Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Page 14
14
DV. MÁNUDAGUR 23. JULl 1984.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
PONTIAC 1980.
Sjálfskiptur, vökvastýri,
topplúga. Glæsilegur bíll.
VOLVO 1023 TURBO 1980.
Alls konar skipti.
TOYOTA HI-LUX1982.
Dísii, 4x4 pickup.
DAIMLER BENZ1979.
Rúta, nýinnflutt, 46
manna.
eíLASAUi
Alla RÚTS
Hyrjarhöfða 2
Sími: 81666
Kvöld- og helgarsími: 72629
1. Verð kr. 1.425,- 2. Verð kr. 680,-
3. Verð kr. 984,- Litir: grár
og svartur
4. Verð kr. 755,- Litir:
rauður og grár.
5. Verð kr. 1.155,-
6. Verð kr. 240,- Litir
hvítur og svartur.
7. Verð kr. 240,- Litir:
hvítur og svartur.
8. Verð kr. 295,- Litir:
rauður, svartur og blár.
Menning Menning Menning
Hagfræði
og stiómmál
Magni Guðmundsson, Ph.D.:
HAGFRÆÐI OG STJÓRNMÁL
135 bls.
Reykjovík 1984.
Nýverið barst mér í hendur bók,
varla þornuð úr þrykki; Hagfræði og
stjórnmál, eftir dr. Magna Guð-
mundsson hagfræðing, en höfundur
hefur um nokkurra ára skeið borið
aðrar skoðanir á peningamálum og
hagfræði en þeir sem aðeins hafa
orðiö aö þola völd og hina daglegu
stjórn lýðveldisins.
Um margt annaö er höfundur líka
sérstæður, fyrir utan góðar gáfur.
Hann lauk ungur viðskiptafræðiprófi
í París, rétt áður en stríðiö skall á,
þar sem hagkerfin sprungu, lauk síö-
an BA-prófi í hagfræði og stjórnvís-
indum í Kanada, eftir stríð. Og enn,
eftir margvísleg störf í atvinnulífi og
í Seðlabankanum, í um tveggja ára-
tuga skeið, tók Magni sig upp og hélt
til Kanada og efnaði í doktorsgráðu
við Manitobaháskóla (1977), en sér-
greinar hans voru ríkisfjármál,
verðlags- og bankamál, markaðsmál
og peningamál.
Magni Guðmundsson er kunnur
maöur meðal þeirra er gerst þekkja
f jármálastjórn á háu plani þótt f rem-
ur lítiö hafi fariö fyrir honum í opin-
beru h'fi og því er þessi ferill tíundað-
urhér.
ísland og vísindin
Bók sinni skiptir dr. Magni Guð-
mundsson í fjóra kafla, auk formála,
en þar er fjallaö um Verðlagsstjóm,
Stjóm peningamála, Skattakerfið og
að lokum koma ályktunarorð, töflur
og heimildaskrá, en bókin er samin
sérstaklega.
Þaö skal í upphafi játað að þaö er
fremur öröugt fyrir fátæka menn og
reynslulausa í stórum fínans aö lesa
svona rit því höfundur velur sér þá
aðferö aö upplýsa fremur en aö
halda skoðunum að lesandanum.
Hann velur leið kínverska leik-
hússins, eða ætlar með öðmm orðum
lesandanum, eða áhorfandanum, að
vera skáld líka. Og þegar á hður
bókina þá fellur launavinnumanni
þessi aðferð vel því satt að segja þá
hefur hagfræði aldrei hrinið á íslend-
ingum, þjóö hinna stöðugu undan-
bragða, og í það heila tekið hafa vís-
indi víst alltaf átt fremur iha vist á
Islandi. Þjóöhagsspár em yfirleitt
rangar, að því er virðist, spár fiski-
fræöinga rætast sjaldan — og þeir
sem annast fjárfestingu á vísinda-
legum gmnni og póhtískum hafa náð
ömurlegum árangri, aö ekki sé nú
minnst á landbúnaðinn sem eftir
ellefu alda þróun, eða frá því að NjáU
fann upp skítinn, er kominn í slíkt
öngþveiti, að upphæö, sem nemur öU-
um tekjuskatti landsmanna, fer í að
snúa skilvindum offramleiðslunnar
eöa til aö knýja bænavélar vinnslu-
hofa og í kjúkhnga og eggjavörn,
meö þeim einfalda árangri að ódýr
matur er ekki lengur til á Islandi.
