Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Blaðsíða 23
DV. FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST1984.
23
Blómasalur Loftleiða
Bezt er að hafa sem flestar kokkahúfur og fæstar krónur
Lækkandi
verðlag
Blómasalur Hótels Loftleiöa hefur
um nokkurt árabil verið aö færa sig
milli veröflokka. Fyrir nokkrum
árum var hann einn af dýru stöðun-
um á borö við Grillið á Sögu og Holt.
Nú er hann orðinn að miðjuverðstað
á borð við Lækjarbrekku og Torfuna.
MINNKANDI METNADUR
Um leið hefur metnaður Blóma-
salar minnkað, en kannski ekki
alveg eins mikið og verðlækkunin
gæti gefið tilefni til. Þjónusta er
nokkurn veginn eins góð og hún hefur
bezt verið. Sérstakur móttökustjóri
tekur á móti gestum við komuna og
leiðir þá til sætis. Þjónustuliö staðar-
ins er skólagengið og kann sitt fag.
Matreiðslan er það, sem hefur látið
á sjá. Hún gefur í skyn, að Hótel Loft-
leiöir hafi gefizt upp á að keppa við
hótelin Sögu og Holt og aðra gæða-
staöi um viðskipti innlendra mat-
gæðinga og einbeiti sér að hinum
fjötraða hópi hótelgesta. Enda fara
útlendingarnir á sumrin langt með
aðfylla staðinn dag eftir dag.
Blómasalurinn bætir sér að vetrar-
lagi upp hægari straum feröamanna
meö ýmsum skemmtilegum og
þörfum uppákomum. Þá eru haldin
kynningarkvöld á einstökum
löndum, sælkerakvöld og ýmsar ár-
vissar hátíðir. Við slíkar aðstæður
magnast í eldhúsinu metnaður um-
fram hverndaginn. En af almennum
markaði matgæðinga virðist staður-
inn veraaðhverfa.
Einn besti vínlistinn
Utlit og andrúmsloft Blómasalar
er svipað og veriö hefur, en þó vina-
legra en áður. Rauði liturinn er nú
notaöur í allt. Munnþurrkumar eru
rauðar, dúkamir eru rauðir, stólarn-
ir eru rauðir, gluggatjöldin eru rauð
og gólfið er rautt. Lýsingin hefur
verið tempruð, svo að staðurinn
virðist nánast duhnagnaður á
kvöldin. Og honum fer alls ekki illa
að vera víður og opinn.
Vínlisti Blómasalar er einn hinn
bezti á landinu. Þar vantar nánast
ekkert af þeim drykkjarhæfu vínum,
sem á annað borð fást í Ríkinu.
Meira aö segja er hægt að fá Tio
Pepe fyrir matinn og Quinta do
Noval með kaffinu. Þessi ágæti vín-
listi stingur mjög í stúf við hina
mörgu lélegu vínlista í veitingahús-
um iandsins, augijóslega valinn af
þekkingu og smekkvísi.
Af rauðvínum má benda á Cha-
teauneuf-du-Pape, Chateau de Saint
Laurent, Saint Emilion, Chianti Ant-
inori og svo hið ódýra Trakia. Af
hvítvínum má benda á Gewiirtz-
traminer og Chablis, hin ágætu mat-
arvín, svo og hið ljúfara Wormser
Liebfrauenstift Riesling.
Dósahnífur á lofti
Matargestir á kvöldin hafa •
frjálsan aðgang að salat- og brauð-
bar, sem ekki er sérlega umfangs-
mikill eða spennandi. I prófuninni
reyndist þó vera þar mikið af ljóm-
andi fallegu ísbergssalati. Einnig
blaðlaukur, olífur, tómatar, gúrka og
tvenns konar paprika. Minna var
spunnið í dósasveppina og maískom-
in. Þrenns konar sósur fylgdu borð-
inu, svo og þrjár tegundir brauðs.
Spergilsúpa reyndist þykk og mjög
heit, meðágætis spergli.
Grafsilungur var ágætur, borinn
fram með r jómasósu og dósaspergli.
Einkennilegt var að sjá í uppsetn-
ingu matarins á disk trjóna efst
smjörstykki í álpappír, svona eins og
menn fá úr plastbökkum í flugvélum.
Veröur næst borinn fram ís í
Mjólkursamsöludósum?
Eggjakaka hússins hafði að geyma
dósasveppi og skinkubita, en sjálf
eggjakakan var sómasamleg.
