Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 25
DV. MÁNUDAGUR 23. JULt 1984.
25
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
■■
SEX GLÆSIMORK
VIKINGA OG KA
ÁTTIEKKISVAR
— Heimir Karlsson með þrennu í 6:2 sigri Víkings gegn KA
„Þetta var kærkominn slgur. Og
mörkin sem ég skoraði voru líka kær-
komin og þetta er í f yrsta skipti sem ég
skora þrjú mörk í leik í 1. deild,” sagði
Víkingurinn Heimir Karlsson eftir að
Víkingur hafði gersigrað KA frá Akur-
eyri í ieik liðanna í 1. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu á Laugardals-
velli í gærkvöldi. Lokatölur urðu 6—2
og staðan í leikhléi 2—0 Víkingum í vil.
Eins og þessar skemmtilegu loka-
tölur gefa til kynna var ekki leiöinlegt
að horfa á þennan leik í gærkvöldi.
Ekki er það á hverju kvöldi sem knatt-
spymuáhangendum er boðið upp á átta
marka leik, og meira að segja tíu
marka leik því tvö mörk voru dæmd af
Víkingum vegna rangstöðu. Sannar-
ánssyni.
DV-mynd: Óskar Örn Jónsson.
stiga for-
(eflavík
ill í marki íslandsmeistaranna
en hann fór yfir marklínuna. 1—1.
Skömmu síðar komust Skagamenn
yfir. Sótti upp hægri knatinn, gefið yfir
á Guöbjörn Tryggvason, sem skaUaði
knöttinn tU Harðar Jóhannessonar.
Höröur skallaði í markiö af stuttu færi.
1—2. Keflvíkingar reyndu mjög að
jafna en tókst ekki og reyndar átti Árni
Sveins lokaoröið. Fékk háa sendingu
inn í teig en Þorsteinn bjargaöi snagg-
aralega frá honum.
Hjá Skagamönnum var vörnin yfir-
leitt sterk, þetta var fyrst og fremst
leikur varnarinnar og Bjami frábær í
markinu. Siggi Donna og Siggi Lár.
sterkir og frammi voru Karl og Hörð-
ur oft góðir. Hjá Keflvíkingum bar
mest á Valþóri og Gísla í vörninni, svo
og Guðjóni. Ragnar var mjög öflugur
og fékk færi, þrátt fyrir stranga gæslu,
og Helgi vann vel. Liðin voru þannig
skipuð:
Keflavík: Þorsteinn, Gísli, Valþór, Úskar
Færseth, Sigurður Björgvinsson, Magnús,
Einar Ásbjörn, Helgi, Ragnar, Rúnar Georgs-
son og Guðjón Guðjónsson. Akranes: Bjami,
Guðjón, Jón, Sig. Halldórsson, Sig. Lárusson,
Hörður, Karl, Júlíus Ingólfsson (Sveinbjöra
Hákonarson 46. min.) Sigþór, Guðbjörn og
Árai. Dómari Þorvarður Björasson og slapp
nokkuð vei frá erfiðum ieik. Áhorfendur 2103.
Maður leiksins. Bjarai Sigurðsson.
emm/hsim.
Severiano Ballesteros, Spáni, fagnar sigri eftir sigur á British Open.
lega var þetta vel þegið og vonandi aö
oftar verði veitt jafn rausnarlega og í
gærkvöldi.
Þeir vom margir sem misstu af
fyrsta marki Víkinga í gærkvöldi og
ástæðan einfaldlega sú að markið var
skoraö þegar ein mínúta var iiðin af
leiknum. Þaö var Heimir Karlsson
sem skoraöi markið eftir góða fyrir-
gjöf. Skot Heimis var laust og frekar
klaufalegt að sjá til norðanmanna fyrir
markið. KA-menn sóttu í sig veöriö og
sóttu stíft þaö sem eftir var fyrri hálf-
leiks og voru nálægt því aö skora. Það
voru Víkingar einnig og þeir náðu að
skora tvisvar fyrir leikhlé, annað
markið dæmt af. Omar Torfason skor-
aöi síðan annaö mark Víkinga rétt
fyrir leikhlé og var það jafnframt
fallegasta mark leiksins. Kristinn
Guðmundsson tók aukaspymu við
hornfánann og gaf nokkuð fast fyrir
markið á Omar sem kom á fleygiferð
og klippti knöttinn viðstöðulaust í þak-
netið.Staöan2—0.
