Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Blaðsíða 37
DV. LAUGARDAGUR 28. JULI1984.
37
Bílar
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
Volkswagen Golf reynsluekið:
Kom best
út á mölinni
Þegar Volkswagenverksmiðjumar
komu á sínum tíma fram með arftaka
bjöllunnar, VW Golf, þótti mörgum nóg
um stökkið og útlitsbreytinguna. Nú
þegar enn hefur verið bætt um betur og
nýr Golf er kominn fram á sjónarsviðið
er stökkið mun minna og í fljótu bragði
sjá menn, sem hafa ekki alla jafna
hugann viö bíla, ekki hver munurinn
er.
Við reynsluakstur kemur hins vegar
fram að munurinn er verulegur, sumu
er breytt til betri vegar en áður var en
annaö hefði mátt fara betur.
Gott pláss
Það sem vekur fyrst athygli þegar
stigið er inn í bílinn er ágæt nýting á
innanrými og því er bíllinn plássmikill
miðaö viö marga aöra bíla i sama
stærðarflokki. Allar klæðningar eru
vel gerðar og frágangur allur til fyrir-
myndar. Klæðningamar em form-
steyptar þannig að skörp horn eru eng-
in og til dæmis er stuðningur innan á
hliðarhurðunum hluti af klæðningunni.
Inn- og útstig úr framsætum er meö
ágætum en þegar kemur að aftursætis-
farþegunum hefði plássiö mátt vera
meira. Hliðarhuröirnar gefa mun
minna pláss til inn- og útstigs fyrir
aftursætisfarþega en í öðmm sam-
bærilegum bílum sem jafnvel myndu
vera taldir minni bílar en Golf. Hins
vegar fer mjög vel um farþega í aftur-
sæti og þrengslin sem vom í „gamla”
Golfinum eru horfin. Sætin eru góð,
sérstaklega framsætin. Þau þykja ef
til vill fullstíf að mati margra, en á
móti kemur að þau gefa góðan stuðn-
ing, sérstaklega í akstri á misjöfnum
vegum. Ég hef séð það í umsögnum um
Golfinn í erlendum blöðum að bólstmn-
in sé of „köld”, það er aö á köldum
vetrarmorgni taki það líkamann of
langan tíma að fá upp þægilegan hita.
Því sé rafmagnshitun á sætunum nauð-
synleg.
Utsýni er ágætt, nema ef til vill um
afturglugga. Þar hefur útsýni minnkað
miðað við eldri gerðina því að neöri
brún á afturglugga er hærri en áður
var og takmarkar það nokkuð útsýni
umafturspegil.
Einföld stjórntæki
Mælaborð og stjórntæki öll hafa ver-
ið hönnuð með einfaldleika og notagildi
í huga. Ekkert prjál eöa tildur. Miðað
við frágang í bílum í dag finnst eflaust
mörgum þetta vera of einfalt í sniðum.
Mér hefði fundist við hæfi í jafndýmm
bíl og hér er á ferðinni að í stað stórrar
klukku í mælaboröinu heföi mátt vera
snúningshraðamælir. Rofi fyrir aðal-
ljós er vinstra megin í mælaborði og er
þaö galli. Það er of langt aö teygja sig
þangað miðað við að hafa slíkan rofa á
stýrisstönginni eins og algengt er í
dag.
Stýrisgrip er gott, stýriö er klætt
með mjúku leðurlíki sem gefur gott
grip bæði í hita og kulda Eg varö fyrir
dálitlum vonbrigðum meö gírskipting-
una. Skiptingin, 2—3—4,er með því
besta sem gerist en hins vegar er skipt-
ing í fyrsta gír og afturábak allt of stíf
og óviss. Hvort þetta var aðeins í þess-
um eina bíl sem var reynsluekið er
ekki gott að segja en þetta er hlutur
sem eflaust má betrumbæta.
Góður á mölinni
Aksturseiginleikarnir em einn
stærsti plúsinn við Golfinn. Framhjóla-
drifiö gefur ekkert eftir því besta sem
áður hefur komiö fram á því sviði.
