Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 5
DV. MÁNUDAGUR 23. JULl 1984.
5
Arekstur Harðbaks og sovéska skemmtiferðaskipsins Estonia á Strandagrunni:
„TOGARINN LAGÐIST
ÞVÍ NÆST A HLIÐINA”
— átti fótum f jör að launa, segir Jón Gunnar Guðmundsson, fyrsti stýrimaður á Harðbaki
„Það var óhugnanlegt að sjá þetta
ferlíki koma æöandi aö okkur utan úr
þokunni og vita að ekkert yröi að gert
til aö afstýra árekstri,” segir Jón
Gunnar Guömundsson, fyrsti stýri-
maður á Akureyrartogaranum Harö-
baki, sem lenti í árekstri við sovéska
skemmtiferðaskipið Estonia á
Strandagrunni aöfaranótt laugar-
dagsins.
Engin slys urðu á mönnum við
áreksturinn en skipin skemmdust
nokkuð, sérstaklega Harðbakur, enda
sovéska skipið rúm fimm þúsund tonn
að stærð en Harðbakur tæp þúsund.
Svartaþoka
Tildrög óhappsins voru þau aö
100 metra í okkur. Og ég sé aö það eina
sem hægt er að gera er að foröa sér og
ég hleyp frá bakborðssíðunni eins og
fætur toga, hef áreiðanlega sett
persónulegt met í hlaupum,” segir Jón
Gunnar.
Næstum á hliðina
Og það skiptir engum togum, stefni
sovéska skipsins skellur á bakborðs-
síðu togarans af miklum krafti. Höggið
var það mikið að togarinn leggst því
næst á hliðina, hallaöist um 60—70
gráöur aö sögn Jóns Gunnars.
Við áreksturinn kom sex metra langt
gat á bakborðshliö Harðbaks frá
brúarvæng niöur á mitt skip.
„Það var í raun mesta mildi að
enginn skyldi slasast því að tvær
„Þetta stenst engan veginn hjá
þeim, þeir hljóta að hafa breytt um
stefnu,” segir Jón Gunnar. „Og þaö
eitt aö sigla á sex til sjö mílna hraða
innan um skip að veiðum í svartaþoku
er hreint brjálæði. Viö höfum allan rétt
okkar megin. Skip sem er að veiðum er
í fullum rétti gagnvart skipi sem er á
fullri ferö. Og ennfremur koma þeir að
okkur frá vinstri og hægri rétturinn
gildir jafnt á sjó og í landi,” segir Jón
Gunnar.
Að loknum s jóprófunum hélt Fstonia
úr höfn en Haröbakur veröur aö öllum
líkindum frá veiöum næsta mánuð-
inn og jafnvel lengur. Skemmdir
hafa ekki verið kannaðar að fullu
ennþá.
-SþS.
Eins og sjá má urðu talsverðar skemmdir á Harðbaki við áreksturinn og er talið að hann
verði aðminnsta knsti einn mðnnð frð vpiðnm. DV-myndÍr Þ.L.
Þessi mynd er tekin inni í klefa vélstjóra en hann vaknaði með stefni sovéska
skipsins inni á rúmstokk hjá sér. Hann sakaði þó ekki frekar en aðra við árekstur-
inn.
Harðbakur var að toga á Stranda-
grunnshomi, um 50 mílur norður af
landinu, innan um 10—20 togara. Voru
skipin nokkuð þétt saman vegna íss á
svæðinu. Á föstudagskvöld skall á
niðaþoka sem ekki er óvenjulegt á
þessum slóðum. Að sögn Jóns
Gunnars vissu þeir af sovéska skipinu
þarna í nágrenninu en töldu enga hættu
stafa af því vegna þess að togarinn
Skafti frá Sauöárkróki hafði tekið það
aö sér aö lóðsa Rússana út úr ísnum
áleiðis til Akureyrar.
„Til þess að komast út úr ísnum
þurfti að fara dálitlar krókaleiðir og ég
hallast helst aö því að Rússarnir hafi
alls ekki gert sér grein fyrir því
hvernig ástandið var þama á svæðinu
og bara viljaö fara beinustu leiö,”
segir JónGunnar.
Hvað um það, þeir Harðbaksmenn
héldu áfram að toga hinir rólegustu
um hálfa mílu frá ísbrúninni.
„Skyndilega sjáum við í radar hvar
skip kemur í áttina til okkar frá ísrönd-
inni. Við köllum upp á viðskiptabylgj-
unni en fáum ekkert svar. Þá er
bakkað á fullu og flautað og ég hleyp út
á brúarvænginn til að reyna aö sjá
hvaða skip sé þama á feröinni, eða
hvort þetta sé ísjaki. Ég sé strax að
þetta er sovéska skipið á mikilli ferð og
stefnir beint á okkur, á ekki nema 50—
vistarverur gjöreyðilögðust. önnur
var skipstjóraklefinn og var skipstjór-
inn rétt ófarinn í koju og hin var klefi
vélstjóra sem var í koju og vaknaöi
með stefni sovéska skipsins á rúm-
stokknum. Hann sakaði sem betur fer
ekki,” segir Jón Gunnar.
Eftir áreksturinn hafði sovéska
skipið samband við Harðbak og spuröi
hvort hann þyrfti á aðstoð að halda en
þeir sögðust geta séð um sig sjálfir,
hífðu inn trollið og stefndu til lands.
Enginn sjór komst í skipið, gatið var
það ofarlega. Á skemmtiferðaskipinu
sást ekki mikið fyrir utan lítilsháttar
kmmpur á stefninu.
Harðbakur í rétti
Togarinn Skafti sá um að lóösa Rúss-
ana inn á miðjan Húnaflóa en þá tóku
Harðbaksmenn viö þeim og komu þeim
til hafnar á Akureyri síðdegis á laugar-
dag.
Viö sjóprófin, sem haldin voru á
laugardagskvöld, bám stjórnendur
sovéska skipsins að þeir hefðu verið að
elta togarann Skafta út úr ísnum er
áreksturinn varö. Ennfremur sögðust
þeir hafa gefið hljóðmerki en sögöust
ekki hafa heyrt neitt hljóðmerki frá
Harðbaki. Þá töldu þeir skip sitt hafa
verið á sex til sjó mílna hraða er þeir
uröu Harðbaks varir.
Núfæröu
á myndböndum ánæstuOlú stöð
Viö höldum áfram þar sem frá var horfið í sjónvarpinu í vetur sem leið.
l\lú eru fjórir þættir komnir í dreifingu, sá fimmti kemur í
byrjun ágúst og síðan kemur nýr þáttur í hverri viku.
Fjölmargir hafa beðið eftir framhaldi sögunnar af olíufjölskyldunni
— það er mörgum spurningum ósvarað.
Hvernig reiðir fjölskyldunni af? — Sundrast hún?
Eða stenst hún álagið?
SVO MIKIÐ ER VÍST AÐ STORMASAMT ER FRAMHALDIÐ.
EINKAUMBOÐ: DREIFING: