Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Blaðsíða 12
12 DV. FIMMTUDAGUR 2. AGÚST1984. —■ Frjálst.óháÖ dagblað DV\ Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRDUR EINARSSON. Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 1». Áskriftarverð á mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helgarblað 28,kr. Vaxtafrelsi errétt Ríkisstjórnin hefur stigið stórt skref í þá átt að gefa vexti frjálsa. Þessi aðgerð á að verða til bóta, þegar fram í sækir. Fjármagni verður ráðstafað á hagkvæmasta hátt fyrir þjóðarbúið, ef framboð þess og eftirspurn ráða vöxt- unum. Vaxtastefnan hafði lengi verið þversögn. Sú kynslóð stendur f járhagslega bezt um þessar mundir, sem byggði hús sín fyrir vexti, sem voru langt undir verðbólgustigi. Sú kynslóð fékk með öðrum orðum stóran hluta íbúða sinna gefins. Ekki sátu allir við sama borð. Lánsfé var af skornum skammti við þær aðstæður. „Gæðingar” ráða- manna gengu í fjármagnið og njóta enn góðs af því forskoti, sem þeir þá fengu. Núverandi ríkisstjórn skerti kjörin og kom með því niður þeirri verðbólgu, sem mælist í vísitölu fram- færslukostnaðar. Þeir sem greiða lán sín samkvæmt láns- kjaravísitölu njóta þess. En í ljós hefur komið, að enn ríkir ójöfnuður. Sótt hefur veriö í fjármagnið. Raunvextir hér eru nú með því hæsta sem nokkurs staðar gerist. Þeir verða 8—10 prósent eftir næstu hækkun. Sparifjáreig- endur voru lengi í öskustó en mega nú vel við una. Gangur þjóðfélagsins verður á öllum sviöum eðli- legastur, þegar framboð og eftirspurn ráða. Of lágir vextir leiða til þess að eftirspurn eftir fjármagni verður miklu meiri en framboðið. Þetta veldur því, að þeir einir komast að, sem hafa sérstaka vináttu ráðamanna. Of há- ir vextir stöðva margs konar starfsemi, sem mundi auka framleiðsluna, nyti hún réttlætis. Frelsið er nú talið munu leiða til nokkurrar hækkunar vaxta — í bili. Orsök þess er, að ekki er jafnvægi í peningamálum. Verðbólgan kraumar í reynd enn undir niðri. Verðbólgan er meiri en fram kemur 1 vísitölu fram- færslukostnaðar. Hún kemur fram í því, hve mikil eftir- spurnin er eftir fjármagni. Hún birtist í þeirri eyðslu, sem orsakar fjögur prósent halla á viðskiptum við útlönd á þessu ári. Það verður komið undir framgangi mála á næstu mánuðum, hvort þessi verðbólga blossar aftur upp og fer að koma fram í vísitölunni. Ríkisstjórnin verður að varast að miklast af því að hafa ráðið niðurlögum verðbólgunnar. Frelsið sem nú er veitt er mjög takmarkað. Stór hluti fjármagnsins kemur ekki inn í dæmið. Því er fyrirfram ráðstafað með beinum afskiptum ríkisvaldsins, svo sem fjárins vegna skuldbreytinga í sjávarútvegi og land- búnaði. Segja má, að sá hluti fjármagnsins sem þá stendur eftir, fari nú á frjálsan markað. En vextir á því verða hærri en ella vegna þess hve miklum hluta f jármagnsins hefur verið ráðstafað á ófr jálsum markaði. Menn mega þó ekki snúast gegn hinni æskilegu kerfis- breytingu í frelsisátt, þótt hún leiði tímabundið til vaxta- hækkunar. Jafnvægi á fjármagnsmarkaði er ein hin mikilvægasta forsenda þess, að efnahagur þjóðarinnar sé í jafnvægi. Hið sorglega er, að skrefið skuli ekki vera meira afgerandi. Þegar til lengdar lætur, munum við öll hagnast í kjörum okkar á því, að arðsemi ráði ferðinni við ráðstöf- un fjármagnsins. Þá þarf einnig að sjá til þess, að í bankakerfinu komist í gagnið raunveruleg samkeppni. Sem stendur stýrir ríkisvaldið miklum hluta bankanna. Fyrirgreiðslusjónarmiðin hafa þar alltof oft verið sett ofar arðsemisjónarmiðunum. Haukur Helgason. Er vísitölubinding launa orðin „tabú”? I allri umræöu um efnahagsmál, fjárlagagöt, verðlag og launamál, er engu líkara en umræöa um vísitölu- bindingu launa sé eins og skítugu bömin hennar Evu, algert feimnis- mál eöa hreinlega bannorö („tabú”). Enginn pólitíkus, hversu jákvæöur sem hann annars er í garö launafólks, gerist svo grófur aö minnast á kröfur um vísitölubind- ingu launa án þess að roöna af skömm og blygðun! M.