Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Blaðsíða 8
8 DV. FIMMTUDAGUR 2. ÁGUST1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Ræningjar frönsku f lugvélarinnar: Hóta að skjóta einn farþega á klukkustund Franska farþegaflugvélin sem rænt var í fyrradag er enn á flug- vellinum í Teheran. Utvarpið í Teheran skýrði frá því í gærkvöldi að flugræningjarnir hefðu hótaö að drepa einn farþega á klukkustundar fresti ef frönsk stjórnvöld yröu ekki við kröfum þeirra um að sleppa fimm nafn- greindum mönnum úr fangelsi. Ræningjamir gáfu frönskum stjóm- völdum frest til hádegis í dag til aö verða við þessum kröfum. Ræningjarnir hafa leyft 13 farþeg- um aö fara frá borði og eru þaö 12 konurogeittbam. Þrir þeirra sem ræningjarnir krefjast að verði látnir lausir úr frönskum fangelsum vom viðriðnir morðtilraun á fyrrverandi forsætis- ráðherra íran, Shapur Bakhtiar, í nágrenni Parísarárið 1980. Flugræningjamir eru þrír og tala arabísku. Þeir eru sagðir vopnaðir handsprengjum og hafa ítrekað hót- að aö sprengja flugvélina í loft upp verði kröfur þeírra ekkí teknar til greina. Ræningjamir hafa nú í haldi 51 farþega og fimm manna áhöfn flug- vélarinnar. Ekki er vitað hversu margir farþeganna eru franskir en farþegarnir era einnig frá Vestur- Þýskalandi, Japan, Finnlandi og Suður-Kóreu. Ríkisstjóm Frakklands leitaði í gær eftir alþjóðlegri aðstoö við að yfirbuga ræningjana. Meðal annars var leitað til Sameinuðu þjóðanna. Skyndifundur var í gær boðaður í ríkisstjórn Frakklands vegna þessa máls. Þjónusta sovéskra banka ersögð fráleit. Fólk þarfað bíða dögum saman til að ná litlum fjárhæðum út af reikningum sinum. Belgía: Greiða fólki fyrir að taka frí — svo að atvinnuleys- ingjarfái tækifæri tilað vinna Ríkisstjórn Belgíu vill að fólk sem hefur atvinnu taki sér leyfi frá störfum í eitt ár til að veita atvinnuleysingjum tækifæri til að vinna. Þetta kom fram í einu af stuðnings- blöðum ríkisstjórnarinnar í fyrradag. Samkvæmt frétt blaösins er ríkis- stjórnin tilbúin til að greiða þeim sem tekur slíkt frí rúmar fimm þúsund ís- lenskar krónur á mánuði. Einnig eru uppi ráðagerðir um aö á næsta ári veröi varið miklu fjármagni til að greiða atvinnulausum útlending- um vilji þeir yfirgefa Belgíu. Slíkar greiöslur era bundnar við útlendinga frá ríkjum utan Efnahagsbandalags Evrópu. I júnílok vora 494.000 manns á at- vinnuleysisskrá í Belgíu. Er það um 11,8 prósent vinnufærra manna. Gaddafi vill bæta sam- skiptin við nágranna Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu, hefur lýst því yfir að hann vilji bæta samskiptin við nágrannaríkin og enn- fremur við ríki E vrópu, að því er heim- ildir frá Italíu herma. Á Gaddafi að hafa skýrt frá þessu í viðræðum viö Guilio Andreotti, utanríkisráðherra Italíu, sem í gær sneri heim úr opin- berri heimsókn til Líbýu. Gaddafi á að hafa nefnt Egyptaland og Túnis sérstaklega, auk þess sem hann lýsti yfir því að hann hefði hug á að grípa til aðgerða sem bæta mundu ásjónu Líbýu I Evrópu. Italir og Líbýumenn undirrituðu viðskiptasamning upp á tæpar 800 milljónir og var það tilefni heimsóknar ítalska utanríkisráðherrans. Erich Honecker, leiðtogiAustur-Þjóðverja, og Konstantin Chernenko, leið- togi Sovétmanna. Þeim síðarnefnda gremst mjög sú fyrirætlun Honeckers að ætla að heimsækja Vestur-Þýskaland. Engan bilbug að fínna á Honecker — Sovétmönnum gremst mjög fyrir- huguð heimsókn hans til V-Þýskalands Erich Honecker, leiðtogi Austur- Þýskalands, virðist enn vera staðráð- inn í að heimsækja Vestur-Þýskaland í næsta mánuði þrátt fyrir athugasemd- irSovétmanna. Sovétstjórnin hefur ítrekaö lýst yfir því aö aukin samskipti þýsku ríkjanna séu aðeins til aö styrkja Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands, í