Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Side 2
2
DV. FIMMTUDAGUR 2. ÁGUST1984.
Frú Vigdís Finnbogadóttir undirritar eiðstafinn. Hjá henni stendur Björn
Helgason hæstaréttarritari en hinum megin eru þeir Halldór Ásgrímsson,
staðgengill Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra, Þór Vilhjálms-
son, forseti Hæstaréttar, og Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti sam-
einaðs Alþingis.
istríður, dóttir Vigdisar, var að sjálfsögðu
riðstödd athöfnina og samfagnaði móður
tinni.
D V-myndir: Einar Ólason.
Forsetinn flytur hér ávarp
sitt fyrir þéttsetnum
þingsalnum.
Það var glampandi sól og blíö-
skaparveður í gær er forseti Islands,
frú Vigdís Finnbogadóttir, var sett í
embælti í annað sinn. Fjöldi fólks var
saman kominn á Austurvelli til að
fylgjast með athöfninni en lúðrasveit
lék á undan. Rétt fyrir klukkan hálf-
fjögur var svo gengiö til kirkju úr
Alþingishúsinu, frú Vigdís Finnboga-
dóttir fremst í fagurrauðum, síðum
kjól og við hliö hennar Þór Vilhjálms-
son, forseti Hæstaréttar. Hófst síðan
guösþjónusta í Dómkirkjunni þar sem
séra Ölafur Skúlason vígslubiskup
flutti ræöu. Dómkórinn söng undir
stjórn Marteins H. Friðrikssonar en
hann lék í upphafi forspil eftir Pál
Isólfsson.
Að guðsþjónustu lokinni var gengið
úr Dómkirkjunni til Alþingishússins.
Þar lýsti Þór Vilhjálmsson forseta-
kjöri og mælti fram eiðstafinn sem for-
setinn síðan undirritaði. Aö því loknu
gekk forsetinn fyrir forseta Hæsta-
réttar sem afhenti henni kjörbréfið.
Forseti Islands gekk þá út á svalir
Alþingishússins meö kjörbréfiö í hend-
inni, minntist ættjarðarinnar og var
fósturjörðin hyllt með ferföldu húrra-
hrópi. Lúðrasveit lék Island ögrum
skorið. Síðan gekk frú Vigdís Finn-
bogadóttir inn í þingsalinn aftur og
flutti ávarp. Dómkórinn, sem stóð á
pöllunum, söng að lokum þjóðsönginn.
Fjöldi boðsgesta var viðstaddur emb-
ættistökuna. Meirihluti ríkisstjórnar-
innar var viðstaddur, auk alþingis-
manna, hæstaréttardómara, presta,
ráöuneytisstjóra, embættismanna,
listamanna og erlendra sendiherra. Að
athöfn lokinni var síöan boð á Bessa-
stöðum fyrir fjölskyldu frú Vigdísar,
vini og samstarfsmenn.
-pá
Hagkaup og Vörumarkaðurinn:
Fá ekki slátur
íslendingar mótmæla
húsið á Króknum
Stjóm Kaupfélag Skagfirðinga
hefur neitað Hagkaupi og Vöru-
markaðinum um að fá að taka
sláturhús kaupfélagsins á leigu
næsta haust. Fyrirtækin tvö fóru
fram á að taka að sér slátrun, sölu og
kjötgeymslu í sláturhúsinu og
kváðust einnig geta greitt fullt
afuröaverð til bænda, ef af leigunni'
yrði.
I bréfi frá Kaupfélagi Skagfirð-
inga er beiöni Hagkaups og Vöru-
markaðarins hafnað á þeirri for-
sendu að stjómin hafi hvorki heimild
né vilja til að ganga gegn sam-
þykktum félagslns með því að hætta
þessari starfsemi og selja hana á
leigu til annarra. Þá er einnig borin
til baka sú fullyrðing Hagkaups og
Vörumarkaðarins að Sláturhús KS
muni ekki geta greitt fullt afurða-
verð til bænda. Engin ástæða sé til að
ætla að vanta muni upp á verðið aö
loknu afurðaárinu 1982-83. Hins
vegar er efast um að fullt grund-
vallarverð hafi verið greitt til bænda
hjá þeim sláturhúsum sem fyrir-
tækin tvö eiga þegar aðild aö. Hafi
þau því haft verulegt fé af inn-
leggjendum sem beri aö leiðrétta.
-pá
— dönsk skip til loðnuveiða við Grænland
„Utanríkisráðuneytið lýsti yfir
miklum vonbrigðum sínum við danska
sendiherrann í fyrradag aö farið skyldi
út í veiðar á þessu svæði,” sagði Olafur
Egilsson. sendiherra í samtali viðDV.
Fjögur skip frá Hirtshals í Dan-
mörku eru nú farin til loðnuveiða við
Austur-Grænland þrátt fyrir að ekki
liggi fyrir samkomulag um veiðar
Dana á þessum slóðum. „Þessar
veiöar byggja þeir á því að loðnu-
stofninn gangi a.m.k. einhver árin á
Grænlandsmið þó hann haldi sig vana-
lega innan íslensku efnahagslögsög-
unnar.” sagði Olafur. „Það hefur verið
reynt að koma á samkomulagi Norð-
manna, Efnahagsbandalagsins og Is-
lendinga um skipulag loðnuveiða og
skiptingu veiöikvóta. Þessar viöræður
hafa strandað á óraunhæfum kröfum
EBE að mati Islendinga og því að
hvorki þeir né Norðmenn hafa viljaö
leggja til grundvallar viö skiptingu
þær upplýsingar sem fyrir liggja frá
vísindamönnum um dreifingu
stofnsins milli Islands annars vegar og
Grænlands og Jan Mayen svæðanna
hins vegar.”
— Nú er því haldið fram að hér sé á
ferðinni pólitískt bragð Dana til að
styrkja kröfur þeirra um 200 mílna lög-
sögu austur af Grænlandi?
„Það er mjög eindregin skoðun
þeirra sem gerst þekkja til útgerðar og
kostnaðar aö þessar veiðar séu
styrktar enda væru veiðarnar óarð-
bærar ella. Það er mjög líklegt að
Danir og EBE vilji styrkja kröfur
sínar meö þessu.
Islendingar og Norðmenn telja eðli-
legt að miölína skipti. Danir eiga
vissan rétt til veiða innan óumdeildra
grænlenskra marka en veiðum þeirra
og annarra utanaökomandi aðila
austan við miölínu hefur veriö mót-
mælt. Einnig er lögð rík áhersla á að
veiðimagn fari ekki fram úr því sem
talist getur eðlileg hlutdeild. Þessu
máli verður fylgt frekar eftir af hálfu
utanríkisráðuneytisins,” sagði Ölafur
Egilsson.
ás