Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Síða 41
DV. FÖSTUDAGUR 3. AGÚST1984.
57
Reykjadalsá íBorgarfirði:
White Winghefur
gefið stærsta laxinn
—14 punda lax veiddur í Klettsf Ijóti
Reykholtsdalur er nyrstur
þeirra dala er ganga út frá Borgar-
fjarðarhéraði til suðausturs. Dalur-
inn er allbreiður, grunnur og grös-
ugur en sviplítill, þó útsýni sé víða
gott þar um slóðir. Dalbotninn liggur
lágt og að ofan rennur dalurinn
saman við Hálsasveit. Um hann
fellur Reykjadalsá, veiðiá sem
Stangaveiðifélag Keflavíkur hefur á
leigu. Reykjadalsáin er víöa æði lygn
og rennur skemmtilega í fögrum
bugöum eftir dalnum. Stundum
getur maður verið í vafa hvort áin
renni nokkuð svo lygn er hún. Þegar
viö renndum fyrir fisk nýlega var
eitthvað af fiski í henni. Klettsfljótið,
þar töldum við 12 taxa, Hamarsgeiri
var með nokkra laxa og ólmir eltu
þeir fluguna, en tóku ekki. En laxinn
var ekki vaðandi um alla á, enda
þykir ágúst besti mánuöurinn í ánni
og veiðist þá mest. Töluverða
forystu hefur maökurinn, því aðeins
hafa veiðst tveir laxar á flugu, en
Reykjadalsáin er miklu frekar flugu-
á en maðká. Það sem af er sumri
hefur áin gefið 16 laxa og er hann 14
punda sá stærsti, veiddur á White
Wing, Vilberg Jakobsson veiddi hann
í Klettsfljóti. Töluvert hefur veiðst af
sjóbirtingi og er sá stærsti 4 pund.
Það er merkilegt að í Reykjadalsá
skuli ekki veiðast bleikja því áin er
tilvalin til þess. Lygnir og góðir
hyljir, þar sem bleikja getur unað
sér og bætt það upp ef laxinn vill ekki
það sem maður býður honum.
Síðustu 10 árin hefur veiöin í ánni
verið æði misjöfn og best gaf hún
1975,275 laxa en minnst 1980,56 laxa.
Já, það er tröppugangur í veiðinni
sem öðru. Og þó menn fái laxinn ekki
til að taka Rauða Fransis eða ein-
VEIÐIVON
GunnarBender
- Hvort þessi hundur hefur étt aO sjá um veiðivörsluna viö Reykjadaisé
er lekki vitað með vissu, a.m.k. fylgdist hann vei með öllu sem fór
fram við Klettsfljót og þar íkring. DV-mynd G. Bender.
hverja aðra flugu verða þeir bara að
sætta sig við það. Kannski laxinn gefi
sig næst? Viö skulum bara vona það.
Eftir tveggja daga veiði í ánni lá 4,5
punda lax eftir, veiddur í Bæjarflóti
á maðk. Eg spyr nú bara eins og
'presturinn. „Ætluðu mennirnir ekki
að veiða bara á flugu?”
G.Bender.
Einn af fáum fossum i Reykjadaisá, Klettsfoss, og veiðimaOur reynir að finna fisk i honum, en hann er
ekki til.
DV-mynd G. Bender.
Það var víða reynt að finna lax en þeir voru ekki á mörgum stöðum i ánni. En það er um aO gera að leita.
DV-mynd G. Bender.
VALIÐ EFNI FYRIR ALLA FJOLSKYLDUNA
277 SÍÐUR Á MÁNUÐI
ÁSKRIFTARSÍMINN ER 91-27022
»IKAN