Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Síða 4
4 DV. FÖSTÚDAGUR 3. ÁGUST1984. Guðrún Hafsteinsdóttir. „Ég ætla í Galtalækjarskóg meö vinkonum mínnm,” sagöi Guðrún Haf- steinsdóttir, 14 ára. „Ætli ég fari ekki með tvö þúsund krónur.” Árni Bjarnason. „Maður fer í Þjórsárdalinn,” sagöi Árni Bjarnason, 19 ára. „Þaö virðast allir ætla þangaö. Jú, ætli maöur þurfi ekki slatta af peningum meö sér. Ég veit ekki nákvæmlega hversu miklu ég eyði um helgina, en þaö veröur ábyggi- lega slatti.” Hvert liggur straumurinn um verslunarmannahelgina? ÞAU ÆTLA AÐ EYÐA ÞRJÚ TIL SEX ÞÚSUND KRÓNUM Hvert ætla krakkarnir um helgina og hvað þurfa þeir aö hafa mikla peninga meö sér? Þar sem við höfðum heyrt að algengt væri að krakkar ætluðu að eyða sex til sjö þúsund krón- um um þessa helgi fórum við á stúfana til að athuga málið. Rætt var við nokkra krakka í Austurstræti í gær sem ætla aö vera á útisamkomum um helgina. Af þeim sem DV talaði við var greinilegt að heyra að flestir ætla í Þjórsárdal og peningaupphæðin sem þau nefndu var þrjú til fjögur þúsund krónur. Allmargir láta foreldra sina sjá um matarinnkaup fyrir helgina þannig að þetta eru peningar sem þeir ætla að eyða. Ékki er hægt að líta fram hjá því að allmargir unglingar kaupa sér áfengi fyrir þessa helgi og liggur oft drjúgur peningur í því. Hvort við- mælendur okkar reiknuðu áfengi inn í kostnaðinn látum viö ósagt. Algengt verð inn á útisamkomur er i kringum eitt þúsund krónur. -ELA/DV-myndir Kristján Ari. Baldur Stefánsson. „Ég ætla til Vestmannaeyja meö vinum minum,” sagöi Baldur Stefáns- son, 13 ára. „Viö munum gista hjá frændfólki mínu þannig að við þurfum ekki aö fara meö mikla peninga. Pabbi er búinn að kaupa farseöilinn handa mér,” sagði hann. Eirikur Bjarnason og Tryggvi Þorfinnsson. „Ég ætla í Þjórsárdalinn. Það fara allir sem ég þekki þangað,” sagði Eiríkur Bjarnason, 17 ára. „Ég býst við aö eyða eitthvað um fjögur þúsund krónum.” „Ég verð að vinna en ætla að fara yfir eina nótt í Viðey,” sagði Tryggvi Þorfinnsson, 17 ára. „Ætli ég láti tvö þúsund kallinn ekki duga.” Garðar Gisiason. „Ég nenni ekki aö fara á útisam- komu,” sagði Garöar S. Gíslason. „En mér heyrist á félögunum að þeir fari til Vestmannaeyja, í Þjórsárdalinn og Atlavík.” Friðrik Ásmundsson. „I Þjórsárdalinn,” sagði Friörik Ásmundsson, 15 ára, er hann var spurður hvert hann ætlaði um helgina. „Af hverju? Það ætla allir sem ég þekki þangað. Maður nennir ekki í Viðey,” sagði hann. „Ég ætla að reyna að sleppa með þrjú þúsund kall.” Fichtel & Sachs verksmiðjurn- ar vestur-þýsku eru leiðandi framleiðendur á gas- og olíufyllt- um höggdeyfum í allar helstu tegundir evrópskra og japanskra bifreiða. Hjá Fichtel & Sachs sitja gæðin í fyrirrúmi, enda nota Mercedes Benz, BMW, SAAB, Volvo og nær 40 aðrir vandfýsnir bifreiða- framleiðendur Sachs höggdeyfa í bifreiðar sínar. Eigum fyrirliggjandi höggdeyfa í algengustu gerðir evrópskra og japanskra fólksbíla. ÚTVEGUM MEÐ STUTTUM FYRIRVARA ALLA FÁANLEGA HÖGGDEYFA í FÓLKS-, VÖRU- OG LANGFERÐABIFREIÐAR. ÞEKKING- REYNSLA - ÞJÓNUSTA EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI i ^ FALKINN FYRIR SACHS HÖGGDEYFA SACHS SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 91-84670 Ari Hansson og Jón Indriði Þórhallsson. „Ég ætla aö fara í Þjórsárdalinn,” sagði Ari Hansson, 15 ára. „Það ætla flestir á mínum aldri þangað. Ég er ekki viss hversu mikla peninga ég fer meö. Ætli það verði ekki f jögur þúsund sem fara í þetta.” „Ætli maður fari ekki í Þjórsárdal- inn,” sagði Jón Indriði Þórhallsson. „Það fara flestir þangað. Ég fer með svona þrjú til fjögur þúsund krónur meö mér.” Hvað með mat? „Mamma og pabbi kaupa hann,” sagði Jón Indriði. Maria Guðmundsdóttir og Hrafnhildur Bridde. „Ég fer kannski í Gaitalækjarskóg með mömmu og pabba,” sagði Hrafn- hildur Bridde, 14 ára. „Ég þekki nokkra krakka sem ætla í Þjórsárdal og ég held að þeir fari með heiimikla peninga,” sagði Hrafnhildur. Vinkona hennar, María Guðmundsdóttir, 15 ára, sagöist ætla að vera heima um helgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.