Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1984, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1984, Page 2
2 DV. LAUGARDAGUR1. SEPTEMBER1984. Bændur argir út í fjöl- miðla FRAMKVÆMDASTOFN- UN ER EKKIHEILÖG — segir Steingrímur Hermannsson ,,Eg ætla ekki aö tara aö segja neitt svona,” sagöi Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra í gær er DV spurði hvort hann væri því fylgj- andi að Framkvæmdastofnun yröi lögð niður í núverandi mynd. „Eins og ég hef oft sagt er ekki meiningin að ræða þessa hluti í fjöl- miðlum. Þið fáið að frétta þetta eftir helgina,” sagöi forsætisráðherra. Er DV gekk nánar á hann um svör kvaðst hann hafa verið ósammála báðum þeim álitum sem komu frá nefnd stjómarflokkanna í fyrra um Framkvæmdastofnun. Hann sagði aö í hugmyndum um uppstokkun í sjóðakerfinu og nýsköpun atvinnu- lífsins fælust breytingar á Fram- kvæmdastofnun. „Framkvæmdastofnun er ekki heilög stofnun,” sagði Steingrímur án þess að vilja skýra frá hverju hann vildi breyta. -KMU. Tilboðunum eitt hundrað var staflað á nokkur borð í Súlnasalnum. Fulltrúar bjóðenda fylgjast með opnun pakkanna. Á sjónvarpsskermum iloftinu máttisjá nýjustu tölur. DV-mynd: Kristján Ari. Véla- og rafbúnaður fyrir Blönduvirkjun: Júgóslavneskt tilboð 215 millj- ónum undir kostnaðaráætlun Engin tíafrá Pan Am — f jórir mánuðir íhávadabann á Flugleiðir Viöræðum Flugleiða og banda- ríska flugfélagsins Pan Am um leigu á DC-10 breiðþotu er lokið. Samningar tókust ekki. „Við höldum áfram að kanna möguleika sem verður aö gripa til ef undanþága fæst ekki,” sagði Sæmundur Guðvinsson, blaðafull- trúiFlugleiða. Bann bandariskra stjórnvalda við hávaðasömum þotum gengur í gildi um næstu áramót. Flugleiðir eru í hópi 86 flugfélaga sem sótt hafa um undanþágu þangaö til hl jóðdeyfar koma á markað. Umsóknir 20 flugfélaga hafa þeg- ar veriö teknar fyrir. Öllum var hafnað. „Bandarisk stjórnvöld hafa hins vegar látið í það skína að einhverj- um flugfélögum verði hugsanlega veitt tmdanþága,” sagði Sæmundur. -KMU. Júgóslavneskt fyrirtæki, Ingra Group, átti lægst tilboð samanlagt í sex verkhluta véla- og rafbúnaðar fyrir Blönduvirkjim. Tilboð Ingra Group hljóðar upp á 465 milljónir króna, ef það fær alla verkþættina. Þetta júgóslavneska tilboö er 215 miiljónum króna undir kostnaðaráætl- un ráðunauta Landsvirkjunar sem nam um 680 milijónum króna. Hæstu tilboð samanlögð námu hins vegar um 1.064 miiljónum króna eöa um 600 milljónum króna meira en lægsta tii- boöið. Alis bárust Landsvirkjun eitt hundr- að tilboö í þessa sex verkhluta. I stærsta verkhlutann, sem er þrir hverflar, rafalar og fylgibúnaöur, bárust 25 tilboð. Ingra Group bauð lægst, 329 milljónir króna. Næstlægst var tilboð japanska fyrirtækisins Sumitomo, 393 milljónir króna. Kostn- aöaráætlun hljóöaði upp á 493 milljónir króna. Tilboöin voru opnuö síöastliðinn fimmtudag í Súlnasal Hótel Sögu. Full- trúar tilboðsaðila fylltu salinn og fylgdust með opnun tilboðanna sem tók sjö klukkustundir. Tilboöstölur birtust jafnóðum á sjónvarpsskermum víðs vegar í salnum. Efst á skjánum biikk- aði nafn þess fyrirtækis sem lægst til- boö átti. Athöfnin minnti nokkuð á birt- ingu stiga í söngvakeppni sjónvarps- stöðva Evrópu. Verkhlutarnir sex voru, auk hverfl- anna, aflspennar, háspennubúnaður, lyftikranar, lokubúnaður og þrýsti- vatnspípa. Islensk fyrirtæki buöu í tvo síðasttöldu hlutana en náöu ekki að verða lægst. I lokubúnaö átti Vél- smiðja Orms og Víglundar þriðja lægsta tilboöið. I þrýstivatnspípuna átti Framleiðslusamvinnufélag iðnað- armanna þriðja lægsta tilboðiö. -KMU. Frá Arnari Páli Haukssyni, blaða- manni DV, á aðalfundi Stéttarsam- bands bænda á ísafirði: Þaö málefni sem bar líkiega oft- ast á góma hjá þeim 32 ræðumönn- um, sem tóku til máls á aðalfundi Stéttarsambands bænda í fyrra- dag, var umfjöllun fjölmiðla um landbúnaöarmál. Hver ræðumaöur á fætur öðrum lýsti því yfir að sú umfjöllun hefði einkennst af van- þekkingu og væri skipulagður áróð- ur gegn bændum. Það væri ekki umhyggja fyrir neytendum sem réði ferðinni í þessum skrifum heldur væri markvisst unnið að því að brjóta niður sölukerfi bænda. Einn ræöumaður sagði að aðför- in, eins og hann orðaði það, gegn kartöflu- og eggjabændum væri að- eins byrjunin. Aðrir bændur yrðu fyrir barðinu næst. Bændur telja þetta vera óheillavænlega þróun og eru sammála um aö snúa þurfi vörn í sókn. Annar ræðumaður taldi það vera brýnasta verkefni bændasamtakanna að snúast gegn þessum áróðri. Bændur yrðu að beita sér fyrir því í auknum mæli aö koma sínum sjónarmiðum á framfæri. EA Féíag bókagerðarmanna: Verkfall 10. sept Félag bókagerðarmanna hefur ákveöið að boða til verkfails 10. september næstkomandi hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Einn fundur hefur verið hald- inn í kjaradeilu bókagerðarmanna og Félags íslenska prentiðnaðarins þar sem iagðar voru fram kröfur um 30% kauphækkun 1. september og að samningar giltu til 15. apríi á najsta ári. Annar fundur hefur ver- ið boðaður næstkomandi þriðjudag. EA EWtwíátyrir a".^ nfoWíar brealTdansara, beintírá Bandaríkiunum, NewV^ork og Darnell og komafram á skemmtipall. a Tívolísvæðinu nú arssssss Semsagt. Wukkan 22 á stór^sVntngunni Heimiliö og fiblskyldan '84.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.