Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Blaðsíða 38
38 DV. LAUGARDAGUR 28. JULI1984. Helgarvísur Helgarvísur Helgarvísur Helgarvísur Þess skal njóta, ad þig ég á. þit ert bóttn alla daga 91. þáttur Ég byrja þennan þátt meö því aö láta Jóhannes úr Kötlum hafa oröið: MANSÖNGUR Roðnu líni reifast grund. Röðull skín við grœnum baðmi. — Egá mina óskastund enn íþínum hlýja faðmi. Pangað leita ég einatt, ef eyðirþregta kröftum mínum. — Enginn veit hvað átt ég hef undir heitum vöngum þínum. Pinnar tungu huliðshreim heyrði ég ungur — bak við tjöldin. Ástum slunginn ófstu heim — álfar sungu þar á kvöldin. Djúpt mig snart hið dýra svið. Draumaskart í fögru líki æ mitt hjarta undi við íþví bjarta konungsríki. Beinum ferli blasti við borgin, merluð stjörnuskini. Kraup hiðperlu-krýnda lið, — kenndi ég gerla okkar vini. Hófust fánar. — Klukknaköll kvöddu dána svani tjóða. — Yfir frána hljómsins höll hrundi mánasilfrið góða. Lausnarkrossi laut ég þá. Lyftust blossar hátt frá arni. Dctgurhnossum hljóp ég frá. — Hœfðu kossar draumsins barni. Bjarma sló á Braga son, bjartur hló þinn roðni vangi. Orðin dóu, yngdist von, er ég bjó íþínu fangi. Stundum hrökk afhvörmum mér helguð þökkum táramóða. Óð ég klökkur orti þér undir rökkurvœngnum hljóða. Hörmum móti hljómar frá hjartarótum okkar saga. Pess skal njóta, að þig ég á, — það er bótin alla daga. Eg get ekki stillt mig um að birta hér eitt kvæði eftir Jóhannes, þótt ekki sé þar venjuleg- um ferhendum fyrir að fara: VARÚLFAR Fyrst sýndust mér mennirnir sannir, en seinna ég komst að þeim frœðum, að til eru helvítis hrœdýr, sem hylja sig mannlegum klceðum. Á meðan að dagsljósið dvelur, þann dularhjúp beraþeir á sér. En þegar að kvöldinu kemur, þá kasta þeir gervinu frá sér. Svo drepa þeir annarra ávöxt og upprœta helgustu frœin, og sjá þau í sorpinu rotna, og síðast éta þeir — hrœin. Starri í Garði kvaö svo um „ættina”. Heim- ildarmaður minn er Siguröur Baldursson hrl.: Yndislega œttin mín, œðin stœrst frá séra Jóni, drýgir hór og drekkur vín dýra kcera œttin mín. Hún er miklu meiri en þin, mest af öllum hér á Fróni. Yndislega œttin mín, ceðin stcerst frá séra Jóni. Aldreiþynnist út í kyn ceðin stcerst frá séra Jóni. Á œttarinnar háa hlyn hanga eplin mjúk og lin, meðan bœði bein og sin bera keim af séra Jóni. Aldreiþgnnist út í kyn ceðin stcerst frá séra Jóni. Gísli Olafsson frá Eiríksstöðum kvað: Oft hjá sprundum uni ég mér, armi bundinn Ijósum. En þar hef ég fundið — því er ver þyrna undir rósum. Gísli kveður svo um maurapúkann: Einn að vanti eyririnn ekki ’ er von þér líki, efþú flytur auðinn þinn inn í himnarlki. Og um „lokadaginn” kveður Gísli: Póttþú berir fegri flík og fleiri í vösum lykla, okkar verður lestin lík lokadaginn mikla. Gísli kveöur þessar árstíöa- og eyktavísur: ÓTTULOK Dregur úr Ránar dimmum þgt, af degi blánar nýjum. Sveipar gljána silfurlit svalur máni í skýjum. MORGUNN Fellir njóla faldinn sinn frá skýbóla veldi. Vaggar fjóla votri kinn vermd af sólareldi. KVÖLD Nóttin blekkir hlíð og hól, hvíldin þekk að líður. Við grœðisbekkinn guðleg sól i gullna rekkju sígur. NÓTT Nóttin styður stjórnvöl á, stutt er friðarskíma. Draums i iðu hníga há hljómbrot liðins tíma. HAUST Dalsins þrönga dimmir skaut, draumalöngun stœkkar. Fuglasöngur svífur braut. Sólin göngu lcekkar. Foldarvanga fœ ég séð, frost þarganga að verki. Blöðin hanga héluð með haustsins fangamerki. Aldrei náinn vekur vor; vona þráin sefur. En það á fáein farin spor flest, sem dáið hefur. VETUR Hafs frá hveli heim um fjöll hríðarélin ganga. Blómin felast önduð öll undir héluvanga. VETRARLOK (1920) Fönnin bráðnar fjöllum af, fugla- kvakar skarinn. Út í tímans ólguhaf