Kjúklingur kryddleginn með
steiktum ananas var raunar ekki
með ananas, heldur léttsoðnum
dósagulrótum og brokkáli, svo og
gúrku og tómati. Skorpan hafði
sætan ávaxtakeim, sem mrnnti á
appelsínusósuna, er fylgdi. Sjálfur
kjúklúigurinn varfremur þurr.
Glóðarsteiktur turnbauti var ekki
hrásteiktur, eins og um haföi verið
beðið, heldur miðlungi steiktur og í
bragðdaufasta lagi. Með honum
komu dósasveppir, dósaspergiil og
bökuð kartafla, svo og sæmileg
bearnaise sósa.
Lambageú-úm var hrúigvafúin og
fremur feitur og matarlítill, en
ágætur á bragðið. Með honum var
sama meðlætið og meö turnbautan-
um.
Nýi, soðni laxinn með gúrkusalati,
sem var trompið á seðli dagsins,
reyndist óhæfilega mikið soöinn, þótt
beðið væri um, að vægt yrði farið í
sakirnar. Fyrir bragðið var hann
þurr. Þar á ofan var hann ekki nógu
heitur. Með honum fýlgdu soðnar
kartöflur, sýrðar gúrkur og dósagul-
rætur.
Heúnalagaður rjómais með súkkul-
aðisósu var góður á bragðið.
Islenzkt hlaðborð
1 hádeginu er í Blómasalnum hlað-
borð á 475 krónur, einkum sniðið
fyrir útlendinga. Þar er fremst
sýnishom af gömlum, íslenzkum
mat, svo sem hval, hákarli og hrúts-
pungum. Síðan eru nokkrar tegur dir
síldar og drjúgt fiskri ‘,ta.
Ennfremur lambakjöt og sitthvað
fleira. Þetta freistaði mrn ekki. Á
laugardögum er 695 króna víkinga-
veizla fyrir útlendinga með tilheyr-
andi húllumhæi og útgáfu viður-
kenningarskjala.
Miðjuverð á forréttum fastaseðils-
ins er 230 krónur, súpum 105 krónur,
fiskréttum 295 krónur, kjötréttum 440
krónur og eftirréttum 135 krónur.
Með kaffi á 40 krónur og hálfri vín-
flösku á 104 krónur ætti þriggja rétta
máltíö að kosta að meðaltali 714
krónur, hvort sem pantaö er af fasta-
seðli eða stuttum seðli dagsins, en ör-
litlu meira, ef valið er hlaðborðið í
hádegmu.
Jónas Kristjánsson.
GOOD'fÝEAR
VIFTUREIMAR
ÓDÝRAR OC STERKAR
Mikið úrval
í bílaf báta og allskonar vélar
Hvers vegna endast viftureimarnar
frá Goodyear svona iengi?
©
Efsti burðarvefur reimarlnnar hefur viðnám gegn olíu og þræðirnir liggja
þversum, sem dregur mjög úr llðunarþreytu og möguleikum á sprungum.
©Afar sterkur polyesterþráður með miklð teygjuviðnám tryggir vörn gegn
skyndiálagi og gerir endurstrekklngu óþarfa.
©Trefjablönduð einangrun eykur stöðugleika relmarinnar, veitir styrk gegn
hliðarsveigjum og ver hana fyrlr slltl af hliðum relmskífanna.
@Allar vifturelmar frá Goodyear eru tenntar. Þess vegna hitna þær síður, en það
kemur í veg fyrir liðunarsprungur þótt þær séu notaðar á mjög litlar reimskífur
og endingin eykst stórlega.
Auk þess er ekkert vandamál aö
finna réttu stæröina.
Þú kemur meö þá Vlö mælum hana Stæröln ákvöröuö Eöa afgreldd eftlr Ný relm afhent
ónýtu númeri
HEILDSALA
SMÁSALA
UHEKIAHF
■I Laugavegi 170 -172 Sími 21240
FÖSTUDAGSKVÖLD
í JI5 HÚSIIMU11JI5 HÚSINU
OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KlIOí KVÖLD
NÝTT! NÝTT! NÝTT Á 2. HÆÐ
— Ennaukum við þjónustuna,
3 nýjar versianir á 2. hæð.
Stjörnusnyrting.
SNYRTIVÚRUVERSLUN.
SNYRTISTOFA.
Leikfanga-
húsið
Sími 22500
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
Jll
A A A A A A
.□cDa zs eauíjd"
□ Liijp-y;i^a
inaettaaiHUiii siiii.
Jón Loftsson hf _________________
Hringbraut 121 Sími 10600