Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Blaðsíða 21
DV. FIMMTUDAGUR 2. ÁGUST1984.
29
Dómur genginn í máli Laugarásbíós og Háskólabíós
gegn Videoheiminum:
Refsing og mynd-
bandið gert upptækt
Nýlega var kveðinn upp dómur í
Borgardómi Reykjavíkur í máli
Laugarásbíós og Háskólabíós gegn
myndbandaleigunni Videoheimurinn.
Var málið höföað vegna ólöglegrar út-
leigu myndbandaleigunnar á mynd-
bandinu The Hunter með Steve
McQueen í aðalhlutverki.
Eggert Oskarsson kvaö upp dóminn,
en í dómsorðum segir að Video-
heimurinn sé dæmdur til greiðslu 4000
kr. sektar og að myndbandið sé gert
upptækt. Er þetta í annað sinn sem
dómur í svona máli er kveöinn upp, sá
fyrri var í maí í fyrra.
I málinu var krafist 15.000 kr. í
miskabætur en þeirri kröfu var vísað
frá í dómnum þar sem talið var að ekki
ætti annar en höfundur sjálfur rétt á
slíkum bótum.
Mál þetta var ennfremur staðfest-
ingarmál á lögbanni sem sett var á
Videoheiminn vegna The Hunter og
var lögbannið staðfest í dómnum en
það var sett á í árslok 1982.
I samtali við DV sagði Eggert
Óskarsson dómari aö höfundarréttar-
lögin, sem Alþingi setti nýverið og ná
yfir myndbönd, hefðu ekki spilað inn í
þennan dóm þar sem málið var rekið
sem einkamál. „Lögin gera það hins
vegar að verkum að þessi mál verða
opinber mál og nú er því hægt að krefj-
ast opinberrar rannsóknar á þeim og
hægt að fá aðstoð lögreglu við rann-
sókn þeirra,” sagði Eggert og bætti
því við að eftir sem áður væri einnig
hægt að reka þessi mál sem einkamál.
___________________________-FRI
Þrjú einkamál
ígangi
Samkvæmt upplýsingum frá
Brynjólfi Eyvindssyni, einum af
lögfræðingum Samtaka rétthafa
myndbanda, eru nú þrjú einkamál í
gangi sem sótt eru af aðilum innan
SRM á hendur myndbandaleigum, auk
þess sem lögð hefur verið fram kæra
hjá RLR vegna sýninga í fjölbýlishúsi.
„Viö viljum ekki drekkja rann-
sóknarlögreglunni í kærum frá okkur
heldur bíða og sjá hve hratt þeim vinn-
ast málin,” sagöi Brynjólfur.
Friðbert Pálsson, formaöur SRM,
sagöi í samtali við DV að eftir herferð
þá sem samtökin stóðu að, þar sem
einstaklingum voru veitt verðlaun
fyrir að koma með ólöglegar spólur til
SRM, hefði í sumum tilfellum verið
samið um endurskil og sektir viö
viökomandi myndbandaleigur. Ef um
ósýndar bíómyndir heföi verið að ræöa
var slíkt hins vegar ekki gert...
„stærsta máliö sem við eigum
óafgreitt í þessu er vegna Videoheims-
ins og Videosýnar. Þar hefjum við
örugglega mál”, sagði hann. -FRI
Ég lifi
— í fyrsta sinn
á myndbandi
Myndin Eg lifi, sem gerð er eftir
samnefndri sögu Martin Grey, er til
á myndböndum hérlendis en Island
mun vera fyrsta landið í heiminum
þar sem þessi mynd fæst á mynd-
bandi, samkvæmt upplýsingum Jó-
steins Kristjánssonar hjá Mynd-
bandaleigu kvikmyndahúsanna.
Myndin fjallar um raunir manns
sem missir fjölskyldu sína í útrým-
ingarbúöum nasista í seinni heims-
styrjöldinni, flyst vestur um haf að
stríðinu loknu og kemur undir sig
fótunum þar en lendir svo í svipuðum
raunum, þ.e. missir fjölskyldu sína í
annaðsinn.
Britannia Hospital
Leikstjóri: Lindsay Anderson.
Aðalhlutverk: Leonard Rossiter,
Malcolm McDowell.
Bráðfyndin skopstæling, meö illvíg-
um broddi, á breskt samfélag, einkum
hvað varðar tvö svið þess, verkföll og
konungboma slektiö.
Sögusviðið er stór breskur spítali þar
sem allt logar í vinnudeilum og verk-
föllum, oft út af smávægilegum at-
riðum svo rekstur spítalans er meira
og minna í molum. Ekki bætir úr skák
að von er á drottningarmóöurinni
sjálfri í heimsókn og ekkert má út af
bera þegar hún á í hlut.
Ofan á þetta allt bætist svo snar-
geggjaður skurðlæknir meö heila stofu
til umráða í óða önn að skapa sér mann
úr líkamspörtum sem hann hefur sank-
aðaðsér.
Ur þessum efniviði gerir Anderson
hreint frábæra gamanmynd sem
einnig má taka sem bitra þjóðfélags-
gagnrýni þótt húmorinn sé á köflum
álíka geggjaður og skurðlæknirinn.
-FRI
yt>»> 'í w*w> ***** ww*
Leikstjóri Edward Ludwig.
Aðalhlutverk: John Wayne, Susan
Hayward.
Ein af þessum gömlu traustu
stríðsmyndum sem Bandaríkjamenn
gerðu til að peppa upp móralinn hjá
þjóðinni er þeir börðust við Japani á
stríðsárunum.