ertu, vetur, farinn. VORBOÐI Úti þó að oft sé kalt, á ég nóg af vonum. Leysi snjóinn, lifnar allt, líður að gróindonum. VORKVAK Kom þú, blessað blíða vor! Brœddu ís frá hjarta. Láttu ’ oss taka tryggðaspor til hins göfga ’ og bjarta. Lœknaðu hulin hjartasár. Heilsu sjúkum gefðu. Pá, sem fella tregatár tryggum örmum vefðu. Fátœklingum færðu brauð, frið og yndi sendu. Líka þeim, sem eiga auð, allt hið góða kenndu. Blessað vor, þín blómdögg hlý brœðir klaka ’ af strindi. Hjá þér falla faðmlög í friður, von og yndi. Isleifur Gíslason kvaö þessar tvær vísur, er hann kallaöi „Það varð honum til lífs”: Sóttu tveir um sálina sjúklingsins um,,takið”. Fjandinn þreif í fœturna, faðirinn hélt í bakið. Leikurinnþannig lengi stóð, litlar fengust náðir. En hvorugum sýndist sálin góð, svo þeir slepptu báðir. Isleifurkvaö: Sé ég vappa á síðkvöldum, sízt þó happ að verði í ástartappa umbúðum iljatappa - Gerði. Hlynur kvarða kostarýr komst í skarðið vona. En andlitsfarða eikin hýr aldrei varð hans kona. Jón S. Bergmann kvað svo um veturinn: Unnir rjúka. Flúðin frýs. Fold er sjúk að lita. Vefur að hnjúkum veðradís vetrardúkinn hvíta. Grimmd er haldin grund og ver, gjólur kaldar vaka. Blátœr aldan bundin er björtum faldi klaka. Jón kveður svo um pólitíkina: Fólkið sér í sinni tíð sitja ’ í tryggum griðum kögurbörn, sem leiða lýð, logaggllt isniðum. Valdatindi til að ná, tign og launabótum, stikla heimsku annarra’á alvegþurrum fótum. Jón kvaö svo í styttingi við „búðarloku”: Alltafferðu vegavillt, veikluð tízkuhroka, innantóm, en ytragyllt ekta búðarloka. Andrés Björnsson eldri kvað þessa vísu í hálf- kæringi við Þorstein Erlingsson, er Þorsteinn haföi farið rangt með vísu, sem Andrés hafði botnað: Drottnum illur, þrjózkurþrœll, Porsteinn snillikjaftur, botnum spillir, sagnasœll, Sónar fylliraftur. Andrés kvað: Þér mun ekkiþyngjast geð, þó að stytti daginn. Haustið flytur meyjar með myrkrinu í bœinn. Ragnar Á. Magnússon endurskoöandi sendir Skúla Ben, sem fór í frí, fagnar vísnaþjóðin. Er hann risinn upp áný, yrkir helgarljóðin. Jafnan synda - forðast fen, þótt feti breiða veginn. Skýr í máli Skúli Ben skárar bragarteiginn. Helga frá Dagverðará botnar: 1 þjóðarsögu er brotið blað, brátt mun vœnkast hagur, komist stjórnaröflum að andi kærleiks fagur. Svífa fgrir sjónum mér sœlar bernskustundir. Minning góð i elli er eins og gleðifundir. Guðrún Jacobsen, rithöfundur í Reykjavík, skrifar: Vísukorn birtust í Morgunblaðinu 1969 eftir hina og þessa. Þar á meðal kom þessi vísa eftir Pál Þórðarson í Borgarnesi: Nóbelskáldið fréttafús falska lýsing gefur. Um keytu, orma, kláða og lús Kiljan ritað hefur. Vísunni svaraði ég svo, segir Guðrún. Vísu-Þór einn vinnufús vinum sínum gefur. Keyta, ormar, kláði og lús karlinn plagað hefur. Magnús Hagalínsson botnar: Hef ég staðið ströngu í, stritað allan daginn, ráðalaus og rembist því, og reyni að bæta haginn. Gleðja myndi göfgan hal gæfustundir eiga hjá gömlum bœ í djúpum dal hann dvelja vildi mega. Syfja tekur mœddan mig, mál er að fara ’ í háttinn. En elskað get ég ekkiþig, því allan skortir máttinn. Brynhildur L. Bjarnadóttir botnar: Nú fer vor að ganga ’ í garð, gleðjast munu lýðir. Pessi vetur þungur varð, þó mun birta ’ um síðir. Harla fátt ég annað á utan drauma mína, góða vini, gleði ’ og þrá gleggst sem dœmin sýna. Svlfa fyrir sjónum mér sœlar bernskustundir. Létt varþá að leika sér, Ijúfir vinafundir. PéturStefánsson, Skeljagranda 1, botnar: /þjóðarsögu er brotið blað, brátt mun vænkast hagur. Þegar Kommar komast að, kemur betri dagur. Fleira frá Pétri kemur í næsta þætti. Skúli Ben Helgarvísur Pósthólf 66 Hafnarfjörður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.