Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1984, Qupperneq 20
20
DV. LAUGARDAGUR1. SEPTEMBER1984.
Sælkerinn
Sælkerinn
Sælkerinn
Sælkerinn
Nokkur ord
um liiiin góda
lystauka, Klr
Sælkeri nokkur hafði samband við
Sælkerasíðuna og vildi fræðast um vín-
blönduna Kir og spurði hvort hún væri
til hér á landi. Jú, mikil ósköp, Kir frá
Bourgogne er hægt að kaupa í verslun-
um A.T.V.R. En hvað er Kir? Kir er
vínblanda frá Bourgogne og er blandað
saman þurru hvítvíni og sólberjalíkjör
er heitir „Créme De Cassis”, hlutföUin
eru fimm hlutar af hvítvíni á móti ein-
um af „Créme De Cassis”. Það má
NÝJAR METSÚLUBÆKUR
á ensku í vasabroti.
WHO KILLED THE ROBINS FAMILY
Bill Adler/Thomas Chastain, kr. 237.
THE AUERBACK WILL
Stephen Birmingham, kr. 237.
DECISION Allen Drury, kr. 237.
MONIMBO Moss og Borehgrave, kr. 237.
CARETAKERS Tabitha King, kr. 237.
THE DAYS OF ETERNITY
IGordon Glasco, kr. 237.
OKTÓBERTÍMARIT
KOMIN: playboy
PENTHOUSE
HIGH SOC/ETY
CLUB
HUSTLER—uppselt
Öll september.
timarit i sö/u.
fiOftA
HUSIO
Laugavegi 178, sími 68-67-80.
ÍNÆSTA HÚS VIO SJÓN VA RPtDÍ.
Ttaekní um allan heím
ITT
ITT Ideal Color 3304,
-Ijárfesting í gæöum
á stórlækkuöu veröi.
ITT
Vegna sérsamninga við
ITT verksmiðjurnar I
Vestur Þýskalandi, hefur
okkur tekist að fá
takmarkað magn af 20"
litasjónvörpum á
stórlækkuðu veröi.
nota hvaða tegund af hvítvíni sem er,
svo framarlega sem hún er þurr. I
Bourgogne er yfirleitt notað hvítvínið
Aligote. Kir má blanda á ýmsan hátt
og í Bourgogne hefur hver veitinga-
staður sína eigin blöndu. T.D. er til
bianda sem nefnist „Kir royal” og er
þá notað kampavín í stað hvítvíns. En
hvernig stendur á þessu nafni „Kir”.
Drykkurinn Kir er nefndur eftir manni
er var borgastjóri í Dijon (en þaðan
kemur frægt sinnep). Kir varö
kaþólskur prestur 25 ára gamall og í
fyrri heimsstyrjöldinni þjónaði hann
sem herprestur. Árið 1940 hernámu
Þjóðverjar Dijon. Borgarstjórinn
neyddist til að flýja land og var þá sett
á laggirnar nokkurs konar bráða-
birgðastjóm og átti faðir Kir, sem nú
var orðinn kanuki, sæti í þeirri stjóm.
Kir kanuki geröi Þjóðverjum lífið leitt
og um tíma sat hann í fangelsi.
Franskur nasisti reyndi að myrða
hann og því fór svo að lokum að hann
varð að fara í felur. Upp frá þessu varð
Kir kanuki frægur maöur og frelsis-
hetja. Eftir uppgjöf Þjóðvérja 19. maí
1945 var hann kosinn borgarstjóri í
Dijon. Kir borgarstjóri bauö gestum
sínum áðurnefnda vínblöndu þ.e.a.s.
hvítvín og sólberjalíkjör. I sveitunum
kringum Dijon er mikil hvítvínsfram-
leiðsla og einnig er mikið ræktað af sól-
berjum. Þrátt fyrir aö áðumefnd vín-
blanda sé nefnd í höfuðið á Kir borgar-
stjóra, þá fann hann ekki upp þessa
blöndu, það gerðu munkar (auðvitað).
Þegar á 15. öld voru munkamir í
Bourgogne famir að framleiða sól-
berjavín. Árið 1841 fór fyrirtækið Denis
Lagoute í Dijon aö framleiöa Créme
De Cassis. Um Kir borgarstjóra er þaö
helst að segja að síðustu ár hans sem
borgarstjóri voru ekki eins ánægjuleg
og þau fyrstu. Með árunum varð hann
heldur einráður. Áriö 1968 datt hann í
stiga og lést. Kir er vinsæll drykkur í
flestum löndum Evrópu, t.d. selur
sænska áfengisverslunin yfir 10 millj-
ón lítra af Kir á ári. Ef þið, lesendur
góðir, eruð á ferð í Mið-Evrópu er upp-
lagt aö kaupa flösku af Créme De
Cassis því Kir er frábær lystauki.
í W3r.
Kir erblanda afhvítvini og sólberjalikjörnum Créme De Cassis.
Sælkerasíðan hefur nokkrum sinnum
(5. júní og 30. júlí ’82) fjaliað um gæði
niðurlagðrar síldar hér á landi. Sæl-
kerasíðan fullyrðir að í flestum tilfell-
um er dönsk, norsk og sænsk síld sem
hér er á boðstólum betri en sú íslenska.
