Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1984, Blaðsíða 36
I
FR ETT ASKOTIÐ
6878-58
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Hafir þú ábendingu .
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krénur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingarr áskrift og dreifing, sími 27022.
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1984.
Ingjaldur Hannibalsson:
Engin framtíð
íiðnaðinum
Frá Jóni Baldvini Halldórssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
Þjónustan verður að taka við mest-
um hluta þess fólks sem kemur á
vinnumarkaðinn á næstu áratugum en
ekki iðnaðurinn. Það er meginniöur-
staöan úr erindi sem Ingjaldur Hanni-
balsson, forstjóri Iðntæknistofnunar
Islands, flutti á fjórðungsþingi Norð-
lendinga í Reykjaskóla í gær.
Að undanförnu hefur öll umræða um
nýjar leiöir í atvinnumálum á Islandi
miöast við að aðeins iðnaður gæti skap-
að ný störf. Ingjaldur sló á þær hug-
myndir og kallaöi óráðsíuhjal. Hann
benti á þróun í öörum löndum og sagði
að þótt iönaöarframleiðsla ykist mundi
störfum lítið fjölga. Meöal annars
vegna aukinnar sjálfvirkni. Hann
sýndi fram á að á Islandi væri hlut-
fallslega mun færri sem störfuðu viö
þjónustu en í sumum öörum löndum,
eins og til dæmis í Bandaríkjunum.
Ingjaldur nefndi þá stóriðjumögu-
leika sem mest eru ræddir á Islandi nú,
þar á meðal álver viö Eyjafjörð,
stækkun í Straumsvík, Kísilmálmverk-
smiðju og marga fleiri. Þessir kostir
mundu aðeins veita um 1000 manns at-
vinnu. EA
Símasam-
band við
geimferjuna
Discovery
Þeir Islendingar sem áhuga hafa á
geta nú hlustað á samtöl áhafnar geim-
skutlunnar Discovery viö stjórnstöð
sína í Bandaríkjunum. Þetta er hægt
meö því að hringja í númeriö 90 1 900
410 6 272 í Bandaríkjunum. Verður hægt
að fylgjast með samtölunum þar til á |
miðvikudag er áætlaö er aö ferjan
lendi aftur. I
-FRI. I
LUKKUDAGAR
1. september
30057
DATSUN MICRA FRÁ
INGVARI HELGASYNI HF. AÐ
VERÐMÆTI CA KR. 300.000.
Vinnintjshafar hringií síma 20068
LOKI
En er nokkur framtíð í
tngjaldi?
Samvinnutryggingar:
Falsadi tjónaskýrslu
Deildarstjóri sá sem látinn var
hætta störfum hjá Samvinnutrygg-
ingum útbjó tjónaskýrslu á bíl eins
þeirra manna sem unnu við húsbygg-
ingu deildarstjórans og var viögerð á
bílnum svo borguð með ávísun frá
Samvinnutryggingum.
Bíll mannsins var ekki tryggður
hjá Samvinnutryggingum heldur
öðru tryggingafélagi og hafði ekki
lent í tjóni heldur var bilaður á verk-
stæði.
Viðgerðið kostaði 34.000 kr. og
hljóðaði upphæðin á ávísuninni upp á
þá f járhæð en sá sem gerði viö bílinn
á verkstæðinu staðfesti þetta í sam-
tali viðDV.
Samkvæmt heimildum DV voru
þessi viöskipti bókfærö í tölvu Sam-
vinnutrygginga en hafa nú verið
þurrkuð þaðan út og var þaö senni-
lega gert skömmu eftir að DV hóf
skrif um tjónabílaviðskiptin hjá
fyrirtækinu.
Rúmlega ár er síðan viðgerðin fór
fram á bílnum en heimildir DV
greina frá því að yfirmönnum í Sam-
vinnutryggingum hafi verið kunnugt
um þetta mál nokkru eftir að það
geröist.
-FRI
Þaö var mikið líf og fjör í tívolíinu á Melavelli í gœrdag.
Ástœðan var meðal annars sú að forráðamenn þess höfðu
boðið allmörgum þroskaheftum börnum ,,á völlinn”.
Skemmtu þau sér hið besta í hinum ýmsu tœkjum sem
eru á Melavellinum eins og glöggt má sjá af meðfylgjandi
mynd. DV-mynd Kristján Ari
Gengið fellt um
2,75 prósent
Gengi íslensku krónunnar var fellt
um 2,75% aö meðaltali í gærmorgun.
Gengisfelling þýðir að meira þarf að
greiða fyrir erlendan gjaldeyri í
íslenskum krónum. Bandaríkjadoll-
ar hækkaði um 3%, sterlingspundið
um 2,8% og gjaldmiðlar Norður-
landaþjóðanna um2,75%.
Gengisfellingin er tilkomin vegna
nýrrar viðmiðunar við skráningu
erlendu gjaldmiölanna. Til þessa
hefur verið miðað við meðaltal svo-
kallaðrar landvogar og myntvogar.
Vegna mikillar hækkunar á gengi
Bandaríkjadollars, sem vó þungt í
fyrrnefndri vog, 46%, þótti hún orð-
in óraunhæf.
Seðlabankinn ákvað því að breyta
um og miða eingöngu viö landvog en
hún er talin spegla mun betur fram-
vindu markaðsskilyrða í viðskipta-
löndunum.
Vægi Bandaríkjadollars er um 30%
í landvoginni. Þrátt fyrir gengisfell-
inguna í gær er hækkun meðalgengis
erlenda gjaldmiðla talin verða innan
þeirra marka er ríkisstjórnin hefur
settséráárinu.
-JGH.
Vestfirðir:
Deilunni vísað
tilsáttasemjara
í
í
i
í
í
í
í
i
i
i
Vinnuveitendafélag Vestfjarða
ákvað í gær á fundi með Alþýðu-
sambandi Vestfjarða að vísa kjara-
deilu þessara aðila til ríkissátta-
semjara.
„Staða fiskvlnnslunnar er þess
eðlis að hún getur ekki samið um
aukinn kostnað á neinum sviðum
■ rekstursins,” sagði Jón Páll
Halldórsson, formaður Vinnuveit-
endafélagsins, í samtaii við DV er
hann var inntur eftir ástæðunni
fyrir þessari ákvörðun.
Athygli vakti að fulltrúar Vinnu-
málasambands samvinnufélag-
anna mættu ekki á fundinn í gær en
þeir eiga einnig hlut að þessari
kjaradeilu. EA
W
A