John Wayne leikur byggingaverk-
taka sem gefur skít í guð og djöfulinn
svo lengi sem hann getur skilað af
sér verkefnum sínum á tilsettum
tíma. Þar sem hann er verktaki fyrir
herinn og á að byggja flugbrautir og
olíustöövar á eyjum í Kyrrahafinu
eru Japanir iðnir við að gera honum
lifið leitt. Hann vopnar því bygginga-
verkamenn sína sem síðar leiöir til
stofnunar sérsveita með þeim
þannig að þeir geta herjaö á skáeygu
skrattana með öðrum verkum.
Susan Hayward var á hátindi ferils
síns á þessum tíma og hér leikur hún
ágætlega fréttakonu sem ástfangin
er af hörkutólinu Wayne. Wayne er
alltaf Wayne og sem slíkur fer hann
á kostum í myndinni.
-FRI
Master Of The Game.
Adalhlutverk: Dyan Cannon, lan Charleson,
Harry Hamlin, Donald Pleasence og Liane
Langford.
Eitthvert vinsælasta efnið á vídóleig-
um þessa dagana er Master Of The
Game, sjónvarpsmyndaflokkur gerður
eftir sögu Sidney Sheldon. Myndin er á
þremur spólum og tekur hátt í sjö tíma
í sýningu. Þeir sem kannast við afuröir
Sidney Sheldon kannast vel viö sögu-
þráðinn, baráttu um auð og völd ásamt
ástríðumiklu sambandi milli kynja. Að
þessu sinni er sögusviðið Suður-Afríka
tii að byrja með, og segir í fyrsta
hlutanum frá baráttu James
McGregor til valda og auðs í auðug-
asta demantalandi veraldar, sigri
hans og aö lokum endalokum hans.
Annar hlutinn fjallar að mestu um
dóttur hans Kate Blackwell og son
hennar sem hlýtur ömurleg endalok.
Þriðji hlutinn fjallar svo að mestu um
tvíburana Evu og Alexöndru sem eru
fjórði ættliöur í þessu drama. Það
tekur á þolinmæðina að horfa sjö tíma
á sama efnið, enda var það ekki gert á
einni kvöldstund. Persónulega fannst
mér fyrsti hlutmn skara nokkuð fram
úr að gæðum. En í heild verður að
segja um Master Of The Game að
spenningurinn er nokkuð mikill, þótt
efnið sé frekar í þynnra lagi.
1. Master of the game.
2. Christine.
3. Private Benjamin.
4. The Black Stallion.
5. DogSoldiers.
6. Frances.
7. Églifi.
8. DogsofWar.
9. Raiders of the lost Ark.
10. Útlaginn.
Vinsældalisti DV er unninn í sam-
vinnu við 10 stærstu myndbandaleig-
umar innar SÍM auk Video-sport (3
leigur) og Myndbandaleigu kvik-
myndahúsanna (61eigur).
ALANSATtS
Ti^ReturactfðieSk&te I
Return Of The Soldier.
Loikstjóri: Alan Bridges.
Aðalhlutverk: Glenda Jackson, Julie Christie,
Ann Margret og Alan Bates.
Return Of The Soldier er gerð eftir
skáldsögu Rebeccu West og segir frá
hermanni í fyrri heimsstyrjöldinni
sem særist. Við það missir hann
minnið að hluta. Man allt sem gerðist
fyrir tuttugu árum en litið annaö.
Meðal annars er hann búinn að
gleyma eiginkonunni, en man þess
betur eftir æskuunnustu sinni og vill
hann ólmur hitta hana og verður ekki
í rónni fyrr en endurfundum þeirra
er komið á. Eiginkonan, sem er stolt
yfirstéttarmanneskja, á bágt með að
þola þetta, enda æskuunnustan í
hennar augum ekki annað en vinnu-
hjú sem er fyrir neðan hennar virð-
ingu að umgangast. Þrátt fyrir að
æskuunnustan sé enn hrifin af
hermanninum er það hún sem
verður til þess að hann fær minnið
aftur og um leið gleymir hann að
mestu því sambandi sem á milli
þeirra er og var. Return Of The
Soldier er falleg mynd og um leið
eins bresk og kvikmyndir þaöan geta
orðiö. Styrkir það myndina hversu
góður leikur aðalleikaranna er.
HK.
STALLONE
ÍSLCNSKUR
TEXTi
VHS
First Blood.
Leikstjóri: Ted Kotcheff.
Aðalhlutverk: Silvester Stallone, Richard
Crenna og Brian Dennehy.
Nokkrar myndir hafa verið gerðar
um afleiðingar stríðsins í Víetnam og
áhrif þess á óbreytta hermenn. Þrátt
fyrir misjöfn gæði hefur það alltaf
skinið í gegn að þeir stríöshrjáðu
menn, sem heiin koma, hafa alltaf
þurft á mikilli aðstoð að halda til að
komast á réttan kjöl í lífinu. First
Blood er einmitt um einn slíkan sem
ekki hefur fengið þessa hjálp. John
Rambo (Silvester Stallone) var í Víet-
nam einn aöaldrápari Grænjakkanna
svokölluðu og þegar heim er komið
getur hann ekki aðlagast hinu borgara-
lega lífi og þegar einn frekar ógeöfelld-
ur lögregluþjónn lemur hann eftir
handtöku sem var tilhæfulaus, kemur
upp drápseðlið í honum og hann geng-
ur frá nokkrum lögregluþjónum og
heldur til skógar þar sem hann getur
verið óhultur og er á heimavelli. AUt er
reynt til að handtaka hann en ekkert
gengur. Þaö er ekki fyrr en fyrrver-
andi yfirmaður hans kemur til
skjalanna, og eftir aö hann er búinn að
rústa eina smáborg að hann lætur að
stjórn. Þrátt fyrir nokkuð ógeðfellt efni
er First Blood mjög spennandi mynd
og margar senur listilega vel gerðar.
HK.
HK.