Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Qupperneq 10
10 DV. LAUGARDAGUR 28. JULl 1984. Ómar Jóhannsson knatt- spymumann ætti aö vera óþarfi að kynna. Hann lék með Vest- manneyingum þar til í sumar að hann gekk til liðs við Fram- ara og með þeim hefur hann leikið í sumar. Við slógum á þráðinn til Ómars. Sagði hann að hin hliðin á sér væri nú kannski ekki merkileg, áhugamálin nær eingöngu tengd íþróttunum og því ekki hægt að tala um mikið annað en íþróttir. „Ég verö aö segja eins og er aö ég hef voðalega gaman af því aö ferðast. Og oftast um helgar fer ég austur á bóginn, í Gríms- nesið þar sem frændi minn og formaöur Fram, Hilmar Guö- laugsson, á sumarhús. Skemmti- legur golfvöllur er þar rétt hjá og ég dvel þar langtímum sam- an. Golfið er alveg einstaklega skemmtileg íþrótt og ég hugsa að ég veröi í golfinu þar til ég drepst. Þetta er óskaplega skemmtileg íþrótt og holl fyrir eldra fólk. „Betra að búa í Eyjum en meira um að vera hér" Nú hefur þú búið í Eyjum svo að segja alla þína hunds- og katt- artíö. Hvernig kannt þú viö þig í Reykjavík og á hvorum staðnum er betra aö búa? „Þaö er erfitt að gera upp á milli þessara staöa. Ég held þó að það sé betra aö búa í Eyjum. Þaö er friðsælla þar, ekki eins mikið stress eins og í Reykjavík en á móti kemur að þaö er meira um aö vera hér í Reykjavík. Það er auðvitað erfitt að flytjast bú- ferlum frá staö sem maður hefur átt heima á svo að segja allt sitt líf en tilbreytingin er skemmti- leg og jafnvel nauðsynleg.” „Alger gunga" Þegar talaö er um Eyjar dett- ur mörgum í hug nafn lundans, bæði vegna þess að f uglinn frægi heitir svo og eins vegna þess að Ómar Jóhannsson ásamt unnustu sinni, Elinu Lárusdóttur, og syni þeirra , Andra Ómarssyni. „Var svo mikil gunga í mér að ég lét björgin og lundann eiga sig,r — segir Qmar Jóhannsson, knattspyrnumaður í Fram og Vestmanneyingur vinna hjá Hljómbæ og mér líkar þú hefur á þér gælunafnið Lundi. Varst þú mikið í björgunum í gamla daga? „Nei, það má eiginlega segja að ég hafi alveg látið það eiga sig. Það var og er mjög mikiö um það að ungir pollar fari í björg en ég var einhvern veginn alltaf svo mikil gunga í mér að ég þorði aldrei slíkt brölt. Ég hafði miklu meiri áhuga á knatt- spymunni og lét aðra um prílið í björgunum.” „Fór í rafvirkjun af því að bróðir minn var í henni" „Jú, það er rétt að ég er raf- virki eða því sem næst. Þetta er ágætt starf. Ég er nýbyrjaður aö mjög vel þar. Ég er mest í því að gera við ljósritunarvélar eins og er og það er oft mikið að gera og getur oft verið stressandi, eins og sagt er. Ástæðan fyrir því aö ég fór í rafvirkjun er einfaldlega sú að bróðir minn, Guðmundur, Arnarhóll Bezt er að hafa sem flestar kokkahúfur ogfæstar krónur Skúli er snillingur Þegar viö bætist góö þjónusta í fallegu umhverfi, fullkomnast um- gerðveizlunnar. I upphafi sættu innréttingar Arnarhóls nokkurri gagnrýni. Sumt hefur veriö lagaö, til dæmis meö hljóðeinangrun í lofti og meö gömlu hljóðfærunum, sem nú hressa veggina Annaö hefur vanizt, eins og flísarnar á neöanveröum veggjunum. Skil- rúmið nýja hefur lánazt sæmilega, mun betur en hliðstæðar tilfæringar í Holti og Grilli. Eftir stendur ósamræmiö milli hinna þriggja hluta staöarins, for- drykkjastofunnar uppi, matsalarins niðri og kaffistofunnar inn af honum. Landsins bezta vertingahús ArnarhóU er bezta veitingahús landsins. Á því leikur ekki hinn minnsti vafi. Þar meö er ég ekki aö lasta mjög góða staöi á borö viö Holt og GriUið á Sögu. En ArnarhóU ber einfaldlega höfuð og heröar yfir aör- ar matstofur. Meðan sumar aðrar eru mjög góöar, þá er AmarhóU frá- bær. Gæfumuninn gerir, að SkúU Hansen er sniUingur í eldhúsinu. Hann er dæmigeröur fuUtrúi hinnar nýju, frönsku Unu í eldamennsku, sem sigraöi heiminn fyrir nokkrum árum. Þar á ofan er hægt að treysta staðnum. Þegar SkúU er ekki á vakt- inni, heldur Guömundur Guðmunds- son uppi merkinu. Eg minnist þess meö brosi, aö kunnur matreiðslumaður reiddíst einu sinni, þegar ég gagnrýndi staö hans. Sagðist hann ekki hafa verið á vaktinni, þegar ég kom. Samt fengu viðskiptavinir enga aövörun um slíkt og uröu aö borga fullt verö. Ef fólk viU ekki taka siíka áhættu, þegar þaö