Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 21
DV. MÁNUDAGUR 23. JULl 1984.
21
Heimsmetin
féllu í
Austur-Berlín
og Potsdam
28
Þróttur skor-
aði rétt i
lokin á
Akureyri
24
Ballesteros
sigurvegari á
á British Open
25
„Nú verður
gaman að
fara til
Los Angeles”
22
Svíar rót-
burstuðu
Norðmenn
26
Ólympíuleikarnir íLos Angeles hefjast á laugardag:
ísl.frjálsíþróttafólkið
komið í ólympíuþorpið
— Einar Vilhjálmsson kastaði 84,50 m íspjótkasti íEugena á laugardag og varð íþriðja sæti
„Viö fluttum inn í ólympíuþorpið hér
í Los Angeles í gær. Aðstaða er þar
mjög góð og við erum á heimavist
UCLA háskólans,” sagði Oddur
Sigurðsson, KR, þegar DV ræddi við
hann í gær. Ásamt honum fluttu inn í
ólympíuþorpið þau Einar Vilhjálms-
son, íris Grönfeldt, Kristján Harðar-
son, Sigurður Einarsson, Vésteinn Haf-
steinsson og Þórdis Gísladóttir, eða
frjálsíþróttafólk okkar sem keppir á
ólympíuleikunum. Þeir hefjast um
næstu helgi, setningarathöfn á laugar-
dag, 28. júlí. Þá er liðsstjórinn, Þráinn
Hafsteinsson, einnig kominn í ólympíu-
þorpið. Óskar Jakobsson keppir ekki á
ólympíuleikunum vegna meiðsla.
Hann sleit sinufestar í handarbaki
1980 I A (Mynifnc Cnmnnnm
Dregið í
bikarnum
— Fram-KR íödrum
leiknum í undanúrslit
en óvíst enn við hverja
Þróttur leikur
Á laugardag var dregið í undanúrslit
bikarkeppni Knattspyrnusambands ís-
lands og fór athöfnin fram í sjónvarps-
sal í beinni útsendingu. Niðurstaðan
varþessi.
Fram — KR.
Breiðablik eða Akranes — Þróttur.
Breiðablik og Akranes leika í 8-liða
úrslitum í Kópavogi á miðvikudags-
kvöld. Það lið, sem sigrar í þeirri
viðureign, fær heimaleik gegn Þrótti í
undanúrslitum.
Leikirnir í undanúrslitum eiga að
fara fram 31. júlí, þriðjudag, en ekki er
víst að þeir fari báðir fram þann dag.
Úrslitaleikur bikarkeppninnar verður
á LaugardalsveUi 26. ágúst.
hsím.
fyrir nokkrum vikum og getur ekki
varpað kúlunni. 1 kringiukastinu náði
hann ekki lágmarksárangri til þátt-
töku, eöa 62 metrum.
„Það hefur gengið mjög vel hjá mér
á æfingum síðustu vikurnar og ég er
bjartsýn á góðan árangur á leikunum,
komist ég á sama stig og þegar ég
hljóp 400 metrana í vor á 45,36
sekúndum. Mér finnst að aUt stefni í
það,” sagðiOddur.
Einar kastaði 84,50 m
Einar Vilhjálmsson tók þátt í miklu
frjálsíþróttamóti í Eugene í Oregon á
laugardag. Hvassviöri eyðilagði nokk-
uð árangur þar en aðalafrekið þar var
nýtt bandarískt met hjá Mike Tully í
stangarstökki, 5,84 m. Einar varð
þriðji í spjótkastinu, kastaði 84,50
metra, svo hann hefur hægt og sígandi
lagaö árangur sinn á ný að undanfömu
í spjótkastinu eftir gífurlegar æfingar í
júní og framan af júlí. Bretinn Roald
Bradstock sigraöi í Eugene í spjótkast-
inu. Kanadamaður varð í öðru sæti,
Einar þriöji og heimsmethafinn fyrr-
verandi, Tom Petranoff, í fimmta sæti
með rúma áttatíu metra.
Vésteinn í þriðja sæti
Þau Vésteinn, Iris, Kristján og Þór-
dís tóku þátt í frjálsíþróttamóti í
Sacramento á laugardag. Vésteinn
varð þriðji í kringlukasti, kastaöi 61,34
m. Iris varð önnur í spjótkasti kvenna
með 53,52 metra. Of mikill meðvindur
var í langstökkinu en nánar er skýrt
frá úrslitum þessara móta á bls. 22.
Sigurður var þriðji í spjótkastinu,
kastaði 76,19 m.
hsím.
Oddur Sigurðsson
gengið mjög vel.
æfingar hafa
Tíu stiga forusta Skagamanna og bjart útlit:
Ekki þó hægt að taka mynd
af þeimstraxsem meisturum
„Keflvíkingar féllu í þá gryfju að
hætta að leika knattspyrnu í síðari
hálfleik. Beittu þá kröftunum meira og
það kom þeim í koll. Þeir töpuðu leikn-
um á því í stað þess að halda áfram
þeirri knattspyrnu sem þeir höfðu
leikið í fyrri hálfieik,” sagði Hörður
Helgason, þjálfari Skagamanna, eftir
að lið hans hafði sigrað Keflvíkinga 2—
1 í Keflavík í gærkvöld í 1. deildinni.
Þar með hafa Skagamenn náð tíu stiga
forustu í deildinni og stefna hraðbyrði í
íslandsmeistaratitilinn. Áttundi sigur-
leikur Skagamanna í röð i deildinni eða
frá því í 4. umferð.