ö.o., umræöa um visitölubind- ingu launa, þ.e. verðlagsbætur á laun, er orðin aö algeru „tabú” í þjóöf élagslegri umræðu á íslandi. Ööru vísi mér áöur brá. Vitnisburður um undanhald gagnvart ríkistjórninni Þessi bjánalega feimni viö aö setja fram í dag krófuna um vísitölubind- ingu launa af fullri einurð og í alvöru er eitt dæmiö af mörgum um þaö hvernig afturhaldsöflin í iandinu, íhaldið, Morgunblaöiö, „guia pressan” og ríkisfjölmiölamir, vinna hvert vígið af öðru í áróðurs- stríðinu gegn verkalýöshreyfingunni og sk. verkalýðsflokkum. Eftir aö ríkisstjómin lét þaö verða sitt fyrsta verk, meö bráöabirgöa- lögunum, aö banna veröbætur á laun í tvö ár hefur henni tekist meö hatrömmum áróðri aö gera alla umræöu um vísitölubindingu launa aö algeru bannorði. „Tabú” er hún og „tabú” skal hún veröa, segir rikis- stjómin. Osamstíg og tvístruð stjómarandstaðan hefur veriö sem lömuð undir fargi þessarar sterku áróðursvélar og ekki þoraö fyrir sitt litla líf aö minnast á vísitölubindingu launa frekar en mannsmorð. Og verkalýöshreyfingin viröist endan- lega hafa kokgleypt þetta áratuga gamla baráttumál sitt. Ríkisstjórnin ætlar að fram- lengja bann við vísitölu- bindingu launa Þorsteinn Pálsson, formaöur Sjálfstæðisflokksins, hefur gefiö yfir- lýsingar um það að nauösynlegt sé aö framlengja bann við vísitölubind- ingu launa þegar tveggja ára banniö renni út. Varaforseti ASI, Bjöm Þórhalls- son, hefur ekki annað um þetta aö segja, en aö yfirlýsing Þorsteins sé „ótímabær”! (sic). E.t.v. er þessi „verkalýðshetja”!, Björn Þórhalls- son, varaforseti ASI, stór atvinnu- rdíandi, efnislega sammála flokks- formanni sínum, yfirlýsingin sé bara ekki tímabær. Þetta em mennirnir, sem leiða eiga baráttuna gegn Þor- steini Pálssyni og hans „kónum” í haust. Varðandi yfirlýsingu sína um að framlengja bann við vísitölubind- ingu launa segir Þorsteinn Pálsson í viötali við Morgunblaðiö 11. júlí sl. „Hinu verða menn að gera sér grein fyrir aö þessi sjálfvirkni í hag- kerfinu, vísitölubinding á öllum sviðum, keyrði upp veröbólguna og hún færði launþegum engar kjara- bætur — hún var engin trygging fyrir kaupmætti, sem rýrnaöi jafnt og þétt, þrátt fyrir vísitölukerfiö.” Ekki verður sagt um Þorstein Pálsson aö hann risti mjög djúpt í umf jöllun sinni um vísitölubindingu því aö auðvitað gleymir hann kjama málsins sem er sá að visitölubinding er í fullu gOdi á öllum sviðum þjóð- félagsins í dag nema á sviði laun- anna. Það er einungis visitöiubind- ing launanna sem ekki er i sambandi og þess vegna verða allar kaup- máttarforsendur kjarasamninga út i biáinn. Þó aö veröbólga sé í dag ekki nema 15% þá hefur kaupmáttur samninganna frá 21. febrúar rýrnað um7%. „Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstœðisflokksins, hefur gefið yfir- lýsingar um það að nauðsynlegt só að framlengja bann við vísitöiubind- ingu launa þegar tveggja ára bannið rennur út." GUÐMUNDUR J. HALLVARÐSSON VÉLGÆSLUMAÐUR, TRÚNAÐARMAÐUR í STJÓRN DAGSBRÚNAR. Er vísitölubinding bölvald- urinn hinn illi? I gegnum sögu verkalýðs- hreyfingarinnar undangengna ára- tugi hefur rauði þráðurinn í baráttu hennar veriö barátta fyrir vísitölu- bindingu launa. 