Götuhávaði er að vísu fullmikill,
sérstaklega þegar ekið er á steypu eða
grófu malbiki, en hverfur nær alveg á
góðu malbiki og er furðu lítill í akstri á
malarvegum. Og það var í akstri á
Sætín eru góð, nokkuð stíf. Inn- og
útstíg i aftursætí er fullþröngt.
Góður frágangur er á öllum klæðn-
ingum.
Þykk filtmotta er í gólfi en hjól-
skálarnar eru berar.
Mælaborðið er einfalt, svo og
stjórntæki. í stað klukkunnar hefði
mátt vera snúningshraðamælir.
malarvegum sem bíllinn naut sín
best. Þaö var nær alveg sama hvernig
bílnum var beitt á mölinni, alltaf hélt
hann sínu striki og fjöðrunin, sem mér
fannst á stundum of stíf á malbikinu,
svaraði mjög vel á vondum malarvegi
og þótt ekiö væri fullgreitt í allstór
hvörf þá var þaö vart merkjanlegt fyr-
irfarþegana.
Vélaraflið skilar sér vel og er fylli-
lega nægilegt. Á móti vélaraflinu
Volkswagen Golf CL:
Lengd: 4002 mm.
Breidd: 1666 mm.
Hæð: 1423 mm.
Þyngd: 825 kg.
Bil milli öxla: 2475 mm.
Vél: Fjögurra strokka, þverstæð, 1272 rúmsm, 55 hestöfl, (40 kW)
viö 5400 sn. á mín. Fjögurra gíra. Framhjóladrifinn.
Bremsur: Diskar aö framan, skálar aö aftan.
, Hjól: 155 SR13.
Snúningsradíus 10,5 m.
Verð: 358.000 kr.
Mýkri línur greina nýja Golfinn frá fyrirrennaranum. Svuntan að framan er
aðeins í 16,5 sm hæð frájörðu svo hún tekur fíjótt niðri, sérstaklega ísnjó á
vetrum.
kemur góð útjöfnun á gírkassa sem
gerir það að verkum að ekki þarf
stöðugt að vera að skipta um gír í mis-
jafnri umferð líkt og á mörgum öðrum
bílum í svipuðum stærðarflokki.
Ágæt nýting á
farangursrými
Farangursrýmið á nýja Golfinum er
stærra en á fyrirrennaranum og hefur
verið aukið úr tæpum 200 h'trum upp í
225 lítra. En miðað við marga keppi-
nauta þá er fulllítið lagt í frágang á
farangursrýminu. Það er með þykkri
filtmottu í gólfi, en hjólskálamar eru
berar, nokkuð sem ég hélt að væri
alveg horfið á bílum í þessum gæöa-
flokki. Hægt er að auka nýtinguna á
rýminu með því að leggja sætin fram,
en aðeins aht bakið í einu en ekki hluta
þess eins og algengt er orðið í dag.
Of dýr miðað
við stærð
Golfinn hefur alla þá eiginleika sem
hægt er að fara fram á í bíl af þessari
stærð. Aksturseiginleikar síst lakari en
á mörgum stærri bílum. Það sem
hamlar því að hann nái vinsældum
gömlu bjöllunnar er verðið þvi í dag
kostar Golf 358 þúsund krónur sem er
of mikið sé miðað við þá keppinauta
sem eru að berjast á þessum markaði.
Hins vegar verður aö Uta svo á að
mörgum kunni að finnast að bUUnn
bjóöi upp á ýmsa eiginleika sem rétt-
læti hærra verð en um sUkt verður
hver að dæma fyrir sig. -JR
Að aftan halda sömu mjúku linurn-
ar sór, en afturglugginn gefur
minna útsýni en var á gamla bíln-
um.
ORIGINAL
AUGLÝSINGAVEGGIR
Frábær hönnun — auðveldirí uppsetningu og geymslu.
Getum einnig útvegað áprentaðar vörur,
s.s. pennastatíf, lyklakippur, upptakara og margt fíeira.
SKIPHOLT117,
SÍIVII 27220.
HIMOTSKURN
í