Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Page 24
24
Popp
Popp
DV. FÖSTUDAGUR 3. ÁGUST1984.
Popp
Popp
Popp
Godley og Creme.
Godley og Creme gömlu lOcc
meðlimirnir hafa fyrir nokkru
söðlað um og snúið sér að fram-
leiðslu á videomyndum. Og á
nokkrum árum hefur þeim tekist
að komast í fremstu röð.
„Girls On Film” — Duran Duran.
UMUR RÆTIST
E itt af því sem umfram allt skilur á
milli popptónlistar dagsins í dag og
gærdagsins er notkun videosins. í dag
þykir engin hljómsveit meö hljóm-
sveitum nema hún eigi svo og svo
margar videomyndir aö baki. Og
margar hljómsveitir eiga vinsældir
sínar að mestu videoinu að þakka. En
til þess að svo megi verða þarf
kunnáttumenn. Kunnáttumenn til að
semja handrit að videomyndinni,
kunnáttumenn til að festa hana á filmu
og siðast en ekki síst kunnáttumenn til
að koma henni á framfæri. Afrakstur-
inn af þessu öliu saman er svo það
sem við fáum að sjá annað hvort föstu-
dagskvöld í Skonrokki hér á lslandi.
r veir af þessum kunnáttumönnum,
sem um er talað hér að framan, eru
þeir Lol Creme og Kevin Godley.
Margir kannast eflaust viö nöfn þeirra
félaga, en þeir gerðu garðinn frægan
hér fyrr á árum sem meðlimir hljóm-
sveitarinnar lOcc á hennar uppgangs-
og mestu frægðarárum. Meðal þekktra
laga semþeirGodleyogCremesömdu
á lOcc árunum eru lögin „Une Nuit A
Paris” á plötunni „The original sound-
track”, og titillagið „How Dare You”
af samnefndri plötu.
Eftir að þeir Godley og Creme yfir-
gáfu lOcc, sneru þeir sér að alls konar
tilraunum í tónlist, smíðuöu meðal
annars nýtt hljóðfæri sem þeir kölluðu
Nickolodeon. Ekki hefur þeim samt
tekist aö ná neinum umtalsveröum
vinsældum á síðari árum, að minnsta
kosti ekki sem tónlistarmenn.
E n nú á ailra síðustu árum hefur
þeim Godley og Creme tekist að skapa
sér nafn einmitt á því sviði sem hér er
til umfjöllunar, gerð videotónlistar-
þátta. Og er nú svo komið að þeir verða
að hafna fimm til sex tilboöum um
gerð videomynda í hverri viku. Þeir
eru komnir i þá aðstööu að geta valiö
úr nöfnum þeirra stærstu í popp-
heiminum. Þeirra síðasta afrek á
þessu sviði er videomyndin við lagið
„Two Tribes”, með hinni nývinsælu
hljómsveit Frankie Goes To Holly-
wood. Lagið f jallar um deilur stórveld-
anna Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna. I myndinni berjast leikarar í
gervi Reagans Bandaríkjaforseta og
Chernenkos, aöalritara sovéska
kommúnistaflokksins, fyrir framan
heimspressuna. Myndbandið var fljót-
lega bannaö í Bretlandi.
„Það er vissulega mikið um ofbeldi
og blóð í myndinni en þannig vildum
við hafa hana,” segir Kevin. „Við átt-
um allt eins von á að hún yrði bönnuð,
en við erum hættir að gera videomynd-
ir bara til aö gleöja „Top Of The
Pops”. Það er til nóg af öðrum leiöum
til að koma videomynd á framfæri. ”
F leiri videomyndir þeirra Godleys •
og Creme hafa verið umdeildar. Meðal
þeirra má nefna myndina við lagið
„Girls On Film”, með Duran Duran.
„Við höfðum engar áhyggjur af
því,” segir Lol. „Það var skemmtilegt
að vinna aö þessari mynd, fullt af sæt-
um og sexý stelpum. Eg get ekki séð
hvað er rangt við það.”