1 hörðustu kjara- deilunum á 6. og 7. áratugnum vom það verölagsbætur á laun sem voru langsamlega erfiöasta úrlausnar- efnið. 1 samningunum 1977, sem kenndir hafa verið viö sólstööur, náðist í gegn haldbesta vísitölukerfi sem verkalýðshreyfingin hefur náö í áratuga baráttu sinni fyrir vísitölu- bindingu launa. Það fólst ekki bara í því aö launþegar fengju bætur fyrir veröhækkanir á hverju þriggja mánaöa tímabili heldur kom til sögunnar sk. verðbótaauki. Allt tal um að það sé vísitölubind- ing launa sem valdi verðhækkunum er hrein lygi. Sú lygi stafar ekki af heimsku þeirra sem þessu halda fram heldur er þessi lygi meövituö sem liður í meðvitaöri áróðursher- ferö afturhaldsins. Áróðursherferð sem hefur það aö markmiði að gera vísitölubindingu launa tortryggilega og fá launafólk til að afsala sér þessari einu vöm fyrir viöhaldi kaupmáttar. Þeir sem trúa því aö vísitölu- binding launa valdi verðbólgu ættu aö h'ta svolítið aftar í tímann. Verka- lýöshreyfingin hefur nefnilega oft búiö viö tímabil án vísitölubindingar launa. Þá fékk verölagið aö vaða áfram án nokkurrar hindrunar. Vísi- tölubindingin er nefnilega, þrátt fyrir allt, til aöhalds í efnahagslífinu. Ef stjórnvöld láta hins vegar frumskógarlögmáhn gilda, allt fær að ganga laust án nokkurrar hindr- unar, þá veldur sú innri víxlverkan auðvitaö veröbólgu. Þaö er ekki vísitölubindingunni aö kenna heldur stafar þaö af óstjóm í efnahags- hfinu. Það má út af fyrir sig deila um það hvemig vísitölubinding eigi aö vera útfærö. Hvort bætumar eigi að vera prósenta eöa krónutala en þaö breytir ekki þeirri staöreynd að verðbætur á laun er eina raunhæfa kaupmáttartryggingin, eina vöra launafólks gagnvart verðbólgunni. Verðbólgan er orsök, vísitölubindingin er af- leiðing Þeir sem trúa þeirri fals- kenningu að það sé vísitölubind- ing launanna sem sé helsti verð- bólguvaldurinn rugla gjarnan saman orsök og afleiöingu. Baráttan fyrir vísitölubindingu er þannig ákveðin varnaraögerö verkalýös- hreyfingarinnar. Hún leiðir af verö- lagsþróuninni, stööugum verð- hækkunum og verðbógustigi sam- félagsins. Hún er vamar- aðgerð til aö viðhalda kaupmáttar- stigi launanna gagnvart vöru og þjónustu. Vísitölubinding launa er þvi afleiðing en ekkl orsök og sá sem ekki skilur þetta er bæði heimskur og blindur. Afhjúpar veikleika verka- lýðshreyfingarinnar og stjórnarandstöðunnar A útifundi, sem stjórnarand- staöan hélt í lok júní í skyni samstöðu meö baráttu verkalýðs- hreyfingarinnar í haust, var aðeins einn ræðumaöur af sjö sem tók upp kröfuna um vísitölubindingu launa, enda tilheyrði sá ræðumaður ekki hinni hefðbundnu stjórnarandstöðu. Aðrir ræöumenn þögðu sem gröfin en notuöu hins vegar margir tímann á þessum „samstööufundi meö verka- lýðshreyfingunni”(!) til að skamma verkalýðsforystuna. Um það virtust mjög margir geta sameinast, — áktakanlegt dæmi um „taktískan” háhvitahátt þessa fólks, enda var Morgunblaöiö tiltölulega ánægt meö þennan fund daginn eftir. Aö verkalýðshreyfingin og stjómarandstaöan skuli á þennan hátt láta ríkistjórnina og afturhaldið keyra yfir sig og marka sér leikregl- urnar er átakanlegt dæmi um veik- leika þessara aðila. I staðinn fyrir að ganga inn á þetta hræðilega „tabú” varðandi vísitölubindingu launa ætti stjómarandstaðan, ef einhver dugur væri í henni, og verkalýðshreyfingin, báðir þessir aðilar sameiginlega, að skera upp herör fyrir vísitölubind- ingu launa sem einu raunhæfu kaup- máttartryggingunni. Þetta er við- fangsefni haustsins. Undan því má ekki víkjast. Guðmundur J. Hallvarðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.