Búvara kostar tvöfalt meira en á hin-
um Norðurlöndunum þótt launatekj-
ur almúga séu mun lægri hér.
Dr. Magni Guðmundsson.
Bókmenntir
Jónas Guðmundsson
Nú veröur hver og emn auðvitaö að
ráða það við sig hver ber sökina, sér-
fræöin, eða þjóðin. Hinu er hins veg-
ar ekki að leyna að við lestur hag-
fræðibókar Magna Guðmundssonar
fellur manni satt aö segja aUur ketill
í eld því svo viröist að eftir að hag-
fræði á háskólastigi og lærð við-
skiptafræði tók við brjóstviti og
hyggindum í stjórn landsins hætti
kerfið að láta að stjóm.
Frá ráðdeild til
lærðrar hagfræði
Dr. Magni tekur tvö tímabil til við-
miðunar, eða áratugina 1919—1939
og 1960-1980.
Á fyrra tímabihnu var yfirleitt
kreppa. Á hinn bóginn voru peninga-
mál þá í jafnvægi og þjóðin hafði
ekki ráð á verðbólgu. Erlend lán
voru ekki tekin, hvorki fyrir munaði,
útflutningsbótum né bamsmeðlög-
um. Menn litu til nauðþurfta. Og það
einkennilega er aö þrátt fyrir vos-
klæði fátæktarinnar þá átti þjóðin þó
á þeirri tíö áform til aö starfa að, og
gjörði.
Hitt tímabihð er stjórnarfar stofn-
ana og vísindalegrar meðferðar á
gjaldvöru og penmgum. Á þessu
tímabili feUur Bandarík jadalur hins-
vegar úr kr. 35,06 í kr. 480,09, enda
stofnanaveldið þá í miklum blóma.
Bókarhöfundur bendir þó réttUega
á að samanburöur á hagstjóm sé
ekki einhlítur meö því að einblína á
verðbólgu, eöa gengisfelUngu, og
hann áréttar að á báðum tímabilun-
um gætir erlendra áhrifa, sbr. hrun
Spánarmarkaðarins í borgarastyrj-
öldinni, og svo hmn afurðaverðsins
1967-68.
Ef til vUl er þetta háttvísi höfundar
því auðvitað er öUum það Ijóst að síð-
ara tímabUið einkennist af fræða-
vanda. Þjóöin hefur þá eignast tvö
mikU hagstjórnartæki, Seðlabanka
Islands og Þjóöhagsstofnun (áður
Efnahagsstofnun), og þótt stjórnvöld
hafi aldrei gengið í berhögg við þess-
ar stofnanir, svo vitað sé, er hinn
ömurlegi árangur eigi að síður stað-
reynd. Og við lestur bókarinnar fær
maöur það á tUfinninguna að laga-
setning um peninga, skatta og verð-
lagsmál hafi komið aö Utlu haldi.
Svo til öll náðarmeðöl virðast þó
hafa verið reynd, hömlur, einokun og
frelsi. Eftir situr þjóð án drauma og
áforma, örmagna eftir fjárfestingu í
ofbeit og erlendar skuldir.
Bókin Hagfræði og stjómmál er
því ekki síður bókin um þjáninguna
en bókin um hagfræðina og stjórn-
máUn. Og ég tel aö hún henti fólki i
innvolsi og launavinnu eins vel og
hinum lærðu og ef til viU ættu ungir
stjómmálamenn að lesa hana tvisv-
ar.
Bók Magna er þó ekki æsirit heldur
yfirveguö bók manns sem hefur
reynslu úr atvinnuUfi og mikil próf
Uka frá virtum háskólum. Hann
þekkir því málrn frá báðum hliöum.
Jónas Guðmundsson
ÖNKYÖ
9. Verfl kr. 398,- Litir:
rauflur og blár.
Póstsendum.
10. Litir: blár m/hvítum og
hvítur m/rauflum. Stœrðir
21 til 39. Verð kr. 195,-
Kaupgarður í leiðinni heim
Engihjalla 8, sími 46866.
H
Jk
GÆÐATÆKI
Týsgatal. Pósthðlf 1071.121 Reykjavik.
Simar 10450 & 20610.
Sími (96) 23626
Glerárgötu 32 • Akureyri