Önnur mynd, sem vakiö hefur mikla
athygli, er myndin við lagið „Wrapped
Around Your Finger”, með hljómsveit-
inni Police. 1 þeirri mynd var ekkert til
sparað og meöal þess, sem gefur að
líta í henni, eru þúsund kústsköft í jafn-
mörgum jólatrjáafótum.
Y firleitt tekur það um tíu daga fyrir
þá Godley og Creme að gera eina
videomynd. Þeir byrja á aö funda með
hljómsveitinni og leikurunum til að
skiptast á hugmyndum um hvemig
best sé að taka á verkinu.
„Við reynum að kynna okkur eins
vel og við getum hvaö hljómsveitin er
að hugsa og fást við,” segir Kevin.
„Við reynum að kynnast meðlimum
hljómsveitarinnar persónulega og leik-
um plötur þeirra heima. Þannig koma
fyrstu hugmyndimar fram og þróast
síðan smátt og smátt.”
Venjulega rissa þeir Godley og
Creme upp atburðarásina í grófum
dráttum, síðan er leikmyndin smiðuö
og því næst er hafist handa við tökur.
„Við reynum alltaf að hafa allt það
vel skipulagt fyrirfram að allar tökur
eiga að renna liðlega i gegn á einum
degi,”segirLol.
Þ eir Godley og Creme segja að
erfitt sé fyrir þá að setja upp einhvem
ákveðinn taxta á vinnu sína. Það fari
allt eftir óskum hljómsveitarinnar í
það og þaðskiptiö.
„Þegar við byrjuðum var hægt að
gera videomynd fyrir um fjögur þús-
und pund (um 160 þúsund krónur), en
núoröið kostar það mun meira,” segir
Kevin.
Þaö hefur verið óskadraumur þeirra
félaga eins lengi og þeir muna eftir að
fá aö gera alvörukvikmyndir. Þegar í
grunnskóla gerði Kevin kvikmynd á
átta millímetra vél, um Drakúla. Hann
auglýsti eftir krypplingi og Lol mætti.
Síðan hafa þeir fylgst aö i gegnum
þykkt og þunnt.
U pphafið á videomyndaferlinum
má rekja til myndar sem þeir gerðu til
að fylgja eftir lagi sínu „An English-
man In New York” sem þeir settu á
markaðinn skömmu eftir að þeir hættu
ílOcc.
„Við fórum einfaldlega til hljóm-
plötuútgáfunnar okkar og spurðum
hvort viö gætum fengiö peninga til að
gera mynd og þeir samþykktu,” segir
Kevin.
Eftir þessa mynd byrjuðu tilboðin að
streyma inn til þeirra félaga. Ein
fyrsta videomyndin þeirra, sem vakti
athygli, var mynd við lag hljómsveit-
arinnar Visage, ,JFade ToGrey”.
„Það er frumskilyrði aö við höfum
einhverja trú á hljómsveitunum sem
við erum að vinna með, annars verður
niðurstaðan ekki góð,” segir Kevin.
„Eg get viðurkennt það fúslega aö hér
áður fyrr kom það fyrir að við gerðum
videomyndir bara peninganna vegna,
en það voru ekki góðar myndir. Við
höfum engan áhuga á aö gera slikt
aftur.”
IM æsta skref hjá þeim félögum er
undirbúningur að þeirra fyrstu alvöru-
kvikmynd, sem hefur fengið nafnið
„Hooverville”.
„Myndin gerist í upphafi kreppuár-
anna um það bil er hrunið mikla varð í
Wall Street 1929,” segir Lol. „Fólk var
svo fátækt að það bjó í kofaskriflum og
jafnvel á öskuhaugunum. Okkur var
sent alveg frábært handrit, einmitt það
sem við höfum verið að leita eftir um
áraraðir.”
„Það sem er mest heillandi við kvik-
myndageröina er að þar getur þú látið
dagdrauma þína rætast,” segir Kevin.
„Eg get ekki ímyndað mér betra að
ver ja tíma mínum í. ”
-SþS-