Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Page 1
DAGBLAÐIÐ VISIR 178. TBL. — 74. og 10. ARG. — FOSTUDAGUR 3. AGUST 1984. I t í Í i i i i Albert Guðmundsson f jármálaráðherra: „Held líklega fund með fólkinu” „Eg hef ekki ákveðið hvað ég geri ef þakiö fýkur af erlendum skuldum þjóðarinnar og hinir ráð- herrarnir vilja samt sitja áfram. Eg held líklega fund með fólkinu og at- huga hvaða stuðning ég hef,” segir Albert Guðmundsson fjármálaráö- herra. Er það „hulduherinn” sem þú talar þá viö? „Það er fólkið í borg- inni sem hefur stutt mig til sætis fyrsta þingmanns Reykvíkinga. Eg hlýt að bera undir það stöðuna, ef ekki er hlustað á þennan fulltrúa þess.” Ert þú þá óhress með síðustu aö- gerðir ríkisstjómarinnar? „Ég vil ekki ræða þær sérstaklega enn sem komið er. Formönnum flokkanna var falið að leggja fram tillögur sem voru samþykktar. Það er rétt að þeir skýri þær sjálfir að svo komnu máli.” Nú stefna erlendar skuldir jafnvel yfir 62% móti þjóðartekjum ársins. Markið var 60% eða minna. „Já, ég séenga innlenda peninga til þess að setja í þessar ráöstafanir fyrir sjávarútveginn. Hins vegar veit ég ekki hvað mér og öðrum tekst að spara á móti. Eg reyni a.m.k. allt semhægter.” En hvers vegna endilega 60%, ekki 55% eða 65%? „Við settum okkur að gera betur en síöasta stjóm og ef það mistekst á að stokka spilin á ný. Sú stjóm var komin yfir 60% og við ætlum að bremsa þar,” segir Albert Guðmundsson. HERB Steindór færfrest Samgönguráðuneytiö hefur veitt bílstjórum á bifreiðastöð Steindórs frest til 11. október næstkomandi til aö stunda leiguakstur, eða í þrjá mánuði frá uppkvaðningu hæstaréttardóms í máli þeirra. Skorará Halldór Ásgrfmsson Halldór Hermannsson, skipstjóri á Isafirði, hefur sent Halldóri Ásgríms- syni sjávarútvegsráðherra áskorun um að koma til kappræðna á Isafirði innan hálfs mánaðar. Halldór Hermannsson sagði í sam- tali við DV að sjávarútvegsráðherra hefði aldrei komið á Vestfirði síðan hann tók viö embætti og það væri því kominn tími til að hann kæmi og ræddi við Vestfirðinga sem ættu allt sitt undir fiskveiðum. -pá ENGIN VETTLINGATÖK TEKIN A OL Það voru engin vettlingatök tekin ígrísk-rómversku glímunni á OL, eins og sést hér á myndinni fyrir ofan. Bandaríkjamadurinn Frank Famians hefur náð gódu taki á Servic Severins frá Dóminiska lýðveldinu sem fœr heldur betur aðþefa af dýnunni. sem keppt var á. Þessir kappar unnu ekki til verðlauna þrátt fyr- ir snjalla tilburdi. Eins og alltaf er DV fyrst med fréttirnar frá OL. Nýjustu fréttirnar eru á bls. 29—36. DV-símamynd: Ray Dickman. Undirbúningur fyrir Viðeyjarháttd stendur nú sem hœst. Unnu aðstand- endur hennar að þvi að reisa hljóm- sveitarpalla langt fram á morgun enda ekki seinna vœnna, hún hefst i kvöld. DV-mynd: S. Skotmaðurinn úr Daníelsslipp: Hlaut tveggja ára fangelsi Maðurinn, sem gerði skotárásina í Daníelsslipp í vetur, var í fyrradag dæmdur í tveggja ára fangelsi. Gæslu- varðhald kemur til frádráttar. Honum var einnig gert að greiða bætur vegna bíla og húss sem skemmdust í árás- inni. Einnig þarf hann að greiða sakar- kostnað, 30.000 krónur í saksóknarlaun og 30.000 í málsvarnarlaun. -pá. DVræðirvið skotmanninn Sautjánár ídóprugli I DV í dag er viðtal við Martein Einarsson, skotmanninn í Daníels- slipp, tekið nýlega í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. I viðtalinu lýsir Marteinn skotárás- inni frá sínum sjónarhóli og lífi sínu • fram að þeim tíma sem atburður þessi átti sér stað. Aðdragandinn, að sögn . Marteins, er sautján ára dóprugl sem hófst er hann drakk sinn fyrsta áfengissopa, 15 ára gamall. . Dagurinn, þegar skotárásin var gerð, segir Marteinn að hafi liðið í óminni fyrir sér. Hann man síðast eftir sér að reykja hass og drekka um 2—3 leytið um daginn, þá staddur ásamt einhverjum öðrum í grasinu við Sund- höllina. Marteinn hyggst skrifa bók um lífs- reynslu sína, bók sem hann vill að verði öðrum víti til vamaðar enda segist hann hafa séð marga, sem voru með honum í sukkinu, deyja vegna þess. -FRI — sjá nánar á bls. 6—7 t t t t t t w ■ Atta f ræg módel og sjónvarpstökumenn við myndatöku hér á landi: Vetrartískan úr frægustu tískuhúsum Evrópu mynduð í íslensku landslagi þar á meðal fatnaður f rá Dior sem metinn er á 10 milljónir Tuttugu manna lið, átta fræg módel og sjónvarpstökumenn, kom hingaö til lands í nótt til að mynda vetrartískuna 1985. Það er þýska sjónvarpið sem stendur fyrir tökunni en myndin verður sýnd þann 19. sept- ember. Er búist við að um tuttugu milljónir manna muni fylgjast með henni á meginlandi Evrópu. Ekkert er til sparað til að gera myndina sem glæsilegasta, enda er hér á ferðinni fatnaöur úr frægustu tískuhúsum Evrópu og allt módel- fatnaður. Sem dæmi má nefna að fatnaðurinn frá Dior, sem hingað kemur, er metinn á tíu milljónir króna. Tískusýningarfólkið er allt mjög þekkt og kemur frá Frakklandi, Ameríku, Italíu og Svíþjóð. Mynda- tökur hefjast strax í dag hér í Reykjavík og má búast við að um- ferð verði einhvers staðar stöðvuð á meðan myndataka fer fram. Einnig verður myndað á Skógum, í Þórs- mörk, við Gullfoss og Geysi og á fleiri stöðum. Þá eru einnig fyrir- hugaðar tökur í Borgamesi og þar í kring. Hópurinn verður hér í rúma viku á ferðalagi. Er þessi mynd ein sú mesta landkynning sem Island hefur fengið. Mikla athygli vakti mynd af sumartískunni sem tekin var á Sri Lanka. Flugleiðir og Ferðamálaráð hafa verið hópnum innan handar hér á landi. -ELA Tískusýningarfólkið er það kom að Hótei Loftíeiðum um klukkan háif tvö ínótt, þreytt eftir ferðalög allan daginn. DV-mynd Kristján Ari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.