Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 8
8 DV. MÁNUDAGUR 23. JUU1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Tjón unniö á hafmeyj- unni Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit- ara DV í Svíþjóö. Skemmdarverk var unniö á litlu hafmeyjunni viö Löngulínu í Kaup- mannahöfn um helgina. Aöfaranótt sunnudags var hægri handleggurinn sagaöur af styttunni og numinn á brott. Ekki er vitað hverjir voru þar aö verki né heldur hefur handleggur- inn komiö í leitirnar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skemmdarverk er unnið á litlu haf- meyjunni. Fyrir 20 árum var hún gerð höfðinu styttri og hún hefur oft veriö máluð í ólíkum litum á síðustu árum. Litla hafmeyjan átti 70 ára afmæli í fyrra og voru mikil hátíöahöld í Kaupmannahöfn af því tilefni, þar sem borgarstjórinn í Kaupmanna- höfn og ráöherrar dönsku ríkis- stjórnarinnar lögðu mikla áherslu á þýðmgu hennar fyrir danskan feröa- mannaiðnaö. Kaupmannahafnarbúar flykktust í gær út á Löngulínu til aö sjá með eigin augum þau spjöll sem unnin höfðu verið á hafmeyjunni. Enn hefur litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn orðiö fyrir barðinu á skemmdar- verkamönnum. Nú um helgina var hægri handleggur hennar sagaður af. ísrael: Verkamannafíokk- urinn vifíræða við Jórdaníumenn mannaflokkurinn eru líklegir til að fá hreinan meirihluta í kosningunum en skoöanakannanir benda til aö Verka- mannaflokkurinn muni fá meira fylgi. Spörudu við munaðariausa Svo illa mun búiö aö sumum munaðarleysingjahælum í Sovét- ríkjunum að börnin eru þar án skjólfatnaðar og hafa jafnvel aldrei séð ávexti eins og appelsínur eftir því sem dagblaðið „Pravda” heldurfram. I Sovétríkjunum eru 944 munaðarleysingjahæli og segir Pravda, að í flestum þeirra sé aðbúnaðurinn ekki svo slæmur, en í einhverjum tilvikum skorti hús- búnaö, skjólfatnaö og áhuga starfs- fólks fyrir velferð bamanna. — Á einu hælinu hafa verið fimm for- stööumenn á fimm árum og voru tveir þeirra reknir úr starfi fyrir lagabrot. Vitnaðist að í einhverju hælinu var ekkert gert til þess að hafa ofan af fyrir börnunum, nema þegar gesti bar að garöi. Á einu hælinu var húsið ekki kynt, ekki einu sinni aö vetrarlagi, nema þegar umsjónarmann þess opinbera bar aðtileftirlits. Danmörk: Fjármálaráð- herrann ákveð ur að hætta Einn leiðtoga Verkamannaflokksins í Israel sagöi í gær aö ef flokkurinn sigraði í kosningunum í dag yröi strax boöaö til viðræðna viö Hussein Jórdaníukonung um friö í Mið-Austur- löndum. Mordechai Gur, sem stjómar kosn- ingabaráttu Verkamannaflokksins, •sagði í viötali við fréttamenn að Huss- ein yrði boðið til viðræðna án nokkurra skilyrða af hálfu ísraelsmanna og hann teldi líklegt að árangur yrði af slíkum viöræðum. Gur sagöi jafnframt að hann teldi líklegt aö viðræður gætu farið fram við stjóm Sýrlands um að Israelsmenn hyrfu með herlið sitt frá suöurhluta Líbanons. Moshe Arens, vamarmálaráðherra Israels og einn af leiðtogum Likud- bandalagsins, sagöi í gær aö þessar vonir Verkamannaflokksins væm lítils viröi þar sem Hussein hefði ekki sýnt neinn vilja til viöræðna eða samkomu- lags sem tryggja mundu öryggi Israels. Arens sagði því að hér væri um lélegt kosningabragð að ræða af hálfu Verkamannaflokksins og væri það alls ekki raunhæft. Gur tók þaö fram í viðtalinu aö Frelsissamtökum Palestínumanna — PLO — yrði ekki boðið til viðræöna. Kjósendur í Israel munu gera það upp við sig í dag hvom þeir vilja sem forsætisráðherra, Yitzhak