fer út aö boröa, er AmarhóU staður, sem aldrei bregzt. ArnarhóU er meira en góöur mat- ur. En í þjónustu og umhverfi sker staðurinn sig minna úr hópnum. Fallegar veitingastofur og góö þjón- usta eru sem betur fer algeng fyrir- bæri hér á landi. Það er fyrst og fremst matreiðslan, sem víðast bU- ar. Nútíminn hefur þar ekki haldið innreið sína. Meðal íslenzkra matreiöslumanna er útbreitt viröingarleysi fyrir hrá- efnum, óhófsnotkun á frystUdstum, örbylgjuofnum, dósamat og stöðlun í meölæti, of langir eldunartímar, óhófsnotkun á hveiti og salti, ofurást á köldu borði og tormeltum djúp- steikingum og ýmislegt annað til- finningaleysi fyrir matargerö sem listgrein. Engu slíku er tU aö dreifa í Arnar- hóU. Þar fá gestir hoUan, faUega upp settan og frábærlega bragögóðan mat, sem fer einstaklega vel í maga. Ráðagerðir eru um aö koma upp bókasafnsstU í kaffistofunni. Ég held, aö þaö geti oröið tU bóta. Þjónustan í AmarhóU er fyrsta flokks. StarfsUöið fylgist árvökulum augum meö þörfum gesta sinna, án þess aö vera aö ónáða þá aö óþörfu. Þetta er ágætt dæmi um, aö skólun og þjálfun á þessu sviöi er á Islandi betri en í flestum öörum löndum, sem ég þekki. Landsins Ijúfustu sósur En ætlunin var raunar aö skrifa um þaö, sem fyrst og fremst greinir Arnarhól frá öðrum stöðum, — mat- inn. Eg hef aö undanförnu veriö svo heppinn aö fá nokkur tækifæri til aö reyna aö koma staðarmönnum á óvart. Heitt snigla-ragout meö ferskum rifsberjum, blaölauk og ferskum sveppum í kampavínssósu var fallegur réttur og einkar bragð- góður. Hvílík tilbreytni og dásemd er að finna ekki vott af hveiti í sósu. Fersk grásleppuhrognakæfa með spínatsósu var sérlega ljúf upp- finning Guömundar Guömunds- sonar, gott dæmi um, aö Skúli er ekki einn um hituna í Arnarhóli. Silungasúpa meö kampavíni og dill-rjóma var frábær súpa, vel rjómuö og meö votti af tómatakeim. Reyksoðinn regnbogasilungur með hvítlauksspínatsósu og kartöflu- gratíni haföi náð hinum ljúfa og létta reykkeim, sem er aðal þessarar matreiðslu. Með voru alfa-alfa spírur og mildilega sýröar gúrkur. Gufusoðin smálúðuflök meö kampavíns-ostrusósu voru hæfilega skammt soðin, borin fram meö röspuðu grænmeti og vægri tómata- sósu. Karrísteiktur smokkfiskur í japanskri sakisósu var afar bragö- góöur, borinn fram meö gulrótar- ræmum og tvenns konar papriku. Pönnusteiktur hörpuskelfiskur meö ferskum sveppum í estragon- ostasósu var einstaklega meyr og bragðljúfur, borinn fram meö flísum úr seljustönglum og alfa-alfa spírum. Pönnusteiktur karfi í paprikusósu á hádegisseðli var mjög góöur, bor- inn fram með hrísgrjónum. Sósan var létt og ljúf, eins og allar sósur Skúla. Gufusoðinn skötuselur í dillsósu á hádegisseðli var lítillega ofsoöinn og því ekki eins meyr og hann heföi verið, ef tímasetning heföi verið nákvæm. Meistaraverk í svartfugli Aliönd meö appelsínuhjúp var sérlega bragögóð og fallega húöuö. Léttsteikt svartfuglsbringa með vínberjum og trönuberjasósu var meistaraverk, svo léttsteikt, aö kjötiö var allt rautt og meyrt. Lambabuff meö jurtakryddi og blóðbergssósu og piparsteik meö rósavíns-negulsósu var hvort tveggja fyrsta flokks matur. Vanilluterta meö karamellusósu og valhnetukjörnum var eins konar búðingur, mjög skemmtilegur og léttur eftirréttur. Enn léttari var kampavíns- og melónukraumísinn. Vínlisti Arnarhóls er í stíl viö annað. Þar er flest þeirra góöu vína, sem fást í Ríkinu og sáralítið af ruslinu. Miöjuverö forrétta er 330 krónur, súpa 132 krónur, fiskrétta 375 krónur, kjötrétta 510 krónur og eftir- rétta 140 krónur. Meö kaffi á 60 krónur og hálfri vínflösku á 130 krón- ur ætti þriggja rétta veizla aö kosta 1003 krónur á mann. Það er dýrt, en ekki þaö dýrasta í borginni og ekki dýrara en gæöin. I hádeginu er svo boðið upp á súpu og fimm aöalrétti. Miðjuveröið á því tilboði er 275 krónur. Þar sem mat- reiðsla þessara rétta er eins fín og annarra, er þetta langbezta kosta- boðiö í veitingamennsku landsins. Mig f urðar raunar, aö ekki skuli vera sneisafullt í hádeginu dag eftir dag. Eru viðskiptahöldar landsins bragö- laukadaufir? Arnarhóll er angi af París hér á hjara veraldar. Jónas Kristjánsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.