Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ1984. 21 Fólkið stóð alvarlegt í röðfani og til þess að smjatta ekki á leiðindum þess gerðum við stuttan stans og fórum á endastöðina:. Ríkið viðSnorrabraut. Santa Danta Afgreiðslufólkið var ákaflega alúð- legt. Gísli Olafsson afgreiðslumaður og fleiri svöruðu nokkrum spurning- um. Samkvæmt upplýsingum þeirra getur komið fyrir að viðskiptavinir séu erfiðir en úr því hefði dregið. Gísli sagði að töluvert væri um að menn kæmu alltaf á sama kassann að kaupa. Og hvað um afgreiðsluhraðann. Hvað þarf að bíða lengi þegar lengst er? „Það getur fariö allt upp í tuttugu mfaútur,” sagði Gísli. „Sumir færa sig sitt á hvað vegna þess að þeir halda að röðfa gangi eitthvað betur annars staðar.” Þessir menn sagði Gísli að yrðu gjarnan síðastir. Þegar við spurðum afgreiðslufólkið hvort fólk færi ekki oft rangt með heiti á vfategundum svaraði það því til að stundum vissi fólk ekki nema hvemig flaskan væri í lagfau eða einn staf úr nafninu.Einnsagði frá Norðmanni sem hafði komið um morguninn og beðið um Santa Danta. Eftir nokkrar rann- sóknir kom í ljós að maðurinn átti við Svarta dauða. Þegar við vorum komnir út úr Rík- inu og sestir inn í bílfan sýndist okkur viö sjá Grím vélvirkja. Hann sat á gangstéttinni fyrir framan Skátabúö- ina og var að sötra úr ákavítiskryppl- ingi. Hann hafði gretailega keypt tíma- ritið Ur felum sem var boðið til kaups fyrir framan áfengisverslunfaa og var að glugga í það. Hann var hálfnaður með flöskuna og virtist kominn í jafn- vægi. Vonandi mætir hann stálslegfan i vfanuna á mánudagtan. litinu. Gamli miðinn skafinn af. Hvað skyldi koma i staðinn? áður en hann fór hrfaginn: „Varaðu þig á handbremsunni!” Bifreiða- skoðunarmaðurfan varaði sig svo vel aö hann tók ekki í hana. Það var efas gott því hún var ónýt. Nafnskírteini Næst vikum við okkur niður á Hag- stofu. Við héldum að við værum öruggir um að lenda ekki í útistöðum þar því okkur vantaði ekki neitt. En sjá. Ein stúlkan á staðnum spurði okk- ur nokkuö þykkjuþung hvort við hefðum eitthvert leyfi til að ljósmynda þama fani. Stúlkan í afgreiðslunni var annars ákaflega vtagjarnleg. Hún taldi af- greiösluna mjög hraða þama miðað viö aðrar stofnanir og mikið að gera. Við bárum undir hana sögu af konu sem kom til að fá nafnskírteini á Hag- stofunni. Hún var beðfa um skilríki. Konan sagði efas og satt var aö hún hefði ekki skírteini og ætti ekki passa. Væri nóg að sýna sjúkrasamlagsskír- tetai? Nei. Þaö var ekki nóg. Þá benti hún á son sta, sem var með henni, og spurði hvort hann gæti ekki vottað að hún væri hún? Nei, til þess þyrfti mann sem væri orðfan þrítugur. Einfaldasta lausn konunnar á þessu vandamáli var að fara heim og gefa manni sínum skriflegt umboð til að fá fýrir sig nafnskírtetai. Afgreiðslustúlkan kannaðist viö að þetta gæti gerst og sjálfsagt er þetta eðlileg varúðarráðstöfun þó að tilfær- fagamar séu nokkuð miklar í kringum þetta. Vitum ekki alla hluti I skattinum var aðalholskeflan ekki skollfa yfir þegar við komum. Menn vom að tfaast fan einn og einn og undantekningariaust til þess að kvarta. Engin læti heldur ró og festa. Fólk kemur um þessar mundir á skattinn vegna þess að það er óánægt með skattana sína. Það verður að leggja fram skriflega kæru og kæra- frestur er 30 dagar. Fólk vill oft fá að sjá framtaliö sitt til þess að athuga hvort það er í samræmi við álagning- una. Afgreiðslustúlka sagði aö það vildi gjaman fá mál sitt afgreitt undir eins. Æsa menn sig gjaman hjá skattin- um? „Það getur átt sér stað,” svaraði af- greiðslustúlka. En þau væra lempta og oftast væri æsingurtan liðtan hjá þegar fólkið færi aftur. „Fólkið æsir sig vegna þess að því finnst margir hlutir asnalegir og skilur ekkert í því hvers vegna við vitum ekki alla hluti í jöröu og á,” sagði hún. Verð að fá þetta á morgun Borgarfógetaskrifstofur stóðu ágæt- lega undir nafni sem heldur leiöfalegur heimsóknarstaður. 1 nágrenni við húsið voru einhverjar framkvæmdir og mik- ið af skiltum meö hægri eða vinstri beygjum bönnuðum. Það var talsverð bið fyrir framan þinglýsingar. Kona fyrir framan afgreiðsluborðið sagði örg og stressuð. „Hvað tekur þetta langan tíma? Mér liggur nefnilega á þessu.” Afgreiöslustúlkan svaraöi: „Þú borgar mér 70 krónur og kemur með þetta á morgun.” Engin handalögmál. GERÐ ÁRG. EKINN 626 Diesel 4 dyra '84 13.000 6 mán. áb. 323 1300 Saloon 4 dyra '84 7.000 6mán.áb. 323 1300 5 dyra '83 22.000 6 mán. áb. 929 SDX 4 dyra sj.sk v/s '82 21.000 6 mán. áb. 929 LTD 2 dyra HT m/öllu '82 17.000 6 mán. áb. 626 2000 4 dyra m/öllu '82 39.000 6 mán. áb. 626 2000 4 dyra m/öllu '82 27.000 6 mán. áb. 323 1300 Saloon 4 dyra '82 23.000 6 mán. áb. GERÐ 323 1300 5 dyra 323 1300 5 dyra 323 1300 5 dyra 929 Sedan 4 dyra 929 Sedan 4 dyra RX-7 2 dyra sportbíll 929 Sedan 4 dyra 929 Sedan 4 dyra ÁRG. EKINN '81 28.000 6mán. áb. '81 64.000 6mán. áb. '81 34.000 6mán. áb. '80 82.000 6 mán. áb. '80 34.000 6 mán. áb. '80 64.000 6 mán. áb. '79 63.000 6 mán. áb. '80 60.000 6 mán. áb. Opið laugardag frá kl. 10-4 og sunnudagfrá kl. 1 -5 Nú um helgina seljum við örfáa nýja MAZDA bíla úr síðustu sendingu og gott úrval af 1. flokks notuðum MAZDA bílum, sem allir seljast með 6 mánaða ábyrgð frá söludegi. Synxshorn ur soluskra notaðra bila: Bifreiðakaupendur: Nú er ein mesta ferðahelgi sumarsins framundan. Stuðlið því að ánægjulegri ferð með því að kaupa nýjan eða notaðan MAZDA bíl hjá okkur. Veitingar — Kaffi og meðlæti BILABORG HF Smiðshöfða 23, sími 812 99

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.