Shamir, sem nú gegnir þeirri stöðu, eða Shimon Peres, leiðtoga Verkamannaflokksins. Hvorki Likudflokkurmn né Verka- Talið er líklegt að Poul Schliiter muni gera töluverðar breytingar á stjóm sinni á næstunni og reka þá ráðherra sem hafa staðið sig illa. Búist er við að Poul Schluter, for- sætisráðherra Danmerkur, tilkynni um breytingar á ríkisstjóm sinni í dag eða á morgun. Henning Christophersen, fjármálaráðherra og formaður Vinstri-flokksins, lýsti því yfir I gær að hann hefði ákveðið aö hætta í dönskum stjómmálum og hef ja í þess stað störf hjá Efnahagsbanda- lagi Evrópu og er þaö trú manna aö Schlúter muni grípa tækifærið og gera fleiri breytingar á stjórn sinni. Talið er líklegt að Ihaldsflokkurinn taki við embætti fjármálaráðherra og búist er viö aö aö minnsta kosti tveimur ráðherrum verði sparkað um leið og Christophersen hættir. Eru þar helst nefndir til sögunnar Tom Höyem Grænlandsmálaráðhera og Mils Bollmann húsnæðismálaráðherra. Þeir eru úr flokki miö-demókrata og hafa þótt standa sig heldur illa í stjórn- inni. Þar sem flokkur þeirra tapaði miklu fylgi í kosningunum í janúar síðastliðnum er talið aö það verði þing- menn Ihaldsflokksins sem leysi þá af hólmi enda var Ihaldsflokkurinn sigur- vegari kosninganna þá. Nýja-Sjáland: Lange hlynntur bandalaginu við Bandaríkin David Lange, nýkjörinn forsætisráö- herra Nýja-Sjálands, segir aö stjóm sín hafi alls ekki í hyggju aö draga sig út úr ANZUS-varnarbandalagi Nýja- Sjálands, Ástralíu og Bandaríkjanna. Hann sagði að jafnvel þó aö bandalagið væri ekki til staðar þá fyndist sér ólík- legt að Bandaríkjamenn myndu sitja aðgerðalausir hjá ef til árásar á Nýja-Sjáland kæmi. Þetta kom fram í blaðaviðtali við forsætisráöherrann sem birtist nú um helgina. Lange sagöi að hann tryði því ekki aö ómögulegt væri að endurnýja varnar- samninginn við Bandaríkin og kvaðst vantrúaður á þá yfirlýsingu George Schultz, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, aö bandalagið væri í hættu ef Ný- Sjálendingar bönnuöu komu kjam- orkubúinna skipa til hafna á Nýja-Sjá- landi en því hafði Verkamannaflokkur- inn lofað í kosningabaráttunni. Lange sagði að hann styddi hug- myndina um kjarnorkuvopnalaus svæði á Suður-Kyrrahafi en hins vegar væri ekki hægt að gera athugasemdir við siglingar kjamorkubúinna skipa á alþjóðlegum siglingaleiðum. Er njósnabún- aðurá trukk? Sovéskur vömflutningabill leggur af stað aftur til Moskvu í dag frá Berlín með 9 smálesta farm sinn ósnertan, eftir töluveröar diplómatískar deilur í Sviss og V-Þýskalandi um innihaldið. Farmurinn er undir innsigli, en Sovétmenn segja aö hann sé raftæki og fleira, ætlað sendiráði þeirra í Genf. Vilja þeir ekki leyfa tollgæslu þessara tveggja landa að skoða farminn, sem falinn er aö baki diplómatainnsigli sem diplómatapóstur. Hefur staöið í stappi út af trukknum síðustu tvær vikurnar, en í Sviss neituðu yfirvöld aö taka það gott og gilt að 9 tonna tmkkur væri sem hver annar sendiráðspóstur. Vildu þau ekki að trukkurinn yrði losaður, nema í viðurvist tollþjóna. Sovétmenn kusu heldur að senda bílinn aftur úr landi og heim á leið. Vekur það grunsemdir um að farmur- inn sé njósnabúnaður. Þykir tmkkur- inn hafa verið hreint ótrúlega lengi í ferð sinni og tók raunar á leiðinni til Genf grunsamlegan krók á stystu leiö til að aka hjá einum herflugvalla Sviss. V-Þýskaland samþykkti aö hleypa bílnum í gegn á heimleiö án þess aö leita í honum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.