Síðari hálfleikur var nokkuð fjörug-
ur og þokkalega vel leikinn af beggja
liöa hálfu. Ekki var síðari hálfleikur
orðinn gamall þegar Omar Torfason
var aftur á ferðinni og skoraði með
skalla þriöja mark Víkinga. Og enn
hélt hríðin áfram. Á 17. mínútu skoraði
Heimir fjórða markið fyrir Hæðar-
garðsliöið og nú stefndi í eitthvaö
óvænt. Markasúpan hélt áfram. Á 21.
mínútu skaut Njáll Eiðsson, besti
maður KA í þessum leik, föstu skoti að
Víkingsmarkinu. ögmundur náöi ekki
aö halda knettinum og Hinrik Þórhalls-
son, þá nýkominn inn á sem varamað-
ur, var með bæði augun opin og náði að
renna knettinum í markið og laga
stöðu norðanmanna. Andri Marteins-
son skoraði síðan fimmta mark Vík-
inga og á 34. mínútu skoraði Heimir
Karlsson sjötta markiö fyrir Víking og
sitt þriðja í leiknum. Fimm minútum
fyrir leikslok náði Hafþór Kolbeinsson
að laga stöðuna fyrir KA. Mark
Hafþórs var mjög laglegt. Hann einlék
meö knöttinn langan veg og linnti ekki
látum fyrr en í markteig Víkinga og
þar lét hann skot eitt hnitmiðað og
nægilega fast ríða af og í markið fór
knötturinn eins og til var ætlast í upp-
hafi f erðar Hafþórs, trúi ég.
Víkingsliðið hlýtur að vera komið á
fljúgandi ferð eftir tvo glæsisigra í röð.
Fyrst sigur gegn Val, 3—0, og loks
þessi stóri í gærkvöldi. Liðið barðist
sem ein heild í gærkvöldi og allir leik-
menn liðsins reyndu að gera sitt besta.
Oft brá fyrir skemmtilegum samleiks-
köflum og margir þeirra enduðu með
mörkum.
Það að fá á sig mark á fyrstu mínútu
leiks og síðan síðustu mínútu fyrri hálf-
leiks er hlutur sem nægir til að rota
heilt knattspyrnulið. Fyrir slíku rot-
höggi varð KA í gærkvöldi. Og leik-
menn liðsins náðu aldrei að jafna sig
eftir áföllin.
Þetta var einfaldlega einn af þeim
dögum þegar ekkert gengur upp hjá
öðru liðinu en flest hjá hinu. Liöin sem
léku í gærkvöldi voru þannig skipuð:
Víkingur: ögmundur, Unnsteinn,
Ragnar, Magnús, Hans Leó, Andri,
Kristinn, Omar, Ámundi, ömólfur og
Heimir.
KA: Þorvaldur, Ormarr, Friðfinnur,
Ásbjöm, Erlingur, Duffield, Stefán,
Hinrik, Njáll, Hafþór, Steingrímur.
Leikinn, sem 333 áhorfendur sáu,
dæmdi Baldur Schewing og hann gaf
Kristni Guðmundssyni Víkingi gula
spjaldið. Maður leiksins: Heimir
Karlsson Víkingi. gK
Þróttur skoraði
rétt fyrir lokin
— sigraði Þór,
Frá Sölva Sölvasyni, fréttamanni DV á
Akureyri.
Þróttur vann heppnissigur á Þór í
leik liðanna á Akureyri í 1. deild í gær-
kvöld, átti lítið í leiknum og skoraði svo
eina mark leiksins fjórum mínútum
fyrir leikslok. Þorsteinn Sigurðsson
skallaði knöttinn í mark Þórs eftir að
Páll Ólafsson hafði leikið upp kantinn,
síðan inn í vitateig, þar sem hann lenti
í samstuði við Jónas Róbertsson.
Knötturinn hrökk af þeim til Þorsteins,
sem var á markteignum og skallaði í
mark,
Mjög gott veður var, logn og hlýtt, þegar
leikurinn fór fram. Þórsarar miklu betri í
fyrri hálfleiknum og sóttu mjög að marki
Þróttar. Markvörður Þórs, Baldvin
Guðmundsson, hafði lítið sem ekkert að gera.
Greip tvisvar inn í leikinn í hálfleiknum.
Þróttarardaufir.
Á 8. mín. fékk Bjarni Sveinbjörnsson
stungubolta fram, spymti á Þróttarmarkið
innan teigs. Guðmundur Erlingsson varði vel.
Um miðian hálfleikinn var Kristján
Kristjánsson aðeins of seinn í góðu færi við
mark Þróttar en rétt á eftir átti Guðjón
Guðmundsson þrumuskot framhjá. Knstján
komst aftur í færi en skaut í vamarmann og
komst svo á 39. mín. einn innfyrir vöm Þrótt-
ar. Guðmundur varði mjög vel.
Síðari hálfleikurinn var ekki eins
skemmtilegur fyrir 800 áhorfendur. Þróttarar
betri fyrstu 10 mínúturnar án jjess að skapa
l:0?á Akureyri
sér færi. Síðan fór Þór að sækja. Á 59. min.
munaði litlu að Kristján skoraði úr auka-
spyrnu af 40 metra færi. Markvörður Þróttar
misreiknaði knöttinn, — hreyfði sig ekki —
en knötturinn smali í markstönginni. Þar
fyrir markið þar sem Guðmundur náði
honum. Nokkru síðar átti Kristján skot en
Guömundur varði. Hinum megin komst Pétur
Arnþórsson í færi en spymti rétt framhjá og
síðan komst Þorvaidur Þorvaldsson einn inn
fyrir vörn Þórs. Knötturinn þvældist hins
vegar eitthvað fyrir honum og Sigurbirm
tókst að bjarga í hom.