sessi en þjónuöu alls ekki hagsmunum kommúnistarík janna. Sovéska fréttastofan Tass sagði í gær aö stjórn Vestur-Þýskalands ynni markvisst að því að grafa undan sósíalismanum í Austur-Þýskalandi. Einnig hafa sovéskir fjölmiðlar sak- að Vestur-Þjóðverja um að eiga mesta sök á því að afvopnunarviðræöur stór- veldanna fóru út um þúfur með því að leyfa uppsetningu bandarískra eld- flauga í Vestur-Þýskalandi. Sovétríkin: Erfitt að ná fé út úr bönkum Sovéskir sparif járeigendur eiga oft í miklum erfiðleikum með aö ná pening- um sínum út úr hinu ríkisrekna banka- kerfi. Er það vegna þess að bankamir eru illa skipulagðir og starfsfólkið er latt og ruddafengið. Þetta kemur fram í málgagni Sovétstjórnarinnar, Izvestia. Blaðið segir sögu af Ukraníumanni sem hafi komið í bankann sinn til að taka út peninga. Hann var beðinn um að koma aftur eftir hálf an mánuð og þá væri hægt aðafgreiða hann. Viðskipta- vinurinn ætlaði aðeins að taka nokk- ur hundruð rúblur út af reikningi sín- um. Izvestia segir að saga þessi sé alls ekkert einsdæmi. Meginvandinn er sá, að sögn blaðsins, aö starfsfólkið hirðir ekki um að áætla hversu mikið fjármagn þurfi að vera til staöar í bönkunum í reiðufé svo að hægt sé að veita viðunandi þjónustu. Izvestia lýsti yfir miklum áhyggjum vegna þessa vandamáls og sagði að þetta stæði eölilegum bankaviðskiptum fyrir þrifum. Pólland: Þúsundir minnast uppreisnar gegn Þjóðverjum su Kanna fjolda- morð í Kamerún Mannréttindasamtökin Amnesty International segjast nú vera að rannsaka fullyrðingar um að 120 manns hafi verið teknir af lífi í Afríkuríkinu Kamerún. Fjöldamorð- in eiga að hafa átt sér stað með leynd í apríl síðastliðnum. Þá var gerð árangurslaus byltingartilraun í landinu og átti að steypa Paul Biya, forseta Kamerún, af stóli. Fjöldi manns hefur verið fangelsaður af sama tilefni og marg- ir hafa þurft að þola hroðalegar pyntingar, að því er heimildarmenn Amnesty International herma. Samtökin hafa krafist þess að nöfn hinna látnu verði birt og þeim, sem fángelsaðir hafa verið af stjómmála- ástæðum, verði sleppt lausum. Talið er aö tugir manna bíði þess nú að dauðadómum yfir þeim verði framfylgt. Herdómstóll dæmdi í málum þeirra að sögn Amnesty International. Stjómvöld hafa hingaö til þvertekið fyrir að birta nokkur nöfn sem tengjast þessum málum. I fréttinni frá Amnesty Inter- national segir að samtökin hafi öraggar heimildir fyrir því að fangar hafi sætt pyntingum í Kamerán. Til dæmis hafi fyrrverandi fram- kvæmdastjóri flugfélags landsins, Ahmadou Bello, sætt barsmíðum áður en mál hans hafi verið dóm- tekiö. Bello hafi verið hlekkjaður í fangaklefa og þegar hann hafi beöiö um drykkjarvatn hafi sjóöandi vatni verið hellt yf ir hendur hans. Fangarnir hafa enga heimild til að áfrýja dómum herdómstólsins. Þúsundir Pólverja söfnuðust saman í Varsjá í gær til að minnast þeirra sem féllu í uppreisninni gegn þýska hemámsliöinu áriö 1944. Fólkið söng baráttulag Einingar, hinnar bönnuðu verkalýðshreyfingar í landinu. Enginn minningarathöfn var haldin af hálf u stjórnvalda í Póllandi. Ennfremur hrópaöi mannfjöldinn nafn Einingar þegar Anna Walentyno- wicz kom á staöinn. Hún var einn af skipuleggjendum verkfallsins í Lenin skipasmíöastööinni í Gdansk árið 1980. Walentynowicz bað fólkiö um að biðja fyrir Bogdan Liz en hún er ein af leið- togum neðanjarðarhreyfingar Eining- ar. Liz var handtekin í júní og er nú í fangelsi. Liz er sökuð um landráð og því nær sakaruppgjöf pólskra stjórn- valda ekki til hennar. I fyrrakvöld gengu þúsundir stuðn- ingsmanna Einingar um götur Varsjár og lögöu blómsveig að leiði hins óþekkta hermanns. Lögreglan lét fólkið afskiptalaust bæði í gær og f yrrakvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.