Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Page 10
10 DV. FÖSTUDAGUR 3. ÁGUST1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Þrátt fyrir að erfiölega gangi að koma á afvopnunarviðræðum á milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna og daglega berist fréttir um slæma sambúð þessara ríkja þá gerðust menn örlítið glaðari í síðustu viku og þóttust koma auga á merki slökunar. Þá tilkynnti Ronald Reagan Bandaríkjaforseti að stjórn sín hefði ákveðið að aflétta banni við fiskveið- um Sovétmanna í Barentshafi sem liggur á milli Alaska og Síberíu. í refsiskyni Sovétmönnum hefur veriö meinað- ur aögangur að fiskimiðum Banda- ríkjanna á þessu svæði frá árinu 1980. Það var Jimmy Carter, þáver- andi forseti Bandaríkjanna, sem lagöi bannið á í refsiskyni vegna inn- rásar Sovétmanna í Afganistan. 1 tilkynningu sem barst frá Hvíta húsinu í tilefni þessarar ákvöröunar Reagans sagði að hún væri liður í þeirri stefnu Bandaríkjastjómar aö bæta samskipti landanna og koma á eðlilegum viöskiptum þeirra á milli. Ef Kremlverjar koma til með að þiggja þetta boö Reagans þá ber fréttaskýrendum saman um að spor hafi verið stigið til bættra samskipta stórveldanna. Talið er líklegt að Sovétmenn muni taka boðinu. Hins vegar veröur að hafa það í huga aö það eru fyrst og fremst viðskipta- hagsmunir sem sitja í fyrirrúmi. Bæöi ríkin græða milljónir dollara á þessum fiskveiðum Sovétmanna á ári hverju og því augljóst að þó að veiðarnar skipti Sovétmenn miklu máli þá hafa Bandaríkin mikilla hagsmuna að gæta. Sameiginlegt fyrirtæki Það eru aðeins nokkrar botnfisk- tegundir sem Sovétmenn veiða í landhelgi Bandaríkjanna — aðallega ufsi og koli. Árið 1976 stofnuðu bandarískir útgerðarmenn og sov- éska sjávarútvegsráðuneytið sam- eiginlegt fyrirtæki og varð þaö fljót- lega einn stærsti kaupandi botnfisk- afla í heiminum. Eftir að Carter lagöi bann við veiöum Sovétmanna héldu sovésk verksmiðjuskip áfram aö kaupa fisk af bandarískum út- gerðarmönnum. I fyrra keyptu verk- smiðjuskipin 167.000 tonn af fiski og var verðmæti aflans um 25 milljónir dollara samkvæmt opinberum heimildum í Bandarík junum. Hins vegar stofnaði veiðibannið þessum viðskiptum í hættu. Sovét- ‘menn sögðu að þessi viðskipti væru þeim óhagstæð þar sem bandarísku fiskiskipin væru of lítil til aö stunda þessar veiðar. Þau ættu erfitt með að athafna sig á hafinu í vondum veðr- um og ennfremur væri aflinn sem þau kæmu með of lítill. Framtíð hins sameiginlega fyrirtækis Sovét- EITURLYFJA AFBROT VEKJA UGG HJÁINTERPOL Bandaríkjamenn hafa nú boðið Sovótmönnum að hefja fiskveiðar í Barentshafi á nýjan leik. Búist er við að Sovótmenn þiggi þetta boð. Umsjón: Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson Starfsmenn Interpol, alþjóðalög- reglunnar í París, hafa vaxandi áhyggjur af afbrotum sem fylgja eiturlyfjaneyslu. Þessum brotum hefur fjölgað gífurlega á allra síð- ustu árum án þess að mikið hafi ver- ið gert til að stémma stigu við þeirri þróun. Framlög til Interpol hafa litið verið aukin og á meðan fjölgar af- brotunum stöðugt. Framlögin lítil Ray Kendall, einn af æðstu yfir- mönnum Interpol, sagði nýlega í við- tali við fréttamenn að brot sem tengjast eiturlyfjaneyslu væru af ýmsum toga. Um væri aö ræða allt frá smáþjófnuðum til hroðalegra glæpa sem oftast eru framin af for- föllnum eiturlyfjasjúklingum sem í örvæntingu sinni grípa til ýmissa óþverraverka til að ná sér í peninga til að kaupa sér „nauðsynlegan” skammt af eitri. Kendall sagði að nýleg könnun á Spáni gæfi til kynna aö um helming- ur smábrota tengdust með einum eða öðrum hætti eiturlyfjum. Hann sagði að það væri því ekki von á góðu þegar flest aðildarríki Interpol — sem eru 135 — eyddu ekki nema fimm prósentum af útg jöldum til lög- reglumála í varnir og rannsóknir á eiturlyfjabrotum. Kendall sagði að Interpol væri þó aig jör undantekning frá þessu þvi að stærsti útgjaldaliður stofnunarinnar væri rannsóknir sem beindust gegn dreifingu eiturlyfja og smygli á slíku góssi. Það er ekki ein- kennilegt að Interpol skuli gefa þess- um málum mikinn gaum því að eiturlyfjasmygl og dreifing er al- þjóðlegt vandamál. Efnin eru fram- leidd í einu landi og smyglað þaðan til annarra landa og neytendumir eru víðs vegar um heiminn. Lítið um framkvæmdir Kendall segir aö ekki skorti vilja hjá lögregluyfirvöldum víðs vegar um heiminn til að berjast gegn eitur- lvfjasmyglurum en hins vegar hafi alltof lítiö verið framkvæmt í þeim efnum. Hann