Er það ekki furðulegt að í verslunum
hérlendis eru á boðstólum fleiri teg-
undir af síld frá nágrönnum okkar og
frændum en okkur sjálfum? Hvernig
stendur á þessu? Hvað er búið að verja
mörgum milljónum í að þróa þessa at-
vinnugrein? Hvemig stendur á því aö
árangurinn er ekki meiri en raun ber
vitni? Já, það eru fjölmargar spum-
ingar sem vakna í þessu sambandi.
Það er eins og það vanti herslumuninn
varðandi íslensku síldina. Það er borð-
að mun meira af síld í Noregi, Svíþjóð
og Islandi og markaðurinn er stærri og
þessar þjóðir hafa því meiri reynslu í
niðurlagningu á síld. Nú er það svo að
við Islendingar eigum góða matvæla-
fræðinga og aðra sérfræðinga. I
blööunum má lesa aö um þessar mund-
HERRING HABENG
TIDBÍTS ENBOUCHI
wlth whve fíavour avso sawwr.
106 9
Þessi sild er ekki mannamatur.
Ersfld
saelgaeti?
ir séu allir síldarmarkaðir fullir og of-
framboð á síld. Þaö er því hættulegt ef
við erum stöðugt að dragast aftur úr í
framleiðslu matvæla. Það verður að
fara að taka þessi mál föstum tökum
og fela hæfu fólki þaö verkefni aö leysa
þennan vanda. Lögmálið er og verður;
því betri vara, því meiri neysla hér
innanlands og þar af leiðir aö mögu-
leikar á útflutningi á niðurlagðri síld
ættu að stórbatna. Hér hefur verið far-
ið með nokkrar fullyrðingar en því
miður eru þær réttar. Dæmi um slæma
vöru er síld sem Sælkerasíðan fékk
fyrir nokkrum dögum. Á dósinni stóð
„Iceland waters. Herrlng tidbits with
wine flavour. Product of Iceland 106 g.
Vonandi verður þessi vara aldrei flutt
úr landi. Þessi síld var í mauki eða eins
og hún hefði verið hökkuö. Af henni
lagði megna fýlu og liturinn var grár.
Nú, þetta gat verið óhapp og því var
farið í sömu verslun og keypt ný dós.
Ekki tók betra við því þessi síld var
brimsölt og því óæt. Og enn var náð i
dós, þá þriðju og síldin sem kom úr
þessari dós var í hálfgerðu mauki og
hærðilega sölt. Hvernig stendur á því
að þetta fýrirtæki „Iceland waters”
sendir frá sér matvöru sem alls ekki er
mannamatur? Hver er ábyrgur?
Gódur blémkálsréttur
Nú er nýtt og gott grænmeti á boð-
stólum. Islendingar hafa hingað til
ekki verið miklar grænmetisætur enda
ekki verið mikið úrval af grænmeti hér
á markaði. En þetta stendur allt til
bóta skulum við vona. Nú er hægt að fá
í verslunum nýtt og gott blómkál. Hér
kemur uppskrift að blómkálsrétti, sem
auðvelt er að matbúa, og með blómkál-
inu höfum við síld, ekki úr dós (enda
varla óhætt) heldur reykta.
Iþennanréttþarf:
1 blómkálshöfuð (500 g)
Vatn
2 tesk.saltfyrirhvemlítra vatns
4 sneiðar franskbrauð
Smjör
Nú er nýtt og ferskt biómkái á
markaönum.
3 matsk. slnnep
4 flökreyktsíld
salt og pipar
2 dl. rifinn ostur
Skerið blómkálið niður í hæfilega
bita. Setjið vatn í pott. Þegar suðan er
komin upp er vatniö saltað og blómkál-
iö sett út í og þaö soöið í u.þ.b. í 5 mín.
Blandiö saman smjöri og sinnepi og
smyrjið franskbrauðsneiðamar með
því. Skerið hvert síldarflak í tvennt og
leggið reyktu síldarflökin á brauð-
sneiðamar. Látið vatniö renna af
blómkálinu í sigti. Deilið blómkálinu
niöur á brauðsneiðamar og stráiö salti
og pipar yfir. Þá er ostinum dreift
jafnt yfir brauðsneiöarnar. Þær eru
settar í 250 gráðu heitan ofn. Þegar
blómkálsbrauðið er orðið vel brúnt er
rétturinn tilbúinn.
Hiirra, húrra,
sumarslátrun
Nú er hægt að fá í verslunum kjöt af
nýslátruðu og eins og allir sælkerar
vita er nýtt kjöt mun bragðmeira og
hollara en kjöt sem búiö er aö geyma
hátt í eitt ár. Þá er nýtt og gott græn-
meti á markaðnum þannig að nú má
gjöra góða veislu. Svo er hægt að fara
út í sveit og ná í íslenskar kryddjurtir
til að krydda kjötið með, t.d. blóðberg.
Þá má einnig rekast á sveppi sem hafa
þomað úti, eru þeir sériega góðir, t.d. í
sósur. Svo em það berin en þaö er nú
önnur saga. Það væri stórkostlegt ef
hægt væri að slátra 4 sinnum á ári, t.d.
um jól, páska, og aö áliönu sumri.
Neysla á lambakjöti mundi örugglega
aukaststórlega.
Sælkerinn
Umsjón:
Sigmar B.
Hauksson
Sælkerinn
GÆDII HVERJUM ÞRÆDI.
mooe KOMIÐ OG SKOÐIÐ HIN VINSÆLU
CH3ULLARTEPPI.
AFGREIÐSLUTlMI: 1-2 VIKUR.
FRIÐRIK BERTELSEN H/F TEPPAVERSLUN
SÍÐUMÚLA 23 S.686266