Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Page 20
20
DV. FÖSTUDAGUR 3. ÁGUST1984.
Verkamenn í hreysum
Þeir sem búa hér í úthverfunum og nágranna-
bæjum Bombay eru verkamenn, ófaglæröir
iðnaöarmenn, atvinnuleysingjar og aðrir á neðri
enda borgarsamfélagsins. Flestir koma up'phaf-
lega úr þorpum víðs vegar á Indlandi og eru í
stórborginni og nágrenni til að vinna sig upp úr
eymdinni sem er jafnvel meiri þar en hér. Olíklegt
er aö margir þeirra kunni að lesa eða skrifa.
Hreysi þeirra — 50 til 100 í þyrpingu — eru í fá-
tækrahverfum Bombayborgar og nágrannabæja.
Ástandið í þessum hverfum er vægast sagt nötur-
legt. Sums staðar finnst ekki rennandi vatn. Oft er
„húsið” ekkert nema þrír eða fjórir strigaveggir.
Ég sá jafnvel fjölskylduhúsnæði sem var einungis
einn strigastrangi dreginn niður af lágum vegg.
Öll eru þessi hreysi í kássu saman. Einkalíf undir
þessum kringumstæðum er minna en ekkert.
Trúarbrögðin og sú þjóöfélagsskipan sem þau
segja fyrir um ráða lífi þessa fólks frá vöggu til
grafar. Menn eru fæddir inn í vissa stétt og í þeirri
stétt munu þeir vera þangað til þeir eru dauðir.
Stéttaskiptingin er mjög nákvæm og mjög arf-
bundin. Þeir sem eru fæddir inn í stétt skósmiða
munuverða skósmiðir alla ævi og þeir sem eru
fæddir vefarar munu vefa allt sitt líf.
Þama liggur reyndar einn lykillinn að því sem
gerðist í Bhiwandi. Hindúisminn hefur átt fremur
erfitt með að aölaga sig nútímanum einmitt vegna
þessa þrönga stéttakerfis. Það er fátt sem hvetur
menn til að fagna framförum og öðrum breyting-
um. Þess vegna er það fólk sem aðhyllist trúar-
brögð sem kenna jafnrétti og hafna þröngri arf-
bundinni stéttaskiptingu fyrst til aö nýta
sér vélatækni nútímans. Þannig er það í Punjab,
fylki sikkanna, sem er einnig ríkasta fylki Ind-
lands og það fylki þar sem landbúnaður er vél-
væddastur og þannig er það í Bombay og
Bhiwandi, þar sem múhameðstrúarmenn hafa
yfirtekið spunaiðnaðinn með litlum spunaverk-
smiðjum, flestum ólöglegum. I Bhiwandi eru um
150.000 slíkar verksmiðjur að því er talið er.
Shivaji Maharashtrakóngur
Líf þessa fólks sem vinnur í þessum verksmiðj-
um er vinna, hangs og svefn. Afþreyingar eru fáar
nema á helgum dögum. Og þaö er einmitt til slíks
dags sem rekja má múgæsingarnar sem uröu að
óeirðum í útbæjum Bombay.
Til aö rekja atburðarás síðustu daga er nauð-
synlegt að fara fyrst 300 ár aftur í tímann. Þá var •
í Maharashtra kóngur að nafni Shivaji. Þessi
Nokkur fórnaríömb óeirðanna.
Herinn tekur málin í sinar hendur, en aiitof
seint. DV-myndir ÞóG.
Jafnvel á indverskan mælikvarða voru óeirðim-
ar í Bombay og Bhiwandi í síðari hluta maí blóð-
ugar í góðu meðaliagi. Þegar upp var staöiö tald-
ist lögreglunni til aö rúmlega 200 manns hefðu far-
ist í bardögunum milli hindúa og múhameðstrúar-
manna. Líklegt er aö talan sé í raun nærri 500.
,,Þú getur alltaf bætt einu núlli við opinberu töl-
una,’ ’ sagði indverskur blaðamaður.
