Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Blaðsíða 22
Fríða býr sig undir hiaup, tveggja og háifs árs gamaii sveinn hennar horfir á. HEILBRIGÐ SÁL í HRflUSTUM UKAMA — er af raksturinn af hlaupunum, segir Fríða Bjamadóttir „Eg skokka fyrst og fremst til aö halda mér í líkamlegu formi og svo er þaö nú þannig aö ef líkaminn er í lagi fylgirsálin með.” Þaö er Fríða Bjarnadóttir hjúkrunarkona sem mælir þessi orð. Hún er ein af þeim sem hleypur sér til ánægju og yndisauka. Sannarlega er hún ekki sú eina en líkast til eru ekki margir sem leggja í svo langar vega- lengdirsemhún. „I hlaupunum er ég þó ekki aðeins aö sækjast eftir hreyfingu. Þaö er líka mjög eftirsóknarvert að vera úti í góðu lofti. Og svo tryggir þetta mér klukku- tíma á dag einni með sjálfri mér. Þetta er mér mikilvægt því að á hlaupunum hugsar maður mikið, — á stundum koma upp hugsanir sem myndu ekki leita á mann ef maður væri heima við.” — Hversu oft hleypurðu? „Eg hleyp á að giska í klukkutíma á dag 5 daga í viku. Eg er vön að hlaupa tvo daga í röð og taka svo frí þriðja daginn. Ætli ég hlaupi ekki á að giska 10 kílómetra í senn oft þó allt upp í 20.” Fuglarnir þjálfararnir Fríða hleypur í hvert sinn frá heimili Friða og eiginmaður hennar, Tómas Zoega læknir, en hann er hlaupagikkur eins og eiginkonan. sínu í Viöjugerði sem leiö liggur eftir Miklubraut og í gegnum Kópavog og út í Garðabæ. Stundum út í Arnarnes og í þau skipti sem hún tekur virkilegt langhlaup — 20 kílómetra — fer hún alla leið upp að Vífilsstöðum. „Það má segja að þjálfaramir mínir séu fugl- amir. A þessum árstíma em þeir yfir hreiðmm sínum og ekki par hrifnir af því að ég sé að hlaupa í grennd við þau. Þeir hvetja mig áfram meö gargi sínu enda er ég stundum smeyk við að þeir goggiímig.” — Nú starfar þú við hjúkmn? Er næg hreyfing við það að hlaupa út frá heilsufarslegu sjónarmiði? „Það eru skiptar skoðanir um það. Ég hugsa að það sé æskilegt aö gera einhverjar leikfimiæfingar með. Eg geri það stundum en hef ekki nægan tíma til að gera það í hvert skipti. Eg hleyp 10—20 kílómetra á dag og sannast sagna eru ekki allir á því aö DV-myndir: Kristján Ari. þaö sé heilsusamlegt að hlaupa svo langt. En þaö er heldur enginn sem segir að maður þurfi að hlaupa þetta langt.” í maraþonhlaupi í Boston — Þú hefur tekið þátt í maraþonhlaupi, er ekki svo? „Jú, ég hef tvisvar tekið þátt í mara- þonhlaupi úti í Boston, fyrst fyrir þremur árum og svo í apríl síðast- liönum. Erfitt? Jú, svo sannarlega. Síðustu 5 til 10 kílómetrana hef ég komist á hvatningu áhorfenda og engu öðru!” — Ætlarðu að taka þátt í maraþon- hlaupinu hérna í haust? „Eg er búin að skrásetja mig en við skulum hafa sem fæst orð um þaö, því ég ætla að láta það fara eftir veðri hvort ég hleyp alla leið eða bara hálfhleyp. Eg treysti mér varla til að taka þátt ef mótvindur verður mikiil. I Komin af stað, enda stefnan að vera,, forever fit". Raunar má líklega rekja til veður- farsins hversu fáir skokka hér miöað viö í Bandaríkjunum. Ég var búsett þar nokkuð lengi og byrjaði raunar að hlaupa þar. Áhuginn er mikill og úti á götum eru alltaf einhverjir að hlaupa. Eg held aö þaö þurfi líka aö halda fleiri áhuga- mannamót hérlendis, maður þarf á því að halda að hafa að einhverju að keppa. Nú í sumar til dæmis hleyp ég heldur meira, 20 kílómetra í stað 10, með það í huga að taka þátt í maraþon- inu.” 38 og stolt af því Fríða er hvergi bangin við mara- þoniö. Er blaöamanni varð það á aö af- saka sig um leið og hann spuröi hversu gömul hún væri, sagðist hún vera 38 ára og vera stolt af því. „Eg sé ekki af hverju maöur ætti að leyna aldrinum. Auk þess hef ég bara gaman af því aö segja við átján ára stelpur sem maður heidur í við í maraþoni að maður gæti verið mamma þeirra! ” Fríða á fjögur börn, það yngsta tveggja og hálfs. Hún sagði að konur ættu ekki að láta börn og buru aftra sér frá því aö hlaupa. „Maður liefur geysilega gott af þessu og þó fólk hafi stórt heimili þá er alltaf hægt að skipu- leggja tímann þannig að móðirin komist út í klukkutíma hlaup. Það er kannski mest um vert að börnin taki þátt að einhverju leyti. Eldri dætur mínar tvær eru sjálfar í tvo tíma á dag í sundi og maðurinn minn hleypur sjálfur, þannig aö þaö er fullur skilningur á því að ég taki klukkutíma í þetta. Eg mæli hiklaust með hlaupi sem áhugamáli fyrir hvern sem er. Þetta bætir líkamsástandið og svo er ekki verra að geta tekið hraustlega til matar síns án þess að hafa minnstu áhyggjur af línunum,” segir Fríða að lokum. -ás.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.