Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Síða 7
DV. FÖSTUDAGUR 3. ÁGUST1984. 7 Erlendur Sveinsson varðstjóri við bátínn sem Marteinn skaut úr. 500 krónur,” segir Marteinn og sam- kvæmt frásögn hans virðist auðvelt að fá þessi lyf sem yfirleitt er blandað saman í neyslu, oft meö áfengi. Aðdragandinn Daginn áður en skotárásin átti sér stað var Marteinn að slæpast niðri í bæ, ásamt tveimur öðrum, á fylliríi og ét- andi lyf. Veðrið var gott og þeir löbb- uðu niður á Granda. Þar fara þeir um borð í trilluna Bjargfugl, brjótast inn í hana og einn þeirra ætlar sér að setja hana í gang en tekst ekki. Sá mun að sögn Marteins hafa verið með alla bú- slóð sína meö sér í einni ferðatösku. Þeir staldra við dágóða stund um borð í bátnum og dreypa á kardimommu- dropum. Einn þeirra ætlar að leggjast fyrir þar og sofna en Marteinn spyr hann hvort hann sé oröinn vitlaus. Þeir flytja sig um borð í annan bát sem lá við hliöina á Bjargfugli og þar sér Marteinn haglabyssu þá sem hann not- aði svo kvöldið eftir. Einnig var þar sjónauki um borð sem þeir hirtu. Marteinn segir að annar félaga sinna hafi tekið haglabyssuna og sjónaukann frá borði auk skotanna og skotfæra- beltis sem þar var en áður höfðu þeir hirt annan sjónauka úr fyrri bátnum. Þeir fara svo um kvöldið með góssið í mannlaust hús við Vesturgötuna og leggjast þar til svefns. Slippurinn „Á föstudagsmorguninn fæ ég eftir- þanka, vil skila því sem við stálum en í staðinn set ég það inn í skáp í húsinu. Ég skil svo við þá tvo í húsinu eftir að hafa reykt hass og étiö eitthvert dóp en held svo suður í Hafnarfjörð að ná í peninga fyrir áfengi. Það síðasta sem ég man um daginn er að um 2—3 leytið er ég og einhverjir aðrir liggjandi í grasinu hjá Sundhöllinni aö drekka en síðan fæ ég óminni þar til ég ranka við mér í látunum viö Slippinn,” segir Marteinn. ,,Eg vissi ekki hvað var að gerast, allt var orðið vitlaust í skothríðinni og ég man að Erlendur (lögregluvarð- stjóri) kallaði á mig og sagði mér að sleppa byssunni. Eg kallaði á móti að ég þyrfti lækni en ég var með skurð á hendinni, sennilega eftir að hafa sprengt upp lás í öðrum bátnum, nótt- inaáöur. Víkingasveitin var þá komin á stað- inn og ég kom auga á þá viö bátshliðina í Slippnum. Eg sá að þeir voru vopnaðir og skaut nokkrum skotum upp í loftið, orðinn dauöskelkaður og vissi ekki hvað ég átti að gera,” segir hann. Samkvæmt skýrslu sem Marteinn sá síðar voru víkingasveitar- mennimir vopnaðir táragasbyssu og sprengjum, þremur Remington hagla- byssum og 357 Magnum skammbyssu. „Eftir aö skotið var á mig „vakna” ég en sleppi ekki byssunni strax. Víkingasveitin er þá komin um borð og er ég sé að þeir miða á mig hendi ég byssunni út fyrir bátinn og þeir stökkva á mig og yfirbuga mig,” segir Marteinn. Samkvæmt skýrslum sem hann sá síðar mun hann hafa skotið á bíla á leið sinni vestur Vesturgötuna en þar áður mun hann hafa komiö við á Steindóri og haft í hótunum við einn bílstjórann þar um að skjóta þá alla. Þá var hann að vísu ekki með byssuna í höndunum. Áfengisneysla hans þennan dag hefur verið í meira lagi því áfengismagnið í blóði hans mældist 2,66 eftir skotárás- ina. Ekki var tekið af honum lyfjapróf og furðar Marteinn sig á því. Hraunið aftur Hvað vistina á Litla-Hrauni í annað sinn varðar, en hún er nú hafin, segir Marteinn að hann fari þar inn aftur með sama hugarfari og hann hafði er hann fór þangað í fyrsta sinn. „Eg fer með því hugarfari að rífa mig aftur upp úr þessu rugli og koma fótunum aftur undir mig. Ég stefni að því að gera sömu hluti og ég gerði um leið og ég losnaði síðast. Ég vil geta byrjað á iifinu upp á nýtt, ” segir hann. „Það sem hefur stutt hvað mest við bakið á mér öll þessi ár er að fjöl- skylda mín hefur aldrei gefið upp von- ina og ekki ýtt mér frá sér í óreglu minni eins og gerst hefur um marga sem verið hafa i þessu sukki með mér. Þau hafa alltaf séð einhverja punkta í mér og ég tel það vera ein- hverja mestu gæfu mína að svo er. Annað sem spilar inn í þá ákvörðun mína að reyna að byrja upp á nýtt er að sennilega mundi ég ekki þola það lfkamlega að fara aftur í svipað dóp- rugl og var á mér undanfarið ár. Eg þekki marga sem dáið hafa vegna þessaog vilforðastþauörlög. -FRI ÓIYMPÍUIAN DSLIÐIÐ í HANDKNATTLEIK ÁFRAM ÍSIAND 18AÐILDARBANKAR OG SPARISJÓÐIR VfSA FÆRIR í FLESTAN SjÓ MEDVISA ÍVEGANESTI GRHXAND SíL- KERANS r A hverjum degi bjóð- um við úrval kjöt- og fiskrétta af sérlega glæsi- legum sérréttamatseðli svo og rétti dagsins. Renndu við, slappaðu af og dekraðu við bragð- laukana í Veitingastof- unni Þyrli -griðlandi saél- kerans. Veitingastofan Opið frá kl. 8:00 til 23:30 Simi 93-3824

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.