Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Blaðsíða 42
58
DV. FÖSTUDAGUR 3. ÁGUST1984.
Andlát ■ BELLA
Skarphéðinn Magnússon stýrimaöur,
Hraunbæ 92, veröur jarösunginn í dag
frá Fossvogskapellu. Hann var fæddur
í Hnífsdal 16. febrúar 1921 en ólst upp
á tsafirði. Foreldrar hans voru Karitas
Skarphéöinsdóttir og Magnús Guö-
mundsson. Hann kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Aöalheiöi Siguröar-
dóttur, 1953. Þau eignuðust saman tvo
syni og hún átti tvö börn fyrir.
Arngrímur Magnússon, Fellsenda
Dalasýslu, lést 22. júlí. Utförin hefur
fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna.
Ingibjörg Bjarnadóttir, Hlíöarbyggð
37, Garöabæ, lést þann 1. ágúst í St.
Jósefsspítala Hafnarfiröi.
Glísabet Stefánsdóttir Kemp andaðist í
Vífilsstaöaspítala 1. ágúst.
Flosi Halldórsson, sem andaöist í
Borgarspítalanum þann 28. júii,
veröur jarðsettur frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 4. ágúst kl. 14.
Ragnhildur Ólafsdóttir veröur jarösett
frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 4.
ágúst kl. 14.
Einar Sveinn Pálsson, Heiöargerði 24,
Akranesi veröur jarösunginn frá Akra-
neskirkju í dag, föstudaginn 3. ágúst,
kl. 14.00.
Sæmundur Þórðarson trésmíðameist-
ari, Barónsstíg 16, sem lést 18. júlí,
veröur jarðsunginn frá Hallgríms-
kirkju í dag, föstudaginn 3. ágúst, kl.
15.00.
Hjálmar Magnússon, Nýjalandi í
Garöi varö bráökvaddur 31. júlí.
Sólveig Sigmundsdóttir lést 1. ágúst.
Sigurður L. Eiriksson, Flókagötu 1
Hafnarfirði, lést 28. júlí. Jarðarförin
hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins
látna.
Þorvarður Arinbjarnarson tollvöröur,
Hlíöarvegi 32 Njarðvík.lést í Borgar-
spítalanum 1. ágúst.
Sigríður Sesselja Hafliöadóttir, Þóru-
stíg 20 Njarövík, andaðist 1. ágúst í
Landakotsspítala.
Jónatan Valgarðsson, Framnesvegi
17, lést af slysförum 31. júlí.
Geturðu fundið tikallinn, sem ég
lagði í bankann í gær? Ég skrifaði
mjög þýðingarmikið símanúmer á
hann.
70 ára er í dag Haraldur ögmundsson,
fyrrum starfsmaöur við Fellaskóla í
Breiðholtshverfi, Laugavegi 128. Hann
ætlar aö taka á móti gestum á heimili
dóttur sinnar og tengdasonar á Klepps-
vegi 76 eftir kl. 19 í kvöld.
Tilkynningar
Sumarferð kirkjufélags
Digranesprestakalls
Ferðin verður farin sunnudaginn 12. ágúst kl.
9 árdegis frá Safnaðarheimilinu við Bjarn-
hólastíg. Ekið verður um Þingvelh upp á
Kaldadalsveg, þaðan svokallaðan „Línuveg"
Leggjum ekki af staö í ferðalag í lélegum bíl eöa illa útbúnum.
Nýsmuröur b(ll meöhreinniolíuog yfirfarinn t.d. á smurstöö er lík-
legur til þess aö komast heill á leiöarenda.
Dýrin kunna ekki umferðarreglur. Þess vegna þarf að sýnaaðgæslu
í nánd þeirra. Hins vegar eiga allir hestamenn að kunna umferðar-
reglur og ríöa hægra megin og sýna bilstjórum sams konar viðmót
og þeir ætlast til af þeim.
UUMFEROAR
RÁÐ
Framúrakstur á vegum úti krefst kunnáttu og skynsemi. Sá sem ætlar
framúr þarf aö gefa ótvírætt merki um vilja sinn, og hinn sem á undan
ekur þarf að hægja ferð. Stefnuljósin er sjálfsagt aö nota. Minnumst
þess aö mikil inngjöf leiöir til þess aö steinar takast á loft, og ef hratt
er fariö ökum viö á þá í loftinu.
u
UMFERÐAR
RÁÐ
í gærkvöldi__________ í gærkvöldi
Dagskráin í lagi
tJtvarpsdagskráin í gær. Hreint
ekki aðfinnsluverö en barasta ágæt.
Tveir framúrskarandi upplesarar,
þeir Gísli Rúnar Jónsson og Hjalti
Rögnvaldsson, skemmtu útvarps-
hlustendum. Hjalti meö lestri á sög-
unni Niður rennistigann, sem ég hef
heyrt að sé hin skemmtilegasta
framhaldssaga, en því miður hef ég
ekki átt þess kost aö hlusta á hana
fyrr en í gærkvöldi og þaö þurfti auð-
vitað aö vera síðasti lesturinn. Hjalti
brást ekki frekar en venjulega. Gísli
Rúnar fór einnig á kostum meö nokk-
uö spaugilegum lestri á smásögu
eftir Olaf Ormsson, og tókst honum
aö gera persónur sögunnar eftir-
minnilegar, t.d. Dúdda í Dúddabúð
sem Gísli túlkaði á meinfyndinn hátt.