„Vissulega er útlitið bjart. Sigur-
möguleikamir í mótinu gríöarmiklir
en ekki vil ég þó láta taka mynd af
Skagamönnum strax sem Islands-
meisturum,” sagði Gunnar Sigurös-
son, Akranesi, stjórnarmaður í KSI.
Akumesingar voru mjög fjölmennir á
leiknum í Keflavík. Þar mátti sjá fjöl-
marga bíla merkta E. 2103 áhorfendur
keyptu sig inn á völlinn. Metaösókn á
leikíl. deildísumar.
„Við lékum mjög vel í fyrri hálf-
leiknum en í þeim síðari var slakað á.
Viö fengum á okkur tvö ófyrirgefanleg
klaufamörk. Keflavík var betra liðið í
leiknum og hefði átt að gera út um leik-
inn í fyrri hálfleiknum,” sagði Haukur
Hafsteinsson, þjálfari Keflavíkurliðs-
ins, eftir leikinn.
„Völlurinn hér í Keflavík er til
skammar,” sagði Þorsteinn Bjamason
landsliðsmarkvörður eftir leikinn en
hann rann til í leöjunni við mark
Keflavíkur þegar Skagamenn jöfnuðu í
1—1 á 74. mín. Þaö var eftir auka-
spymu Jóns Áskelssonar við hliðarlínu
á miðjum velli. Knötturinn sigldi í
markið eftir að Sigurður Halldórsson
hafði aðeins komið við hann áöur en
hann fór yfir marklínuna. Báðir vildu
þeir Jón og Sigurður eigna sér markiö
eftir leikinn.
emm/hsím
Markaregn
í Laugardal
Mikið markaregn var í Laugardaln-
um þegar Víkingur vann KA 6—2.
Mesta markaskorun í einum leik í 1.
deild í sumar. Heimir Karlsson skoraði
Heimir Karisson, Víkingi, tU hægri, skoraði þrennu í leiknum við KA í gærkvöld.
Fyrsta þrennan í sumar í 1. deUd. TU vinstri er Erlingur Kristjánsson, KA.
DV-mynd Óskar.
þrjú mörk fyrir Víking í leiknum —
fyrsta þrenna leikmanns í 1. deild í
sumar. Jafnframt fyrsta þrennan, sem
Heimir skorar fyrir Víking.
Fjórir leikir voru í 1. deild Islands-
mótsins í knattspyrnu um helgina í 12.
umferðinni. Urslit uröu þessi:
KR-Valur 0-0
Víkingur-KA 6—2
Keflavík-Akranes 1—2
Þór-Þróttur 0—1
Staðan er nú þannig.
Akranes 12 10 1 1 22- -8 31
Keflavík 12 6 3 3 14- -11 21
Þróttur 12 4 6 2 13- -10 18
Víkingur 12 4 4 4 21- -20 16
Valur 12 3 5 4 11- -10 14
KA 12 3 4 5 18- -23 13
KR 12 2 6 4 11- -19 12
Fram 11 3 2 6 13- -15 11
Breiðablik 11 2 5 4 10-12 11
Þór 12 3 2 6 14- -19 •11
Fram og Breiðablik leika í kvöld á
Laugardalsvelli.
Markahæstu menn eru nú:
Guðm. Steinsson, Fram, 6
Heimir Karlsson, Víkingi, 5
Hörður Jóhannesson, Akranesi 5
Árni Sveinsson, Akranesi 4
Hinrik Þórhallsson, KA, 4
Páll Olafsson, Þrótti 4
Sig. HaUdórsson, Akranesi 4
-hsim.
OLYMPIUELDURINNILOS ANGELES
— hlaupið með eldinn um borgina á laugardag og gríðarlegur umferðarhnútur skapaðist eftir það
Ólympíueldurinn kom til Los Angel-
es á laugardag og mikU fjöldi áhorf-
enda var viðstaddur þegar hlaupið var
með hann um götur ólympíuborgarinn-
ar eftir 75 daga hlaup með hann um
Bandaríkin. Yfir 4000 hlauparar hafa
hiaupið með eldinn í 33 fylkjum Banda-
rikjanna.
Ekki veröur þó fariö meö ólympíu-
eldinn beint á leikvanginn í Los Angel-
es. Það verður haldiö áfram að hlaupa
með hann um suöurhluta Kaliforníu.
Síðan snúið við og komið meö eldinn á
opnunarhátíð leikanna í Los Angeles
næsta laugardag. Eftir að hlaupið
hafði veriö meö ólympíueldinn í Los
Angeles á laugardag myndaðist
gríðarlegur umferðarhnútur í
borginni. Menn óttast aö sama verði
uppi á teningnum meöan á leikunum
stendur í Los Angeles. Bifreiðaeign
borgarbúa er gríöarleg.
Talsverðar deilur voru milli Grikkja
og Bandaríkjamanna um ferð
ólympíueldsins í USA. Sagt er að það
hafi kostaö 3000 dollara að hlaupa með
eldinn einn kílómetra. Framkvæmda-
nefnd ólympíuleikanna hefur ekki
neitaö því en sagt að allur ágóði hafi
runnið til góðgerðarstarfsemi. Ýmsir
hlupu með eldinn, sá yngsti fimm ára
en sá elsti 75 ára. Þar voru blindir
hlauparar og fatlaðir og meira segja
einn úr hópi „Heil Angels” mótorhjóla-
manna. Gina Hemphill, barnabarn
Jesse Owens, hetjunnar frá Berlínar-
leikunum 1936, var meðal hinna fyrstu
sem hlupu með eldinn í New York.
hsím.