Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1984, Síða 4
4
DV. LAUGARDAGUR L SEPTEMBER1984.
Þing Fjórðungssambands Norðlendinga:
EKKERT ÁLVER
í ÞORLÁKSHÖFN
Þorlákshöfn kemur ekki til greina
fyrir byggingu álvers eins og talaö
hefur verið um.
Halldór Blöndal alþingismaöur sagöi
frá því á þingi Fjórðungssambands
Norðlendinga í Reykjaskóla í gær. Á
fundi í framkvæmdastjóm staðarvals-
nefndar nýlega skýrði einn af sérfræð-
ingum nefndarinnar um orkufrekan
iðnaö frá því aö Þorlákshöfn væri út úr
myndinni. Ástæöan væri sú aö gera
mætti ráð fyrir mikilli flóðbylgju þar
að minnsta kosti einu sinni á öld. Væri
nánast útilokað að byggja svo öfluga
vamargarða vegna hafnarmannvirkja
að þau stæöust átökin. Af þeim sökum
væra engar líkur til þess aö erlend
stórfyrirtæki tækju þá áhættu að reisa
álver viö Þorlákshöfn.
Eyjafjörður er því langlíklegastur til
aö taka við nýju álveri en aörir staðir
koma þó enn til greina. Einkum er um
að ræða Faxaflóa sunnanverðan og
jafnvel staði á Norðurlandi vestra, svo
sem í Miðfiröi eða viö Sauðárkrók.
Húsvíkingar telja sig einnig geta tekið
viðstóriðju. JBHReykjaskóla.
Kjarnfóðursjóður:
TÍU MILUÓNIR
TIL NAUTANNA
Svínin hafa fengið 500 þúsund
Dýpkunarskipiö Grettir. / eitt og háift ár hefur það legið á hafsbotni í
Faxefíóa..
Björgun Grettis
hefst um helgina
„Viö ætlum út um helgina ef veður
leyfir. Fyrst er aö finna hvar Grettir
liggur,” sagði Einar Kristbjörnsson
hjá Köfunarstööinni. Það fyrirtæki
hyggst ná dýpkunarskipinu Gretti
upp á yfirborösjávar.
Grettir hefur íegið á 70 til 75 metra
dýpi um 15 sjómílur norður af Garö-
skaga frá því hann sökk í marsmán-
uði 1983. Varöskip var þá meö Gretti
í togi eftir að leki hafði komið að
honum.
Köfunarstöðvarmenn hyggjast
fara út á Amarborg, dráttarbát
fyrirtækisins. Finnist Grettir fljót-
lega verður reynt að koma festingum
á hann með aðstoð sjónvarpsvéla.
Vonast er til að ekki þurfi aö kafa
niður.
Takist að koma festingum í Gretti
verður flotprammi Köfunarstöövar-
innar dreginn á staðinn. Spil, blakkir
og loft verða síöan notuö til að koma
Grettiafhafsbotniogupp. -KMU.
r
Fulltrúar sérsambanda á bændafundinum á Isafirði:
HAFA FENGIÐ
MÁLFRELSI
Frá Arnari P. Haukssyni,
blaðamanni DV á ísafirði.
Það sem af er þessu ári hafa verið
greiddar i kjamfóðursjóð tæpar 89
milljónir. Af þessari upphæö eru
reyndar um 19 milljónir sem ekki eru
enn gjaldfallnar og einnig rúmar 6
milljónir sem eru á vixlum. Gjöld
kjarnfóðursjóðs hafa verið rúmar 39
miUjónir á þessu ári. Meginhluti
gjaldanna eru styrkir eöa óendur-
kræfar greiðslur.
Áburðarverksmiðjan hefur fengið
12 mUljónir og eru það greiðslur fy rir
2 mánuöi. Gert er ráð fyrir því að
verksmiðjan fái 6—7 milljónir á
mánuði það sem eftir er ársins.
Tæpar 10 miUjónir hafa verið
greiddar tU nautgripaframleiðenda,
rúmar 14 mUljónir til mjólkurfram-
leiðenda og 500 þúsund til svína-
bænda.