Askan ein eftir
Bhiwandi er smáiðnaðarbær um 50 kílómetra
austan við Bombay í Maharashtrafylki á vestur-
strönd Indlandsskagans. Til að komast þangað
tekur maður fyrst lest frá Bombay til Thana og
þaðan eru rútuferðir til Bhiwandi. Ferðalagiö tek-
ur um tvo tíma. Það sem fyrst vekur athygli
manns er fjöldi lögreglumanna og hermanna
sem halda sig í stórum hópum í miðbænum. Þeir
virðast þó hafa lítiö að gera og margir þeirra
liggja hálfsofandi inni í t jaldi.
Ibúar Bhiwandi eru betur staddir en margir
aðrir. Jafnvel í úthverfum er rennandi vatn í
krana og nógu mikið af því til að böm geta leikið
sér í því af fjöri sem þau ein geta sýnt eftir f jölda-
morð og eyðileggingu síðustu daga.
Eg leigði mér þríhjólaleigubíl og keyröi um
bæinn. Ys og þys og verslanir miðbæjarins
hverfa fljótt þegar komið er í úthverfin. Það gera
hermennirnir reyndar einnig. I staðinn eru þar
konur við þvotta, karlmenn viö vinnu eöa svefn og
börn að leik. Otrúlega margir eru athafnalausir;
eru bara þama og tala saman eða stara út í busk-
ann. Á einum stað sefur matvörukaupmaður
uppi á búðarborðinu á meðan ungir menn í næsta
húsi sitja að spilum. Allt virðist vera eins og það á
að vera. Þangað til maður kemur auga á auða
gráa bletti hér og þar sem em eins og opin sár inn-
an um hin hýbýlin. Þessir auðu blettir bera hörm-
ungum undanfarinna daga þögult vitni. Þvíþama
voru áður hús, eða að minnsta kosti timburkofar,
og fólkið sem í þeim bjó er nú annaðhvort dautt
eða orðið að flóttamönnum. Eftir er askan ein og
svo einstaka rúst steinsteyptra húsveggja og
ýmislegt járnamsl.
Ég heimsótti nýtt hverfi múhameðstrúarmanna
Jí útjaðri Bhiwandi. Hverfið heitir Sanjay Gandhi
Nagar, eftir hinum látna syni Indiru Gandhi for-
jsætisráðherra, og þeir sem það byggja eru flestir
upphaflega ekki frá Maharashtrafylki heldur frá
[ Suður- Norður- eða Austur-Indlandi. I um kíló-
metra fjarlægð frá hverfinu er þorp þar sem
hindúar búa. Klukkan um sex um morguninn kom
hópur hindúa æöandi úr þessu þorpi og réðst á
nágranna sína, múhameðstrúarmennina. Eftir
blóðbað og brennur lágu 25 manns í valnum, 300
hús höföu verið eyðilögð (aðþví er íbúar hverfisins
sögöu mér) og þúsundir höfðu verið gerðar
heimilislausar. Einn þeirra, Babu Altaf Sheikh,
missti þarna allt sitt í annað sinn. Fyrir 14 árum
var heimili hans eyðilagt þegar hann átti heima
annars staðar í Bhiwandi. Nú býr hann í
flóttamannabúðum og hefur ekki hugmynd um
hvað hann getur gert næst.
Gaf vasapeningana
Yfirvöld en þó aöallega íbúamir sjálfir hafa
komið upp flóttamannabúðum í hverfinu þar sem
3000 manns hafast viö. Þar fá þeir þak yfir höfuöið
og þrjár máltíðir á dag. Þegar ég var þarna voru
nokkrir auðmenn að dreifa fatnaði og peningum.
Hver fjölskyldufaðir hélt á pappírsmiöa og gegn
því að framvísa honum fékk hann pening frá ríku
mönnunum sem eru sennilega múhameðskir
verksmiðjueigendur.
Búðir til aðstoöar hinum heimilislausu hafa
sprottið upp úti um allt. Þegar kemur að því að
hjálpa bágstöddum skipta trúarbrögð litlu máli.
Þaö veröur að teijast Indverjum til sæmdar hve
fljótt þeir bregðast við þegar á bjátar. Iðnaðar-
samsteypur hafa gefið sem svarar milljónum
króna og einstaklingar hafa gefið tugþúsundir.
Ein lítii telpa gaf hjálparsjóði fylkisstjórans 54
rúpíur (um 150 krónur), sem voru vasapeningamir
Ihennar.