur og hestagirðing okkar er
aöeins fyrir félagsmenn í Félagi
búfjáreigenda á Eyrarbakka,” segja
fangaverðimir á Litla Hrauni og
bæta við: „ Það þýðir ekkert fyrir
manninn aö láta eins og hann hafi
selt ættingjum sínum hér á Eyrar-
bakka hesta sína strax og vorar, við
vitum betur, þetta er allt plaL”
Sonur yfirfangavarðarins úr
Reykjavík og mágur, sem báðir eru
búsettir á Eyrarbakka, hafa gert
ítrekaðar tilraunir til að ganga í
Fél. búfjáreigenda á Eyrarbakka og
fá þar með réttindi til að beita
hestum sínum í Eyrarbakkamýrina
að sumarlagi, en alltaf verið synjað.
„Eg kann skýringu á þessari vit-
leysu aUri,” segir yfirfanga-.
vörðurinn úr Reykjavík. „Þessir þrír
fangaverðir og hestamenn á Litla
Hrauni hafa aUtaf öfundaö mig af
hestum minum og sjálfum mér.” Að
sögn yfirfangavarðarins er frekari
tíðinda að vænta úr Eyrarbakka-
mýrinni áður en langt um líður. _EIR
Glæný skýrsla LÍU um togarana:
OGRIMEÐ BESTA
FISKINN AÐ LANDI
— stóru Reykjavíkurtogararnir og austf irsku togaramir veiða að meðaltali besta fiskinn
Stóru togararnir í Reykjavík og
Hafnarfirði veiddu að meðaltaU
verðmætasta fisk allra togara á Is-
landi fyrstu 4 mánuði þessa árs.
Næstir á eftir þeim koma austfirsku
togararnir og vekur það nokkra
athygU.
Þetta kemur fram í yfirUti yfir
aflaverðmæti og úthaldsdaga togar-
anna fyrstu 4 mánuði ársins sem
Landssamband Islenskra Utvegs-
manna hefur látið gera.
Það er togarinn ögri RE 72, stór
togari, sem hefur komið með besta
aflann að landi, meðalskiptaverð-
mæti á hvert kíló er 14,86 krónur.
Sá togari sem er með mesta afla-
verðmæti allra togara er Vigri RE
71, aflaverðmæti upp á rúmar 28,5
milljónir króna. (Vigri með meiri
afla en ögri). ögri er í öðru sæti yfir
aflaverðmæti með rúmar 27,1 miUj-
ónkróna.
Þeir togarar sem koma með verð-
minnsta fisk að landi eru stóru togar-
amir á Akureyri. Meðalskiptaverð-
mæti á kíló er 6,85 krónur.
Það vekur athygli að austfirsku
togararnir eru í ööru sæti yfir þá tog-
ara sem koma með besta aflann að
landL Meðalskiptaverðmæti á kíló er
9,30krónur.
Togarar í Vestmannaeyjum,
Suðurlandi og á Vesturlandi eru meö
meðalskiptaverðmæti á kíló 7,48
krónur. Vestfirsku togaramir em
með meðalskiptaverðmæti á kíló 7,72
krónur. Norðlensku togararnir,
minni togarar, em með meðalskipta-
verðmæti á kíló 8,76 krónur.
Þegar meðalskiptaverömæti á út-
haldsdag er skoðað koma stóru
togararnir í Reykjavík og Hafnar-
firði aftur best út. Austfirsku togar-
amir em þar í f jórða sæti. Lakastir
era hins vegar minni togararnir á
Norðurlandi.
Samkvæmt upplýsingum LlÚ
virðist sem úthald togara hafi ekkert
minnkaö þrátt fyrir að kvótakerfið
hafi verið tekiö upp á þessu ári. Þá
hefur áður komið fram að minni
þorskafli er hjá togurunum á þessu
árienífyrra.
-JGH