Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 2
2
DV. MÁNUDAGUR 23. JULÍ1984.
Skothvettir á
Skagaströnd
— tímamótahátíð í Hunavatnssýslu
„Eg er búinn aö biöja guö um gott
veður og þaö á örugglega eftir aö
standast því á milli okkar er gott sam-
band,” sagði Hallbjöm kántrí Hjartar-
son sl. föstudagsmorgun er hann stóö á
kafi í samlokum í Kántrýbæ sínum
norður á Skagaströnd og var í þann
mund aö setja fyrstu kántríhátíð hér-
lendis, einkaframtak sem seint mun
líöa úr minni Skagstrendinga. „Eg tek
mikla fjárhagsáhættu meö þessu, ég er
búinn aö fjárfesta svo mikiö í
samlokum og ööru dóti og útvarps-
auglýsingar eru dýrar,” sagöi kúreka-
hetjan. Þegar leiö á helgina kom í ljós
aö guö haföi ekki alveg staðiö viö
loforðiö um góöa veðriö en samlok-
urnar seldust ágætiega.
Kantríhátíöin varö ekki sú fjölda-
samkoma sem Hallbjöm haföi vonast
eftir en þó má telja að nokkur hundruð
manns hafi heimsótt Skagstrendinga
um helgina og eru örugglega margar
aldir síöan svo margir hafa veriö
samankomnir í einu í þessu litla og
afskekkta þorpi noröur viö
heimskautsbaug. Gestimir komu víöa
aö og sást þaö best á bílnúmerum bíl-
anna því á þeim mátti nær því lesa allt
stafrófið.
Skemmtiatriöi útisamkomunnar
voru ekki með hefðbundnu sniöi því öll
gengu þau út á kúrekastæia. Frá
Akureyri kom kúrekinn og söngvarinn
Siggi Helga, Johnny King frá Húsavík
og danshljómsveitin Týrol var sótt á
Sauðárkrók. Og svo tróö aö sjálfsögöu
Hallbjörn sjálfur upp meö dýrasta hatt
á Norðurlandi vestra en þá mátti
kaupa í Kántrýbæ fyrir litlar 790
krónur. Þá kostaöi 600 krónur á
skemmtunina sjálfa.
Skothvellir úr púðurbyssum glumdu
í lofti nær látlaust líkt og þúsund spóar
væm aö vella í mýri og kynnir hátíöar-
innar haföi nóg aö gera viö aö auglýsa
eftir týndum skammbyssum eöa til-
kynna um aörar fundnar. I félags-
heimilinu voru sýndar kúrekamyndir
og báðar rásir Ríkisútvarpsins uröu að
víkja fyrir einkaútvarpi Hallbjarnar
sem hljómaði í 15 km radíus út frá
Skagaströnd. Því stjómaði Pálmi
Bimbó frá Akureyri og var hann jafn-
framt framkvæmdastjóri þessarar
tímamótahátíðar.
„Eg er ánægöur meö þessa hátíö,”
sagöi Hallbjörn á laugardagskvöldiö
þegar dansinn dunaöi sem hæst og
kúrekahattamir flugu um loftin, „en
þaö á eftir aö koma í ljós hvort ég fer á
hausinn meö þetta alít saman. Hér
hafa ekki verið nein vandræöi og varla
sést vín á manni, þaö er mér aö skapi.
Þaö er alltaf verið aö bjóða mér sjúss
og þá beiti ég því bragöi aö stinga tung-
unni upp í stútinn og þykjast drekka.
En ef nefna á einhverja annmarka þá
vil ég helst aö þaö komi fram að
hreppsnefndin brást algerlega í
salernismálunum. Þeir voru búnir aö
lofa aö hafa opið hér niöri í félagsheim-
ilinuensviku þaö.”
Hallbjörn sagöist hafa orðið var viö
breytingar á afstööu fólks til sín upp á
síökastið og mætti rekja það til þeirrar
staöreyndar aö nýtt líf væri að færast í
þorpið fyrir sinn tilverknað. „Eg hef
veriö litinn hornauga hér á staönum
síöan kántríævintýrið hófst en nú eru
ólíklegustu menn farnir aö styðja við
bakið á mér,” sagöi Hallbjörn sem er
staöráðinn í aö gera kántríhátíöir aö
árlegum viðburöi á Skagaströnd öllum
til blessunar.
-EIR
Hallbjörn og félagar heilsa gestum á kántríhátíðinni.
Hallbirni mistekst að snara belju. Johnny King fylgist með, reiðubúinn að
grípa inn i.
Johnny King náði taki á nýfæddum kálfi og Hallbjörn batt hann á staðnum.
Ródeókúreki illa flæktur
i eigin kaðli.
Kántríútvarp FM 97
— Hallbjörn sigraöi Póst og síma
„Ég vann þetta stríð og það skiptir
öllu. Þaö skiptir minna þó þetta kosti
mig einhverja peninga. Ég ætlaði aö
vera meö kántríútvarp og þaö tókst,”
sagöi Hallbjörn kántrí í samtali viö DV
í höfuðstöövum útvarpsstöövar sinnar
sem var til húsa í litlu herbergi í risi
Kántrýbæjar þar sem Hallbjörn selur
matvöru, veitingar og minjagripi alls
konar. Kántríútvarpiö hljómaði aiia
hátíðina undir stjóm Pálma Bimbó frá
Akureyri sem tekið hefur Hallbjörn og
listiðkanir hans upp á arma sína.
Með öllu fylgdist tæknimaöur frá
Pósti og síma sem sendur var alla leið
til Skagastrandar til aö hafa eftiriit
meö aö kántríútvarpiö truflaði ekki
aörar og hefðbundnari öldur ljósvak-
ans og var Hallbimi gert aö borga
brúsann. Utvarpsstjóri haföi veitt
Hallbirni leyfi til aö útvarpa kántrí-
músík á Skagaströnd hátiöardagana
meö því skilyröi að eingöngu yröi not-
aður tækjabúnaöur frá Pósti og síma.
Það sem hann vissi ekki þegar leyfið
var veitt var að slíkur tækjabúnaður er
ekki til staðar hjá Pósti og síma. Þaö
sem til er er allt í notkun annars staö-
ar.
Hallbjörn hafði aftur á móti útvegaö
sér sendi hjá Bimbó á Akureyri og ætl-
aði aö nota hann hvaö sem hver segði.
A síðustu stundu var sæst á að tækni-
maður frá stofnuninni mætti á staðinn
og útsendingar yröu leyföar meö
tækjunum frá Bimbó. Otvarpið heyrö-
ist vel og víöa í nágrenni Skagastrand-
ar og flutti jafnt tónlist sem tilkynning-
ar um dagskráratriði á kántríhátíö-
inni.
-EIR
Hallbjörn í titrandi stufli á kántrídansleik.
Kántríútvarp FM 97 i fullum gangi. Pálmi Bimbó við hljóðnemann og Hall-
björn fylgist með.