A 77. mín. virtist sem Þór mundi loks skora.
Bjami komst inn í vítateiginn, lék á Guðmund
markvörð og markiö opið. Bjami var kominn
inn á markteigshomið og tókst að spyma
knettinum framhjá. Það vantaði ekki að Þór
fengi færin eins og svo oft í sumar, aðeins til
að misnota þau. Síðan skoraði Þróttur á 86.
mín. eftir rispu Páis Olafssonar, sem nokkru
áður hafði komið inn sem varamaður. Þór
reyndi að jafna en einum leikmanni Þróttar
tókst að bjarga á marklínu og leiktíminn rann
út. Osanngjam sigur Þróttar í höfn. Hjá Þór
voru Bjami, Jónas og Oskar bestu menn en
Kristján Jónsson og Pétur hjá Þrótti. Liðin
vora þannigskipuð:
Þór: Baldvin, Sigurbjöra, Jóuas, Nói,
Öskar, Halldór, Kristján (Einar Arason 73.
mín.), Bjarni, Óli Þór, Guðjón (Magnús
Helgason73. mín.) og Ámi Stefánsson.
Þróttur: Guftmundur, Nikulás, Kristján,
Björa Björnsson, Arsæll, Pétur, Júlíus Július-
son (Sig. Hallvarðsson 78. mín.), Þorvaldur,
Þorsteinn, Asgeir og Dafti (Páll 70. mín.).
Maftur leiksins: Bjarai Sveinbjörnsson,
Þór. SS/hsím.
;;
I
Ragnar Olafsson sigraöi á Akureyri.
Ragnar hlaut
flest stigin
Ragnar Ólafsson, GR, varö öruggur
sigurvegari á fjölmennu opnu golfmóti
sem fram fór á Akureyri um helgina. Mót-
ið gaf tiu efstu mönnum stig til landsliðsins
og var keppni lengst af jöfn og spennandi.
Ragnar lék holurnar 36 á 149 höggum.
Annar varð Sigurður Pétursson, GR, og
þriðji Þórhallur Pálsson, GA. Annars urðu
úrslit þessi og stigin til landsliðsins i sviga.
Ragnar Ölafsson, GR 149 ( 19)
Sigurður Pétursson, GR 153 ( 17)
Þórhallur Pálsson, GA 155 ( 15)
Sverrir Þorvaldss., GA 156 ( 11)
Björgvin Þorsteinsson, GR 156 ( 11)
ívar Hauksson, GR 156 ( 11)
Jón H. Guðlaugss., NK 157 ( 6)
Þórhallur Hólmgcirsson, GS 157 ( 6)
Kristján Hjálmarsson, GH 158 ( 3)
Gylfi Kristiusson, GS 160 (0,5)
Geir Svansson, GR 160 (0,5)
-SK
Bolvíkingar
bestir í sund-
mui
— sigruðu í aldurs-
flokkamótinu
Bolvíkingar urðu sigurvegarar í aldurs-
flokkameistaramótinu i sundi sem háð var
í Vestmannaeyjum um helgina. Það er í
fyrsta skiptl sem annað lið en Ægir sigrar
á þessu móti og árangur bins unga sund-
fólks í Bolungarvík er mjög athyglis-
verður.
Bolungarvík hlaut 178,5 stig. Ægir varð í
öðru sæti með 166,8 stig og síöan HSK með
116 stig. 14.-5. sæti voru Vestri og SH með
83 stig. Nr. 6 Akranes með 75,1 stig. 7. KR
með 26 stig. 8. Óðinn, Akureyri, 25 stig. 9.
UMVH eða Vestur-Húnvetningar 20. 10,—
11. Ármann og KS, Siglufjörður, 15stig. 12.
Njarðvík 14 stig. 13. Borgfirðingar 10,5 stig
og Vestmannaeyingar 6 stig.
Þrjú Íslandsmet voru sett. Ingibjörg
Arnardóttir, Ægi, setti tvö meyjamet,
synti 50 m flugsund á 34,7 sek. og 50 m
skriðsund á 31 sek. Símon Þór Jónsson,
Bolungarvík, setti drengjamet i 100 m flug-
sundi, 1:09,1 mín. Nánar á morgun. hsím.
HOLAÍ
HÖGGIHJÁ
ODDIODDS
Oddur Oddsson, sem keppir fyrir golf-
klúbbinn Keili í Hafnarfirði, gerði sér lítið
fyrir og fór holu i einu höggi á Akureyri um
helgina.
Þetta draumahögg allra kylfinga sió
Oddur á síðustu brautinni, 18. holunni, sem
er stutt, par þrir, eitthvað örlítið á annað
hundrað metra. -SK.
óttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
(þróttir