Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Blaðsíða 3
DV. FIMMTUDAGUR 2. ÁGUST1984. — segir Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍl) „Mér finnst mikið gert úr litlu,” sagði Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, um aögerðir ríkisstjórnarinnar til að leysa vanda sjávarútvegsins. „Það eina sem skipt- ir máli í þessum aðgerðum ríkisstjóm- arinnar er þessi 3% viðbót við fiskverð, sem tengist verðlagningu á olíu. Það segir í forsendum bráðabirgðalaganna aö unnið verði að endurskoðun á olíu- verði og viö veltum því fyrir okkur hvort með þessum 3% sé verið að taka út jafngildi ob'uverðslækkunar. Okkur finnst ósanngjarnt að útgerðin eigi að greiða sama olíuverð og þeir sem kaupa olíu í litlum mæb. Þá teljum við að ýmis opinber gjöld af olíu eigi að falla niður eins og t.d. gjald sem nefn- ist landsútsvar á obufélögin sem er í raun ekkert annað en skattlagning á útgeröina,” sagðiKristján. Varðandi breytta tilhögun við vaxta- ákvörðun sagði Kristján að ekki væri unnt að sjá fyrir hvaða áhrif það hefði á rekstur útgerðarfyrirtækjanna. Vaxtafrelsi bankanna tæki ekki til afurðalána og ef skuldbreytingin yrði í þeim mæU sem búist er við kæmust töluverðar lausaskuldir útgerðarinnar úr vanskUum yfir í skil þannig að þær dráttarvaxtahækkanir sem verða 1. sept. hcíóu ekki áhrif á þær skuldir. „Það er því miður mikið um vanskU vaxta hjá útgerðinni svo það má búast við því er fram Uða stundir að vaxta- breytingarnar verði baggi á útgerð- inni,” sagði Kristján Ragnarsson. -ÞJH Athugasemd um bíóaldur Níels Ámason, bíóstjóri í Hafnar- fjarðarbíói, hafði samband við DV vegna fréttar á mánudag um aö Nýja bíó á Siglufirði væri hið þriðja elsta starfandi á landinu. Hið rétta er að Hafnarfjarðarbíó skipar þennan sess en það var stofnað 1914 og er því 70 ára. Hafnarfjarðarbíó hefur verið í núver- andi húsaky nnum síðan 1943. -pá Dráttarvext- irhækka Dráttarvextir hækka þann 1. september nk. um 0,25% og verða því 2,75% frá þeim degi að telja. Akvörðun dráttarvaxta fellur ekki undir vaxta- frelsi bankanna sem þeim var veitt með nýjustu aðgerðum ríkisstjómar- innar og verða því áfram bundnir ákvöröunum Seðlabankans. Nr. 1 í JAPAN [á, í Japan, landi þar sem almenn neytendaþel<king er á háu stigi og gæðakröfur eru miklar, er Panasonic mest keypta VHS myndsegulbandstækið. Panasonic er að sjálfsögðu einnig mest keypta VHS myndsegulbandstæki í heimi. NV-370 NÝ HÁÞRÓUÐ TÆKI FYRIR KRÖFUHARÐAN NÚTÍMANN. > j) H Z # 8 liða fjarstýring # Quarts stírðir beindrifnir mótorar # Quarts klukka # 14 daga upptökuminni # 12 stöðva minni # OTR: (One touch timer recording) # Rafeindateljari # Myndleitari # Hraðspólun með mynd áfram # Hraðspólun með mynd afturábak # Kyrrmynd # Mynd skerpu stilling # Mynd minni # Framhlaöið 43 cm breitt (Passar í hljómtækjaskápa) # Upptökuminni til daglegrar upptöku t.d. er hægt að taka 10—12 fréttatíma fram í tímann. • Sjálfspólun til baka • Fín Editering. Klippir saman truflanalaust nýtt og gamalt efni. • Tækið byggt á álgrind. • Fjölvísir Multi-Function Display Panasonic gæði. varanleg gæði. AKRANES: Stúdióval. AKUREYRI: Radíóvinnustofan Kaupangi. Tónabúðin. BORGARNES: Kaupfélagið. ESKiFIÖRDUR: Pöntunarfélagið. HAFNARF|ÖRDUR: Kaupfélagið Strandgötu. HELLA: Mosfell. HORNAFIÖRDUR: Radíóþjónustan. NESKAUPSTADUR: Kaupfélagið. SAUDÁRKRÓKUR: Rafsjá. SELFOSS: Vöruhús KÁ. SEYDISF|ÖRDUR: Kaupfélagið. TÁLKNAF|ÖRDUR: Bjarnarbúð. VESTMANNAEY|AR: Músík og Myndir. # WJAPIS hf BI5AUTARHOLTI 2 SÍMI 27133 Þýski gæðabíllinn Golf Verð frá kr Það besta verður ávalit ódýrast"—

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.