Það er gott til þess aö vita aö
flygill útvarpsins er kominn í gott
lag, en síðast þegar ég vissi til var
flygillinn vanstilitur mjög og ein-
hverjar vöflur á aö koma honum í
viöunandi ástand. Mér finnst alltaf
dálítiö spennandi þegar einleikur í
útvarpssal stendur fyrir dyrum. Eg
veit ekki alveg af hverju, kannski af
því aö ungir tónlistarmenn koma oft
fram í fyrsta skipti og maður veit
ekki alveg á hverju maður á von.
Veit þaö ekki. En ég hlustaði á þær
Laufeyju Siguröardóttur og Selmu
Guömundsdóttur meöan á yfirborðs-
legum tiltektum stóð og fannst þeim
bara takast vel til miöað viö þá tak-
mörkuðu innsýn sem ég hef á gæöum
tónlistarflutnings.
Því miður hlustaöi ég ekki nema
upp og ofan á fimmtudagsumræðuna
um skattamálin af sérstökum
ástæðum. En þaö sem ég heyrði
fannst mér þaö áhugavert aö ég tók
þáttinn upp á band. Eg vona aö út-
varpinu sé sama um þaö. Þættir af
þessu tagi eru algjörlega ómissandi í
útvarpsdagskránni. Fagleg umræöa
undir ágætri stjórn er nauðsynleg ef
viö eigum að fá einhvern botn í þaö
sem er að gerast í kringum okkur.
Nú þegar ég skrifa þetta er frétta-
ritarinn á ólympíuleikunum í LA í
ham aö lýsa handknattleik Islands
og Rúmeníu. Mér heyrist æsingurinn
í þessum leik ekki minni en í leiknum
viö Júgóslava svo þaö er best aö
rumpa þessu af. Annars tjáöi þessi
sami fréttaritari sig um áhuga-
mennsku eöa öllu heldur atvinnu-
mennsku þeirra íþróttamanna sem
taka þátt í ólympíuleikunum í gær-
kvöldi. Viö viröumst taka þetta skil-
yröi um áhugamennsku fullhátíölega
og kannski hefur Henson fyrirtækið
hérna heima misst af gullnu tækifæri
meö því aö útbúa ekki stórt auglýs-
ingaskilti í Los Angeles sem á stæöi:
Einar Vilhjálmsson keppir í Henson.
Þá gætum viö e.t.v. farið aö flytja út
íþróttaföt í staðinn fyrir fisk.
Þórunn J. Hafstein
um Hlöðuvelli, Lambahraun og komið í
Haukadal. Þaðan liggur svo leiðin til Skál-
holts þar sem drukkið veröur miðdagskaffi og
síöan gengið til kirkju. Á heimleið verður ekið
um Hellisheiði. Þátttakendur hafi með sér
nesti til hádegisverðar en sameiginleg kaffi-
drykkja er innifalin í verði. Allt safnaðarfólk
velkomið. Þátttökutilkynningar og nánari
upplýsingar 1 síma 40999, Hrefna og 40436,
Anna. Þátttaka tilkynnist eigi síðar en þriðju-
dagskvöld 7. ágúst.
Ættarmót í
Vestur-Landeyjum.
Laugardaginn 11. ágúst verður haldið ættar-
mót Orms Sverrissonar og Guöninar Olafs-
dóttur við Njálsbúð í Vestur-Landeyjum.
Hægt er að koma og tjalda strax á föstudag.
Síðan verður helgistund kl. 2 á laugardag sem
sr. Sváfnir Sveinbjarnarson sér um. Venjan
er að fólk mæti með sitt nesti og er sameigin-
legt kaffisamsæti, þar sem allir leggja með
sér á borð, síðdegis. Síðan verður gleðskapur,
ef aö vanda lætur, frameftir nóttu. Þeir
hörðustu fara svo ekki heim fyrr en á sunnu-
dag. Til umræöu hefur veriö að víkka
sjóndeildarhringinn innan ættarinnar og færa
mörkin aftur fyrir Vilborgu Stígsdóttur og
Sverri Bjarnason frá Grímsstööum. Af því
tilefni er m.a. væntanlegur hópur afkomenda
Ingibjargar Sverrisdóttur úr Hornafirði.
Mætum nú öll hress og kát og aukum kynnin I
Nefndin.
Kvöldvaka í
Þingvallakirkju
Kvöldvaka verður í Þingvallakirkju laugar-
dag kl. 20.30. Séra Ingólfur Guðmundsson flyt-
ur Þingvallaspjall sem hann nefnir „Kristni
tvö þúsund”. Ungt fólk með hlutverk annast
blandaða dagskrá. Samkomunni lýkur með
náttsöng.
Heyrn og tal rannsakað
í Búðardal og á
Snæfellsnesi
Friðrik Páll Jónsson, háls-, nef- og
eyrnalæknir, ásamt öðrum sérfræöingum
Heymar- og talmeinastöðvar Islands verða á
ferð í Búðardal og á Snæfellsnesi dagana 13.—
17.ágústnk.
Rannsökuð verður heym og tal og útveguð
heymartæki. Farið verðurá eftirtalda staði:
Búðardal 13. ágúst,
Stykkishólm 14. ágúst,
Grundarfjörð lö.ágúst,
Olafsvík 16. ágúst,
Hellissand 17.ágúst.
Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þessa
þjónustu eru beðnir að hafa samband við
næstu heilsugæslustöð sem fyrst.
Svanhildur með
ungana sína fimm
Hún gengur undir nafninu Svanhildur, verpir á hverju ári vid flugbrautina á ísa-
firði og það gengur vel að koma ungunum á legg við hlið vélfuglanna.
DV-mynd Valur Jónatansson, ísafirði.