Þrír styrkir voru veittir til Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins í
sambandi við júgurbólgurannsóknir,
eggjahvíturannsóknir og ófrjósemi-
rannsóknir á kúm. AUs voru þessir
styrkir 830 þúsund.
Þaö sem af er þessu ári hefur
eignaaukning sjóðsins verið 50 mUlj-
ónir og eignir aUs eru 91 miUjón.
Frá Arnari P. Haukssyni, blaðamanni
DV á ísafirði:
Það hefur verið f jaUað um ýmis mál-
efni landbúnaftarins á aðalfundi Stétt-
arsambands bænda. Viðraðar hafa
verið hugsanlegar skipulagsbreyting-
ar á Stéttarsambandinu. Sumir áUta
hin ýmsu sérbúgreinasambönd nái illa
að koma sínum sjónarmiðum á fram-
færi við núverandi skipulag. En ekki
hafa komið fram neinar einhlítar
breytingartiUögur og era mjög skiptar
skoöanir um hvort þær séu nauðsyn-
legar.
Það er nýmæU á þessum fundi að
fuUtrúar frá sérbúgreinasamböndum
hafa málfrelsi á fundinum. Þá hefur
mjög verið rætt um framtíð fram-
leiðslumála landbúnaðarins. Flestum
er ljóst aö skera verður niður fram-
leiðsluna á einstökum sviðum. En eins
og í öðrum málum eru skiptar skoðanir
um hvernig framkvæma eigi þann
niðurskurð.
1 nefndaráliti sjömannanefndarinn-
ar kemur fram aö öll búvörufram-
leiösla veröur háö framleiösluleyfum.
Þessi tUlaga virðist eiga undirtektir á
fundinum.
Þá er einnig áberandi að bændur
telja að leggja verði aukna áherslu á
að styrkja þá til aö stofna tU nýrra bú-
greina sem eiga framtíð fyrir sér.
Flestirbátarniraf
suðvesturhorninu
Þeir bátar, sem lengst eru komnir
með aflakvótann, eru flestir af suð-
vesturhorninu samkvæmt upplýs-
ingum Jakobs Jónssonar hjá Fiskifé-
lagilslands.
,,Það má segja aö 58 bátar séu
komnir á suðumark,” sagði Jakob.
„MiUi 30 og 40 þeirra eru búnir með
kvóta sinn. Hinir eiga eftir innan við
tíuprósent.”
Af þessum 58 bátum eru 29 yfir 100
tonn að stærð, 21 mUU 12 og 100 tonna
og8bátareruundirl2tonnum. „Kj,
„Ekki á móti”
— segir Bjarni Einarsson
Bjarni Einarsson, framkvæmda-
stjóri í Framkvæmdastofnun, hafði
samband við blaðið í gær og sagði
rangt að hann hefði sett sig upp á móti
breytingum á Framkvæmdastofnun
sem fjallað var um í f rétt DV í gær.
-HH
Sýning vatnsnuddpottum
Laugardag kl. 13—17.
Sunnudag kl. 13—17.
Eigum á lager til afgreiðslu strax nokkrar gerðir og liti af hinum
frábæru AKRÝL nuddbaðlaugum. Henta úti sem inni.
• Allur sundlauga- og pottafittings.
• Hreinsitæki.
• Ljós f sundlaugar og potta.
• Klórduft.
• Yfirbreiðslur.
• Vatnsnudd.
• Leiktæki í sundlaugar.
• Og margt annað.
Fáanlegir með tvenns konar nuddi. Allir nuddpottar frá okkur eru
með AKRÝLHÚÐ sem rispast ekki, upplitast ekki og eru því
alltaf semnýir.
Verið velkomin á sýninguna um helgina milli kl. 13 og 17
að Grensásvegi 8.
Við erum sveigjanlegir f samningum.
K. AUÐUNSSON H/F Á. ÓSKARSSON H/F.
Sími 686088. Sími 666600.