bætti því við að senni- lega væri stærsti vandinn sá að stjórnmálamennimir virtust hafa lít- inn áhuga á þessum vanda og taldi hann ástæðuna fyrir því vera þá að eiturlyfjanotkun væri ekki skýrt dæmi um vandamál sem snerti all- reglu í þjóðfélaginu væri stefnt í hættu meö notkun þeirra. Hryðjuverkamenn Fyrr á þessu ári lýsti franskur lög- regluforingi, Andre Bossard, yfir áhyggjum sinum vegna aukinnar notkunar eiturlyfja víðs vegar um heiminn. Hann sagði að það færðist mjög í vöxt að ýmsar pólitískar fylk- ingar og hryðjuverkasamtök notuðu eiturlyfjasmygl og sölu slíkra efna til að fjármagna vopnakaup. Þessir hópar eru þrælskipulagðir og erfitt er að ráða niðurlögum þeirra. Þrátt fyrir að mikillar svartsýni gæti hjá báðum þessum mönnum þá tóku þeir fram að ýmislegt jákvætt hefði átt sér stað í alþjóðlegum lög- reglumálum á undanförnum árum. Þar töldu þeir bera hæst inngöngu þriggja kommúnistaríkja í Interpol. Júgóslavía varð fyrsta Austur-Evr- ópuríkið til að sækja um aðild- að stofnuninni og skömmu síðar bættist Rúmenía við. Fyrir tveimur árum var svo Ungverjalandi veitt aðild að Interpol. Ray Kendall vonaðist eftir því að sú stund færi að renna upp að Sovétmenn fylgdu þessu fordæmi bandalagsríkja sinna. ríska fiskiskipaflotans og þróun í fiskiðnaði. Þannig slær Reagan tvær flugur í einu höggi með ákvörðun sinni og getur það jafnframt reynst honum dýrmætt í kosningabaráttunni sem nú er hafin. Annars vegar hefur ákvörðunin um aö aflétta veiðibann- inu mælst vel fyrir í herbúðum út- gerðarmanna og sjómanna og hins vegar hefur hann sýnt friðarviðleitni í verki og þannig mætir hann að nokkru kröfum þeirra sem óttast mjög versnandi sambúð stórveld- anna en fjöldi slíks fólks er gífurleg- ur meðal bandarískra kjósenda. Reagan beitti þessu bragði einnig í kosningabaráttunni gegn Jimmy Carter árið 1980. Þá hét hann því að aflétta komsölubanni til Sovétríkj- anna sem Carter hafði lagt á. Mælt- ist þetta loforð vel fyrir meðal bandarískra bænda sem urðu af gífurlegum tekjum vegna bannsins. Carter hafði einnig lagt kornsölu- bannið á vegna innrásar Sovét- manna í Afganistan. Afbrot sem tengjast neyslu eiturlyfja hafa færst mjög í vöxt á undan- förnum árum. Þessi þróun veldur starfsmönnum Interpol miklum áhyggjum. an almenning. Af þeim sökum telja stjómmálamenn, sem þurfa að kaupa sér hyDi kjósenda, heppilegra að eyða peningum skattgreiðenda til annarra hluta en eiturlyfjavarna. Hins vegar benti Kendall á að þetta væri mikill misskilningur hjá stjórnmálamönn- um því að eiturlyfjanotkun slævði siðgæöisvitun fólks og almennri Bæta fiskveiðar samskipti stórveldanna? manna og útgerðarmannanna bandarísku var því í bráðri hættu. Tvær flugur í einu höggi Viðræður hófust því um að Banda- ríkin afléttu banninu og var í fyrstu rætt um að leyfa Sovétmönnum aö veiða um 50.000 tonn á ári. Það er hins vegar aðeins brot af því magni sem þeir veiddu fyrir 1980 því þá er talið að meöalársafli þeirra innan landhelgi Bandaríkjanna hafi verið um 400.000 tonn. Auk þess höfðu sov- ésku verksmiðjuskipin keypt 50.000 tonn af fiski af bandarískum sjó- mönnum og er andvirði þess afla nú um átta milljónir dollara. Opinber embættismaður í Banda- ríkjunum lét hafa það eftir sér að með því að aflétta banninu sé Rea- gan að stuðla aö endurnýjun banda- Friðarviðleitni í verki Reagan er fyrsti forseti Bandaríkj- anna í hálfa öld sem ekki hefur hitt æðsta leiðtoga Sovétríkjanna. Hann hefur að undanfömu lýst yfir áhyggj- um sínum vegna slæmra samskipta risaveldanna og það sem meira er um vert þá hefur Reagan sýnt það í verki að hann hefur áhuga á bættri sambúö. Skýrasta dæmi þess er að hann skuli hafa fallist á að ræða við Sovétmenn um bann við smíði geim- vopna en þaö voru Sovétmenn sem fóra fram á slíkar viðræður. Það kom þeim hins vegar í opna skjöldu þegar Reagan samþykkti boðið án skilyrða. Sovétmenn drógu skömmu síðar boð sitt til baka. Og nú hefur Reagan aftur sýnt í verki að hann hefur áhuga á bættri sambúð með því að aflétta fiskveiðibanninu. Hins vegar verða áfram í gildi ýmsar reglur sem settar hafa verið af Bandaríkjamönnum í refsingar- skyni gagnvart Rússum. Til dæmis er sovéska flugfélaginu Aeroflot bannað að lenda í Bandaríkjunum og. útflutningur á tæknibúnaði til notk- unar í hinni miklu gasleiðslu Sovét- manna verður áfram háður ströng- um skilyrðum. Ekki hefur fengist upp gefið hvort þessum aögeröum veröur hætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.